Ekki viss um að innistæða hafi verið fyrir „öllum þessum málarekstri“ í hrunmálum

Dóms­mála­ráð­herra segir í við­tali við Þjóðmál að margir hafi átt um sárt að binda vegna hrun­mála og að hún voni að þeir láti ekki byrgja sér sýn þegar horft sé fram á veg­inn. Hún hefur efa­semdir um ágæti þess að eft­ir­lits­þjóð­fé­lagið vaxi.

Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra seg­ist ekki viss um að inni­stæða hafi verið fyrir „öllum þessum mála­rekstri“ sem tengd­ist banka­hrun­inu. Þetta kemur fram í við­tali við hana í nýj­ustu útgáfu Þjóðmála.

[links]Þar segir Sigríður að mönnum hafi verið vandi á höndum þegar verða áföll eins og banka­hrunið sem eru úr takti við öll hlut­föll í þjóð­fé­lag­inu. Gagnrýni á það sem gert verður við slíkar aðstæður sé alltaf því marki brennd að menn hafi ekki sam­an­burð við þær leiðir sem ekki voru farnar. “Það var ekki óvænt að menn myndu láta reyna á alls konar gjörn­inga fyrir dómi en með tím­anum þegar litið er til baka er ég ekki viss um að hægt sé að full­yrða að inn­stæða hafi verið fyrir öllum þessum mála­rekstri. Margir hafa átt um sárt að binda vegna þess­ara mála og ég vona inni­lega að þeir láti þau ekki byrgja sér sýn þegar horft er fram á veg­inn.“

[adspot]Hún seg­ist einnig hafa efa­semdir um ágæti þess að auka eft­ir­lit um of. „Við megum heldur ekki gleyma því að reglur um fjár­mála­markað voru bæði miklar og

flóknar fyrir árið 2008. Það var mikið eft­ir­lit með fjár­mála­starf­semi, hér sem ann­ars staðar á Vest­ur­löndum og lög­gjaf­inn hafði sett alveg gríð­ar­lega margar reglur um fjár­mála­fyr­ir­tæki. Það eru fá ef nokkur dæmi í sög­unni um starf­semi sem laut fleiri reglum[...]En allt kom fyrir ekki þannig að menn þurfa stundum líka að horfast í augu við það að stundum eru áföll óhjá­kvæmi­leg og það er ekki hægt að koma í veg fyrir þau öll með reglum og eft­ir­liti. Það má heldur ekki skapa falskar vænt­ingar manna til þess að með eft­ir­lit­inu þurfi menn ekki að hafa vit fyrir sjálfum sér. Þetta er alltaf mikið álita­efni og við laga­setn­ingu þarf lög­gjaf­inn að huga vel að þessu, þ.e. þegar það er verið að afhenda eft­ir­lits­stofn­unum sekt­ar­heim­ildir og önnur verk­færi til að beita við­ur­lögum. Þetta er þunn lína, hvenær farið er yfir það sem eðli­legt má telj­ast í ljósi þeirra rétt­ar­fars­reglna sem hér ríkja.“

35 mál í ákæruferli

Haustið 2018 voru tíu ár liðin frá banka­hrun­inu. Samkvæmt nýlegri úttekt Financial Times hafa 47 banka­menn verið fang­els­aðir í heim­inum vegna fjár­málakrepp­unnar sem skall á heim­inum haustið 2008. Sú tala er reyndar tölu­vert van­á­ætluð vegna þess að á Íslandi einu saman hafa 40 ein­stak­lingar hlotið sam­tals nálægt hund­rað ára fang­els­is­dóma vegna hrun­mála, sem flest hafa enda með sak­fell­ingu.

Ólafur Þór Hauksson, nú hér­aðs­sak­sókn­ari en áður sér­stakur sak­sókn­ari, var í við­tali við sjón­varps­þátt­inn 21 á Hring­braut í októ­ber. Þar sagði hann að um 200 mál hafi komið inn á borð emb­ætt­is­ins tengd hrun­inu. Af þeim hafi mörg verið sam­einuð og á end­anum fóru 35 í ákæru­ferli. Af þeim stóðu þá sex eft­ir, tvö fyrir hér­aðs­dómi og fjögur fyrir Lands­rétti. Þar af voru fjögur mál sem Hæsti­réttur Íslands hefur heim­vísað til lægra dóm­stigs. Hægt er að sjá við­talið við Ólaf í heild sinni hér að neðan.

Tveimur þeirra mála er nú lokið fyrir því dóm­stígi sem þau voru á. Aurum-mál­inu lauk með sýkna allra sak­born­inga fyrir Lands­rétti í októ­ber og í nóv­em­ber var Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, sak­felldur fyrir inn­herja­svik í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur. Hreiðari Má var hins veg­ar ekki gerð refs­ing en hann hefur hlotið sam­tals sjö ára fang­els­is­dóma í þremur öðrum málum, þar af tveimur sem lokið hefur með sak­fell­ingu í Hæsta­rétti Íslands.

Sumum málum hætt vegna þess að það skorti fjármagn

Í þætt­inum var Ólafur einnig spurður um þau mál sem röt­uðu ekki í ákæru­ferli og sagði að þar væru fyrst og fremst um mál að ræða sem emb­ættið taldi að myndu ekki ná inn í dóm. „Ann­ars vegar var þá hætt rann­sókn eða þá mál voru full­kláruð og svo tekið mat á því hvort þau stæð­ust sönn­un­ar­lega séð. Hvort það væru meiri lík­indi en minni að það yrði sak­fellt í þeim. Í nokkrum til­vikum var það þannig að það þótti ekki vera. Síðan í rest­ina voru farin að koma inn frek­ari sjón­ar­mið eins og til dæmis tíma­lengd­in, hvað þetta var búið að taka langan tíma. Þar kom inn í að við erum skorin svo­lítið hressi­lega niður strax á árinu 2013, sem gerir það að verkum að sumt að því sem við vorum með það náði ekki fram.“

[adspot]Í fyrsta fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórnar Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar,sem lagt var fram árið 2013, voru fram­lög til emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara skorin niður um helm­ing milli ára og heild­ar­nið­ur­skurður, að teknu til­liti til upp­safn­aðra fjár­heim­ilda, var 774 millj­ónir króna milli ára. Framlög til sér­staks sak­sókn­ara fóru úr því að vera 1,3 millj­arðar króna árið 2012 í að vera 291 milljón króna árið 2015. Til að bregð­ast við nið­ur­skurð­inum var fjölda starfs­manna emb­ætt­is­ins sagt upp. Ólafur Þór sagði við Kjarnann snemma árs 2015, að á fjórtán mán­aða tíma­bili hefði starfs­mönnum verið fækkað um helm­ing og sér­fræð­ingum sem unnu fyrir emb­ættið í verk­töku um annað eins. „Þetta mikil skerð­ing mun hafa áhrif þótt enn sé nokkuð snemmt að segja til hvers hún leiðir á end­anum. Ljóst er þó að ekki hefur reynst unnt að manna allar þær rann­sóknir sem emb­ættið hefur með höndum eins og sakir standa nú.“

Þegar Ólafur var spurður að því í sjón­varps­þætt­inum í októ­ber, sem sýndur var í kringum tíu ára afmæli banka­hruns­ins, um það hvernig það stæð­ist jafn­ræð­is­sjón­ar­mið að sumir ein­stak­lingar slyppu við ákæru, og mögu­lega dóm, vegna þess að rann­sókn á málum þeirra hefði tekið lengri tíma en hjá öðrum eða vegna þess að emb­ætt­inu skorti fjár­magn, svar­aði hann því til að það væri eðli­legt að velta þeirri spurn­ingu upp. „En í mjög mörgum til­vikum var um að ræða mál sem beindust að sömu aðilum og áður höfðu fengið dóma og jafn­vel voru komnir með full­nýtta refsiramma, upp í sex ár. Þannig að það var í lang­flestum til­vikum um slíkt að ræða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hrun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár