Markaðsmisnotkunarmál Landsbankans fyrir Mannréttindadómstólinn

Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu ætlar að taka hrun­mál tengt Lands­bank­anum til með­ferðar. Þeir sem hlutu dóma í því vilja meina að dóm­arar hafi verið hlut­drægir vegna þess að þeir töp­uðu á hrun­inu.

Sigurjón Þ. Árnason var bankastjóri Landsbanka Íslands frá 2003 og fram yfir bankahrun.
Sigurjón Þ. Árnason var banka­stjóri Lands­banka Íslands frá 2003 og fram yfir banka­hrun. Mynd: Úr safni.

Stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­mál Lands­bank­ans, sem Hæsti­réttur dæmdi í febr­úar 2016, mun fá efn­is­með­ferð fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stóli Evrópu. Ákvörðun um þetta var tekin fyrr í jan­ú­ar­mán­uði. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu.

Í mál­inu voru fjórir menn dæmdir til fang­els­is­vistar fyr­ir mark­aðs­mis­­­not­k­un á tíma­bil­inu 1. nóv­­em­ber 2007 til 3. októ­ber 2008. Sam­kvæmt ákæru áttu þeir að hafa hand­­stýrt verð­mynd­un hluta­bréfa í Lands­­bank­an­um og með því blekkt „fjár­­­festa, kröf­u­hafa, stjórn­­völd og sam­­fé­lagið í heild.“

Sig­ur­jón Þ. Árna­son, fyrr­ver­andi banka­stjóri Lands­bank­ans, Ívar Guð­jóns­son, fyrrum for­stöðu­maður eigin fjár­fest­inga Lands­bank­ans, Júl­íus S. Heið­ars­son, sem var sér­fræð­ingur í sömu deild, og Sindri Sveins­son, sem starf­aði við eigin fjár­fest­ingar hjá Lands­bank­an­um, voru allir dæmdir sekir um mark­aðs­mis­notkun í Hæsta­rétti. Sig­ur­jón hlaut eins árs og sex mán­aða fang­els­is­dóm. Ívar var dæmdur í tveggja ára fang­elsi en Júl­íus og Sindri hlutu eins árs fang­els­is­dóma.

[adspot]Samkvæmt frétt Frétta­blaðs­ins vís­uðu þrír mann­anna mál­inu til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu sem ætlar að taka það til efn­is­með­ferðar. Dómurinn hefur þegar beint spurn­ingum til íslenska rík­is­ins um mál kærend­anna þriggja, en mála­rekst­ur­inn byggir á því að þeir hafi ekki hlotið rétt­láta máls­með­ferð þar sem hluti þeirra dóm­ara sem dæmdi í málum þeirra í Hæsta­rétti hefðu tapað fjár­hags­lega á banka­hrun­inu, og væru þar með hlut­drægir.

Dæmt 2015 og 2016

Dómar í tveimur málum gegn Sig­ur­jóni, stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Lands­bank­ans og Ímon-mál­inu, féllu upp­haf­lega í októ­ber 2015 og í febr­úar 2016. Hann hlaut sam­an­lagt fimm ára fang­els­is­dóm í þeim málum.

Á árinu 2017 var greint frá því að Sig­ur­jón hefði kraf­ist þess að tvö mál á hendur honum yrðu tekin aftur til með­ferðar fyrir dómi. Beiðni um þá end­ur­upp­töku hafi verið send inn í sept­em­ber 2016. Sig­urður G. Guð­jóns­son, lög­maður Sig­ur­jóns, sagði í sam­tali við Frétta­blaðið á þeim tíma að byggt væri „fyrst og fremst á þeim fréttum sem hafa komið um hluta­bréfa­eign dóm­ara í blöð­un­um. Svo hefur verið að koma í ljós að þeir hafa verið að stað­festa að þeir hafi tapað fjár­munum í banka­hrun­inu, sumir dóm­ar­ar.“ Þær fréttir sem Sig­urður vísar í voru meðal ann­ars sagðar í des­em­ber 2016, þremur mán­uðum eftir að end­ur­upptöðu­beiðni Sig­ur­jóns var send inn.

End­ur­upp­töku­nefnd féllst í maí 2019 á end­ur­upp­töku tveggja hæsta­rétt­ar­mála þar sem Sig­ur­jón var dæmdur til fang­els­is­refs­ingar fyrir brot í starfi sínu. Annað þeirra mála var mark­aðs­mis­notk­un­ar­málið, en hitt Ímon-málið svo­kall­aða.

Ein þeirra ástæðna sem gefin var fyrir þeirri nið­ur­stöðu var að hæsta­rétt­ar­dóm­ar­arnir Viðar Már Matth­í­as­son og Eiríkur Tóm­as­son sem dæmdu í mál­unum, hefði átt hluti í Lands­bank­anum fyrir hrun og orðið fyrir veru­legu tjóni við fall bank­ans. Þeir eru nú báðir komnir á eft­ir­laun.

Umfjöll­unin leiddi til þess að dóm­­arar við Hæsta­rétt voru látnir birta hags­muna­­skrán­ingu sína opin­ber­­lega, og hefur það þegar verið gert á heima­­síðu rétt­­ar­ins síðan þá.

Málin eru nú komin aftur á dag­skrá Hæsta­réttar og verður mál­flutn­ingur í þeim er 4. og 11. mars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hrun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár