Hvaða leiðir koma til greina við sölu ríkisins á hlutabréfum í bönkum?

Formaður Sjálf­stæð­is­flokks­ins vill setja það ferli af stað, að selja hluta­bréf í Íslands­banka. Deildar mein­ingar eru um þessi mál, meðal stjórn­ar­flokk­anna. Að mörgu er að hyggja þegar kemur að sölu á eign­ar­hlut í bönkum, eins og Íslend­ingar þekkja vel.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, von­ast til þess að sölu­ferli á eign­ar­hlutum í Íslands­banka geti haf­ist á næstu vikum og mán­uðum. Hann lét þessi orð falla á dög­unum, en ekki liggur fyrir hvenær nákvæm­lega það gæti gerst, eða hvernig yrði staðið að því.

Ekki er ein­ing um málið meðal stjórn­ar­flokk­anna, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, og óvíst hvort málið fer af stað yfir höfuð, en heim­ild er þó í lögum til að gera það og vel gæti farið að fjár­mála­ráð­herra ákveði að stíga ákveðin skrif í þessum efnum, ekki síst eftir að Banka­sýsla rík­is­ins, sem heldur utan um eign­ar­hluti rík­is­ins í bönkum, hefur gefið grænt ljós á það.

En hvaða leiðir koma til greina, ákveði íslenska ríkið að selja eign­ar­hluti í Íslands­banka?

Nokkrar leiðir hafa verið nefndar, og verður hér að neðan fjallað um nokkra mögu­leika í þessum efnum. Leið­ar­vísir stjórn­valda - ef ákveðið verður að setja form­lega af staða sölu­ferli - verður vafa­lítið umfjöll­unin sem fram kemur í hvít­bók stjórn­valda um fjár­mála­kerfið, en þar er fjallað um hvernig ríkið getur staðið að því að end­ur­skipu­leggja eign­ar­hald á bönk­unum. Þó er ekki fjallað mikið um tækni­breyt­ingar og fram­tíð­ar­sýn sem þær eru farnar nú þegar að leiða fram.

1. Ríkið getur ákveðið að skrá Íslands­banka á markað og selja t.d. 10 til 25 pró­sent, með þeirri aðgerð. Þá myndi bank­inn verða kynntur sem fjár­fest­inga­kostur fyrir fjár­festum, inn­lendum og erlendum, og síðan yrði ákveðið að selja á til­teknu verð­bili. Þetta er í grunn­inn sama aðferð og notuð var þegar Arion banki var skráður á markað, en hann er tví­skráður bæði í á Íslandi og í Svíþjóð. Mark­aðsvirði Arion banka er nú 142,7 millj­arðar en eigið fé bank­ans um mitt þetta ár var 195 millj­arðar. Verðið er því 0,72 sinnum eigið fé, en það telst lágt í alþjóð­legum sam­an­burði. Eigið fé Íslands­banka var um 175,7 millj­arðar króna um mitt þetta ár, og yrði verðið á bank­anum því 127,4 millj­arðar króna, ef miðað er við mark­aðsvirði Arion banka eins og það er í dag.

2. Önnur leið sem stjórn­völd gætu farið, er að beita sér fyrir hag­ræð­ingu á fjár­mála­kerf­inu, og óska eftir sam­ein­ing­ar­við­ræðum Íslands­banka og t.d. Arion banka. Stjórnir bank­anna gætu þá form­lega sam­þykkt að setja það ferli af stað. Þannig gæti íslenska ríkið fengið verð­miða á eign sinni, og um leið beitt sér fyrir mik­ill breyt­ingu á fjár­mála­kerf­inu og hag­ræð­ingu. Þetta yrði engu að síð­ust vand­kvæðum bundið, þar sem sam­keppn­is­yf­ir­völd þyrftu að meta hvort sam­ein­ingin stæð­ist lög þar sem úr yrði stærsti banki lands­ins, með mikla mark­aðs­hlut­deild. Starfs­gildum gæti fækkað mikið við þetta og fjár­mála­þjón­usta breyst mikið, t.d. með færri úti­búum. En það sem ríkið gæti fengið út úr slíkri sam­ein­ingu væri hag­ræð­ing í fjár­mála­kerf­inu og mögu­leg sala á hluta­bréfum í bank­anum í leið­inni. Sam­an­lagt eigið fé Arion banka og Íslands­banka var um mitt þetta ár 370,7 millj­arðar en til sam­an­burðar var eigið fé Lands­bank­ans, stærsta banka lands­ins, 240 millj­arðar.

3. Stjórn­völd gætu einnig ákveðið að sam­eina rík­is­bank­ana tvo, Íslands­banka og Lands­bank­ann, og beitt sér þá fyrir mik­ill hag­ræð­ingu í leið­inni. Sömu álita­mál og vakna við mögu­lega sam­ein­ingu Íslands­banka og Arion banka, myndu þá vakna upp. Það er hvort það stand­ist sam­keppn­is­lög að sam­eina bank­ana. En það er þó undir þeim merkjum, að íslenska ríkið á báða bank­anna í dag og heldur í raun á þessum tveimur vöru­merkjum á grunni falskrar sam­keppni, sé horft á málin frá því sjón­ar­horni.

4. Annar mögu­leiki fyrir stjórn­völd væri ein­fald­lega að aug­lýsa eign­ar­hlut í Íslands­banka til sölu, og kanna áhug­ann hjá fjár­festum. Það væri hægt að skil­yrða þátt­tök­una við til­tekna teg­und fjár­festa, t.d. líf­eyr­i­s­jóði. Þeir eru nú þegar veru­lega umsvifa­miklir í atvinnu­lífi, sem eig­endur rúm­lega helm­ings alls hluta­fjár á skráðum mark­aði, og einnig sem umfangs­miklir eig­endur á skulda­bréfa­mark­aði.

Allt yrðu þetta flækju­stig sem stjórn­völd þyrftu að taka afstöðu til. Þar myndu einnig koma upp kunn­ug­leg álita­mál um tengda aðila, per­sónur og leik­endur, og hvort gagn­sæi sé fyrir hendi að baki enda­eig­enda þeirra félaga sem myndu kaupa hluta­bréf í bönk­unum.

5. Fari svo að stjórn­völd reyni að leggja upp með það að fá erlenda fjár­festa - t.d. banka frá Norð­ur­lönd­unum - að íslenska fjár­mála­kerf­inu, þá yrði það vafa­lítið þungsótt sökum stöð­unnar sem nú er uppi í fjár­mála­þjón­ustu í heim­inum. Bankar hafa víða verið að minnka hratt umfang sitt og mikil hag­ræð­ing hefur átt sér stað hjá stórum alhliða bönkum. Nefna má upp­sagnir á þús­undum starfs­manna hjá nor­rænum bönkum og einnig stórum alþjóð­legum bönkum - eins og HSBC, Royal Bank of Scotland og Deutsche Bank - sem dæmi þar um.

Ekki einfalt

Hvernig sem á málin er litið þá er það nokkuð mikil vand­kvæðum bundið fyrir stjórn­völd að losa um eign­ar­hluti sína í bönkum, um þessar mundir. Sé horft á stefnu stjórn­ar­flokk­anna - Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks­ins - þá er hún ólík þegar að þessu kemur, þrátt fyrir að heim­ild til sölu á eign­ar­hlut­unum sé fyrir hendi. Líklegt er að þetta mál kæmi eins og sprett­hlaup út á jarð­sprengju­svæði, ef það yrði ekki sam­staða um málið í upp­hafi þess.

En það er líka áhætta fyrir ríkið, að aðhaf­ast lítið og breyta litlu í rekstri bank­anna, enda hefur arð­semin verið slök. Það er þó ekki sér­ís­lenskt fyr­ir­bæri, heldur hafa bankar víða um heim átt í vax­andi erf­ið­leikum með að ná við­un­andi arð­semi á und­an­förnum árum, eins og fjallað var um nýlega í ítar­legri grein séfræð­inga og fram­kvæmda­stjóra hjá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu. Tækni­breyt­ingar eru að ýta undir mikið fram­boð af fjár­mála­þjón­ustu, t.d. á sviði greiðslu­miðl­unar, sem gerir hefð­bundnum alhliða bönkum erfitt fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár