Rúmlega 60 prósent landsmanna vilja að íslenska ríkið eigi viðskiptabanka

Einungis 13,5 pró­sent lands­manna eru nei­kvæðir gagn­vart því að ríkið eigi banka. Þeir sem vilja að ríkið sé eig­andi við­skipta­banka telja að ríkið sé ein­fald­lega betri eig­andi. Því fylgi öryggi og traust og arður af starf­sem­inni renni þá til almenn­ings.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynnti Hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið 10. desember síðastliðinn.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, kynnti Hvítbók um fram­tíð­ar­sýn fyrir fjár­mála­kerfið 10. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Mynd: Bára Huld Beck

Alls eru 61,2 pró­sent lands­manna jákvæðir gagn­vart því að íslenska ríkið sé eig­andi við­skipta­banka. Fjórð­ungur þjóð­ar­innar, 25,2 pró­sent, hefur enga fast­mót­aða skoðun á slíku eign­ar­haldi og ein­ungis 13,5 pró­sent Íslend­inga eru nei­kvæðir gagn­vart slíku eign­ar­haldi.

Þetta er meðal þess sem kom fram í rann­sókn sem Gallup vann fyrir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið og birt­ist með Hvítbók um fram­tíð­ar­sýn fyrir fjár­mála­kerfið sem kynnt var í síð­asta mán­uði. Markmið könn­un­ar­innar var að skoða ítar­lega traust til banka­kerf­is­ins á Íslandi, hverjar væru helstu ástæður fyrir van­trausti og hvað mætti betur fara. Úrtakið var 1.408 manns 18 ára og eldri af land­inu öllu. Þátt­töku­hlut­fall var 54,5 pró­sent.

[adspot]Þegar þeir sem eru jákvæðir gagn­vart því að ríkið sé eig­andi við­skipta­banka voru spurðir af hverju sögðu 24,4 pró­sent þeirra, eða tæp­lega fjórð­ungur, að ríkið væri betri eig­andi en einka­að­ili. Fimmt­ungur sagði að helsta ástæðan væri öryggi og/eða traust og 18,3 pró­sent vegna þess að arð­ur­inn færi þá til almenn­ings. Þá sögðu 15,7 pró­sent að helsta ástæða þess að þeir væru jákvæðir gagn­vart því að ríkið sé eig­andi við­skipta­banka vera þá að það þýddi að minni líkur væru á því að hlut­irnir myndu enda illa og að spill­ing og græðgi yrði minni.

Þeir sem voru nei­kvæðir gagn­vart því að ríkið væri eig­andi við­skipta­banka töldu það ekki vera hlut­verk rík­is­ins né að það væri hæft til þess að eiga við­skipta­banka. Þá væri hætta á spill­ingu og eign­ar­hald á við­skipta­banka væri þar að auki áhættu­samt fyrir ríkið.

Íslenska ríkið á sem stendur tvo banka, Íslands­banka og Lands­bank­ann. Heimild er fyrir því í fjár­lögum að selja allt hlutafé rík­is­ins í Íslands­banka og allt utan 34 pró­senta í Lands­bank­anum. Sam­an­lagt eigið fé bank­anna tveggja í dag er um 411 millj­arðar króna. Rík­is­bank­arnir greiddu eig­endum sínum 207 millj­arða króna í arð á árunum 2013-2018.

Í Hvít­bók um fram­tíð­ar­sýn fyrir fjár­mála­kerfið er fjallað ítar­lega um hvernig skuli standa að sölu á hlutafé í rík­is­bönk­un­um, Lands­bank­anum og Íslands­banka, og er horft til þess að nota skráðan markað til þess að end­ur­skipu­leggja eign­ar­hald með þeim hætti, að dreift og traust eign­ar­hald verði hluti af fjár­mála­kerf­inu til fram­tíð­ar.

Þá er einnig lagt til að það verði skoðað gaum­gæfi­lega hvernig megi efla sam­starf bank­anna á sviði inn­viða í fjár­mála­kerf­inu, til að auka hag­ræð­ingu í banka­kerf­inu og bæta þannig kjör til neyt­enda.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði við RÚV á fimmtu­dag að hún sæi ekki fyrir sér að rík­is­bank­arnir yrðu seldir á þessu ári. Hún sagði það þó ekki hafa verið sína sýn né rík­is­stjórn­ar­innar að halda Íslands­banka. Það sem skipti máli sé að ríkið verði áfram leið­andi fjár­festir í Lands­bank­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár