CLN-málinu áfrýjað til Landsréttar

Hinu svo­kall­aða CLN-máli gegn æðstu stjórn­endum Kaup­þings hefur verið áfrýjað til Lands­réttar. Málið hefur flækst fram og til baka í dóms­kerf­inu árum saman og búið er að greiða til baka hluta þeirra fjár­muna sem taldir voru tap­aðir.

Hreiðar Már Sigurðsson við meðferð CLN-málsins í héraði í sumar. Þar voru allir sakborningar sýknaðir.
Hreiðar Már Sig­urðs­son við með­ferð CLN-máls­ins í hér­aði í sumar. Þar voru allir sak­born­ingar sýkn­aðir. Mynd: Skjáskot/RÚV

Embætti rík­is­sak­sókn­ara hefur áfrýjað hinu svo­kall­aða CLN-máli til Lands­réttar. Þetta stað­festir Helgi Magnús Gunn­ars­son, vara­rík­is­sak­sókn­ari, við Kjarnann.

Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, Sig­urður Ein­ars­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður bank­ans, og Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi banka­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, voru sýkn­aðir í CLN-­mál­inu í hér­aðs­dómi Reykja­víkur í júlí.

Í mál­inu eru Hreiðar Már, Sig­­­­urður og Magnús ákærð­ir fyr­ir lán til Chesterfield United Inc., Partridge Mana­gement Group S.A. og eign­­­­­ar­halds­­­­­­­­­fé­laga þeirra, sam­an­lagt um 510 millj­­­­ónir evra, eða sem nemur um 70 millj­­­­örðum króna á núver­andi geng­i. Í ákæru var því haldið fram að við lán­veit­ing­una hafi ýmsar reglur Kaup­­­­þings banka hf. verið brotn­­­­ar.

[adspot]Magn­úsi Guð­­­­munds­­­­syni er gefin að sök hlut­­­­deild í brotum Hreið­­­­ars Más og Sig­­­­urð­­­­ar.

CLN-­málið hefur hringl­ast í dóms­kerf­inu þar sem í fyrstu atrennu voru allir ákærðu sýkn­aðir fyrir hér­aðs­dómi, mál­inu var síðar aftur áfrýjað til Hæsta­réttar en nýjar upp­lýs­ingar um að Deutsche Bank í London hefði greitt þrota­búi Kaup­þings háar fjár­hæðir bár­ust áður en það var tekið fyrir í Hæsta­rétti að nýju. Hæsti­réttur taldi að rann­saka þyrfti málið betur og var því sýknu­dóm­ur­inn í hér­aði ómerktur og vísað til lög­legrar með­ferðar á ný. Hér­aðs­dómur vís­aði því frá og sú nið­ur­staða var kærð til Land­réttar sem vís­aði því aftur í hér­að. Þar voru hinir ákærður sýkn­aðir í júlí.

Sam­komu­lag við Deutsche Bank breytti mál­inu

Með grein­­­ar­­­gerð ákæru­­­valds til Hæsta­réttar í haustið 2017 fylgdi sam­komu­lag, sem gert hafði verið 12. des­em­ber 2016 milli Kaup­­­þings ehf. sem er félag sem sér um umsýslu eigna Kaup­­­þings banka hf. eftir að slitum á bank­­­anum lauk, og Deutsche Bank í London.

Með sam­komu­lag­inu luku aðilar þess ágrein­ingi sem rek­inn hefur verið fyrir ýmsum dóm­stólum um kröfur Kaup­­­þings ehf. á hendur Deutsche Bank AG um greiðslur vegna þeirra láns­hæf­istengdu skulda­bréfa sem ákæra í mál­inu tekur til.

Með sam­komu­lag­inu skuld­batt bank­inn sig til þess að greiða Kaup­­­þingi ehf. 212,5 millj­­­ónir evra gegn því að fallið verði frá mála­­­rekstr­in­­­um.

Fram kom einnig að annað sam­komu­lag með áþekku efni hafi verið gert við félögin Chesterfield United Inc. og Partridge Mana­gement Group SA, en þau voru kaup­endur að þeim láns­hæf­istengdu skulda­bréfum sem um ræðir í ákæru og þágu beint eða óbeint lán til þess frá Kaup­­­þingi banka hf.

[adspot]Deutsche Bank AG mun sam­­­kvæmt því sam­komu­lagi einnig hafa skuld­bundið sig til þess að greiða þeim félögum 212,5 millj­­­ónir evra, en að Kaup­­­þing ehf. muni við upp­­­­­gjör einnig fá um 90% af þeirri fjár­­­hæð. Sam­­­kvæmt þessu hefur Deutsche Bank AG skuld­bundið sig til þess að greiða 425 millj­­­ónir evra vegna þeirra lána sem Kaup­­­þing banki hf. veitti og ákæra tekur til og námu sam­tals 510 millj­­­ónum evra.

Sá horfni fundinn og því ekkert mannshvarf

Fjallað var um efn­is­at­riði þess­­­arar for­m­hliðar máls­ins á vef Hæsta­rétt­­ar á sínum tíma. Þar sagði: „Það er skil­yrði þess að sak­­­fellt verði fyrir umboðs­­­svik sam­­­kvæmt 249. gr. almennra hegn­ing­­­ar­laga að ákærður maður hafi haft til­­­­­tekna aðstöðu til þess að skuld­binda annan mann eða lög­­­að­ila, að hann hafi mis­­­notað þessa aðstöðu sína og með því valdið þeim, sem hann skuld­batt, veru­­­legri fjár­­­tjóns­hætt­u. Þar sem ákæra í mál­inu er reist á þeim grund­velli að lánin sem Kaup­­­þing banki hf. veitti eign­­­ar­halds­­­­­fé­lögum þeim sem í ákæru grein­ir, sam­tals að fjár­­­hæð 510.000.000 evr­­­­­ur, hafi ekki greiðst til baka og séu Kaup­­­þingi banka hf. glötuð, en nú hefur verið lagt fram sam­komu­lag sem felur í sér að Deutsche Bank AG hefur skuld­bundið sig til að greiða 425.000.000 evrur af þeirri fjár­­­hæð hefur Hæst­i­­­réttur tekið ákvörðun um að nauð­­­syn­­­legt verði að saka­­­málið gegn ákærðu verði í fyrstu umferð að minnsta kosti flutt um tvö atriði, sem lúta að formi þess.“

Þegar málið var tekið fyrir í hér­aðs­dómi fyrr í sumar full­yrti Hreiðar már að eftir að sam­komu­lagið milli Deutsche Bank og Kaup­þings hafi verið gert lægi ljóst fyrir að Kaupþing hefði ekki orðið fyrir tjóni af völdum við­skipt­anna. Í frétt RÚV um málið var eft­ir­far­andi haft eftir honum: „Ég vona að ég sé ekki ómál­efna­legur en þetta er svona eins og maður yrði ákærður fyrir manns­hvarf. Svo finnst sá horfni og það varð ekk­ert manns­hvarf. Og samt myndi maður sitja í dóms­sal ákærður fyrir hvarf.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hrun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár