Gátu ekki klárað rannsókn á nokkrum málum vegna skorts á fjármunum

Ólafur Þór Hauksson segir að nið­ur­skurður á fram­lögum til emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara á árinu 2013 og tíma­lengd rann­sókna hafi gert það að verkum að rann­sóknum á sumum málum sem emb­ættið vildi klára, var hætt.

Ólafur Þór Hauksson, hér­aðs­sak­sókn­ari og áður sér­stakur sak­sókn­ari, segir að nið­ur­skurð­ur­inn sem emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara var lát­inn sæta árið 2013, upp á 774 millj­ónir króna, hafi gert það að verkum að ekki var hægt að klára rann­sókn á sumum málum tengdum hrun­inu. „Auðvitað voru þarna nokkur mál sem við hefðum viljað fara betur ofan í sem við höfðum ekki „resource-a“ til að taka.“

Þetta kom fram í við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, rit­stjóra Kjarnans, við Ólaf í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í gær þar sem þeir ræddu hrunið og afleið­ingar þess í til­efni af því að ára­tugur er lið­inn frá atburð­unum afdrifa­ríku nú um stundir. Hægt er að horfa á stiklu úr þætt­inum hér að ofan.

Ólafur segir að um 200 mál hafi komið inn á borð emb­ætt­is­ins tengd hrun­inu. Af þeim hafi mörg verið sam­einuð og á end­anum fóru 35 í ákæru­ferli. Af þeim standa sex eftir, tvö fyrir hér­aðs­dómi og fjögur fyrir Lands­rétti. Þar af eru fjögur mál sem Hæsti­réttur Íslands hefur heim­vísað til lægra dóm­stigs.

Aðspurður um þau mál sem röt­uðu ekki í ákæru­ferli segir Ólafur að þar sé fyrst og fremst um mál að ræða sem emb­ættið taldi ð myndu ekki ná inn í dóm. „Annars vegar var þá hætt rann­sókn eða þá mál voru full­kláruð og svo tekið mat á því hvort þau stæð­ust sönn­un­ar­lega séð. Hvort það væru meiri lík­indi en minni að það yrði sak­fellt í þeim. Í nokkrum til­vikum var það þannig að það þótti ekki vera. Síðan í rest­ina voru farin að koma inn frek­ari sjón­ar­mið eins og til dæmis tíma­lengdin, hvað þetta var búið að taka langan tíma. Þar kom inn í að við erum skorin svo­lítið hressi­lega niður strax á árinu 2013, sem gerir það að verkum að sumt að því sem við vorum með það náði ekki fram.“

Þegar Ólafur var spurður um það í þætt­inum hvernig það stæð­ist jafn­ræð­is­sjón­ar­mið að sumir ein­stak­lingar slyppu við ákæru, og mögu­lega dóm, vegna þess að rann­sókn á málum þeirra hefði tekið lengri tíma en hjá öðrum eða vegna þess að emb­ætt­inu skorti fjár­magn, svar­aði hann því til að það væri eðli­legt að velta þeirri spurn­ingu upp. „En í mjög mörgum til­vikum var um að ræða mál sem beindust að sömu aðilum og áður höfðu fengið dóma og jafn­vel voru komnir með full­nýtta refsiramma, upp í sex ár. Þannig að það var í lang­flestum til­vikum um slíkt að ræða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hrunið

InnlentHrunið

Segir Margréti leik­stjóra ekk­ert vita um málið: „Þetta er bara sóða­skapur“

Atli Þór Fanndal segir að leik­stjóri Baráttan um Ísland viti „greini­lega ekk­ert um þessi mál,“ en hún blæs á gagn­rýni á heim­ild­ar­mynd­inni. Mikil óánægja gætir á sam­fé­lags­miðlum vegna heim­ild­ar­mynd­ar­innar Baráttan um Íslands sem sýnd var í tveimur pörtum á RÚV á dög­unum, í til­efni af 15 ára afmæli Hrunsins. Gagn­rýnin bein­ist helst að efn­is­tökum mynd­ar­innar, að of mikil áhersla hafi...

Mest lesið undanfarið ár