Íslenska bankakerfið sagt dýrt, spillt og gráðugt

Íslend­ingar treysta ekki banka­kerf­inu vegna hruns­ins, þeirrar græðgi sem þeir upp­lifa að við­gang­ist innan þess og óheið­ar­leika eða spill­ingu sem í því grass­eri.

Hópur fólks mótmælti sölunni á hlut Landsbankans í Borgun á sínum tíma. Á meðal þess sem stjórnendur Landsbankans voru ásakaðir um var spilling.
Hópur fólks mót­mælti söl­unni á hlut Lands­bank­ans í Borgun á sínum tíma. Á meðal þess sem stjórn­endur Lands­bank­ans voru ásak­aðir um var spill­ing. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þau þrjú orð sem flestum Íslend­ingum dettur í hug til að lýsa banka­kerf­inu á Íslandi eru háir vextir/dýrt/okur, glæp­a­starf­semi/spill­ing og græðgi. Þar á eftir koma orð eins og van­traust, hrun og há laun/bónusar/eig­in­hags­muna­semi. Öll voru þessi orð nefnd meira en nokk­urt jákvætt var sagt um íslenska banka­kerfið.

[links]Þetta er meðal þess sem kom fram í rann­sókn sem Gallup vann fyrir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið og birt­ist með Hvítbók um fram­tíð­ar­sýn fyrir fjár­mála­kerfið sem kynnt var í síð­asta mán­uði. Markmið könn­un­ar­innar var að skoða ítar­lega traust til banka­kerf­is­ins á Íslandi, hverjar væru helstu ástæður fyrir van­trausti og hvað mætti betur fara. Úrtakið var 1.408 manns 18 ára og eldri af land­inu öllu. Þátt­töku­hlut­fall var 54,5 pró­sent.

Í rann­sókn­inni kom einnig fram að flestir Íslend­ingar ósk­uðu þess að banka­kerfi fram­tíðar yrði sann­gjarnt og rétt­látt, traust, með góða þjón­ustu, hag­kvæmt, heið­ar­legt, gagn­sætt og fyrir almenn­ing.

[adspot]Þegar lands­menn voru beðnir um að nefna þau þrjú orð sem þeim dytti helst í hug til að lýsa traustu banka­kerfi urðu orðin traust, sann­girni/rétt­látt og heið­ar­leiki efst á blaði.

Ljóst er á nið­ur­stöðu rann­sókn­ar­innar að Íslend­ingar upp­lifa íslenska banka­kerfið ekki eins og þeir myndu vilja hafa það. þvert á móti treysta 57,2 pró­sent lands­manna banka­kerf­inu lítið eða ekk­ert. Einungis 16,3 pró­sent treysta því mikið.

Aðspurð um hverjar séu helstu ástæður þess að við­kom­andi beri lítið traust til banka­kerf­is­ins á Íslandi sögðu 18,1 pró­sent þeirra sem van­treysta því að sú ástæða væri hrunið. Alls sögðu 12,9 pró­sent að ástæðan væri græðgi og 10,7 sögðu það vera óheið­ar­leika eða spill­ingu.

26,4 pró­sent lands­manna sögðu að það væri hægt að auka traust almenn­ings til banka­kerf­is­ins með því að lækka vexti eða bæta kjör. Rúmur fimmt­ungur, eða 20,8 pró­sent, sögðu að minni græðgi, bónusar og/eða ofur­laun myndu auka traustið og 14,4 pró­sent sögðu að þörf væri á meira gagn­sæi. Þá sögðu tæp­lega tólf pró­sent aðspurðra að traustið myndi aukast ef bankar yrðu reknir í þágu fólks­ins.

Íslenska ríkið á sem stendur tvo banka, Íslands­banka og Lands­bank­ann. Heimild er fyrir því í fjár­lögum að selja allt hlutafé rík­is­ins í Íslands­banka og allt utan 34 pró­senta í Lands­bank­anum. Sam­an­lagt eigið fé bank­anna tveggja í dag er um 411 millj­arðar króna. Rík­is­bank­arnir greiddu eig­endum sínum 207 millj­arða króna í arð á árunum 2013-2018.

Í Hvít­bók um fram­tíð­ar­sýn fyrir fjár­mála­kerfið er fjallað ítar­lega um hvernig skuli standa að sölu á hlutafé í rík­is­bönk­un­um, Lands­bank­anum og Íslands­banka, og er horft til þess að nota skráðan markað til þess að end­ur­skipu­leggja eign­ar­hald með þeim hætti, að dreift og traust eign­ar­hald verði hluti af fjár­mála­kerf­inu til fram­tíð­ar.

Þá er einnig lagt til að það verði skoðað gaum­gæfi­lega hvernig megi efla sam­starf bank­anna á sviði inn­viða í fjár­mála­kerf­inu, til að auka hag­ræð­ingu í banka­kerf­inu og bæta þannig kjör til neyt­enda.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði við RÚV á fimmtu­dag að hún sæi ekki fyrir sér að rík­is­bank­arnir yrðu seldir á þessu ári. Hún sagði það þó ekki hafa verið sína sýn né rík­is­stjórn­ar­innar að halda Íslands­banka. Það sem skipti máli sé að ríkið verði áfram leið­andi fjár­festir í Lands­bank­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hrun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár