Opinn fyrir því að selja banka til að fjármagna samgöngusáttmála

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra segir að fleiri mögu­leikar séu til staðar til að afla 60 millj­arða króna til sam­göngu­fram­kvæmda á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en að setja á veggjöld. Einn slíkur mögu­leiki er að selja rík­is­banka.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að þegar sam­komu­lag sam­komu­lag um upp­­­bygg­ingu sam­­göng­u­inn­viða og al­­menn­ings­­sam­­gangna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sé skoðað sé aug­ljóst að aðrir fjár­mögn­un­ar­mögu­leikar en veggjöld séu til staðar. „Ég hef nefnt dæmi um fjar­mögn­un­ar­leið sem ríkið get­ur aug­ljós­lega sótt í sem er að losa um eign­ar­hald á fjár­mála­fyr­ir­tækj­um og þannig aukið getu sínu til að fara í stofn­vega­fram­kvæmd­ir.“ Þetta kemur fram á mbl.is.

[links]Umrætt sam­komu­lag var und­ir­ritað við Tjarn­ar­götu í gær en sveit­ar­fé­lögin sem eiga aðild að sam­komu­lag­inu eru Garða­bær, Hafn­ar­fjörð­ur, Kópa­vog­ur, Mos­fells­bær, Reykja­vík og Sel­tjarn­ar­ness. Heild­ar­um­fang er metið um 120 millj­arðar króna, en ríkið mun leggja til 45 millj­arða, sveit­ar­fé­lögin 15 millj­arða og svo mun sér­stök fjár­mögn­un, og þá mögu­lega veggjöld að ein­hverju leyti, fjár­magna afgang­inn, eða sem nemur um 60 millj­örð­um.

Nú liggur ljóst fyrir að Bjarni er opinn fyrir því að sækja þá 60 millj­arða króna, að minnsta kosti að hluta, með sölu á bönkum.

Bjarni hefur rætt umtals­vert um mögu­lega banka­sölu und­an­farið, en ríkið á bæði Lands­bank­ann og Íslands­banka. Heim­ild er í fjár­lögum til að selja allt hlutafé í Íslands­banka og allt að 34 pró­sent hlut í Lands­bank­an­um. Bjarni sagð­i við RÚV í gær að hann von­aðist til þess að salan á Íslands­banka gæti haf­ist á næstu vik­um.

[adspot]Það yrði gert á grund­velli til­lögu frá Banka­sýslu rík­is­ins, sem hefur það hlut­verk að halda á eign rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækj­u­m.

Greint var frá því í Mark­aðnum byrjun mán­aðar að í nýlegu minn­is­blaði Banka­sýsl­unnar væri lagt til að annað hvort ætti að selja að minnsta kosti 25 pró­­sent hlut í Íslands­­­banka í hluta­fjár­­út­­­boði og skrá þau bréf tví­­hliða á mark­að, eða að selja allt að öllu hlutafé í bank­­anum með upp­­­boðs­­leið þar sem önnur fjár­­­mála­­fyr­ir­tæki eða sjóðir geti gert til­­­boð í hann. Banka­sýslan bíður nú eftir réttu tíma­setn­ing­unni til að leggja það minn­is­blað fram opin­ber­lega.

Sam­an­lagt eigið fé bank­anna tveggja í dag er um 417 millj­­­arðar króna. Rík­­­is­­­bank­­­arnir greiddu eig­endum sínum 207 millj­­­arða króna í arð á árunum 2013-2018.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár