Hrunið hér miklu dramatískara og hafði meiri bein áhrif en annars staðar

Kristrún Tinna Gunn­ars­dóttir, sem sat í starfs­hópnum sem skrif­aði Hvítbók um fram­tíð­ar­sýn fyrir fjár­mála­kerfið, segir að það hafi komið á óvart hversu sterk nei­kvæð orð Íslend­ingar not­uðu til að lýsa skoðun sinni á banka­kerf­inu.

„Maður átt­aði sig nátt­úru­lega á því að umræðan er mjög nei­kvæð og fólk er mjög tor­tryggið. Það er í raun­inni mjög eðli­legt í ljósi þess að það var ákveðið traust sem var brotið þarna fyrir tíu árum síðan. Það sem gerð­ist var í raun ekki ein­skorðað við Ísland heldur datt traust á banka­kerfum um allan heim niður í því áfalli. En hins vegar hefur bæt­ingin og þró­unin á Íslandi verið hæg­ari en það sem við höfum séð í öðrum löndum. Sem end­ur­speglar kannski í fyrsta lagi það að hrunið hér var miklu dramat­ískara og hafði miklu meiri bein áhrif á alla Íslend­inga.“

Þetta sagði Kristrún Tinna Gunn­ars­dóttir, hag­fræð­ingur hjá Oliver Wyman í Svíþjóð sem sat í starfs­hópnum sem skrif­aði Hvítbók um fram­tíð­ar­sýn fyrir fjár­mála­kerfið, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut á fimmtu­dag.

Hægt er að sjá stiklu úr við­tal­inu hér að neðan:

Þar ræddi hún meðal ann­ars um rann­sóknir sem unnar voru fyrir Hvít­bók­ar­hóp­inn sem sýndu að 61,2 pró­sent lands­manna er jákvæður fyrir því að ríkið eigi banka og að ein­ungis 16 pró­sent treysti banka­kerf­inu en 57 pró­sent treysta því alls ekki.

Í nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­innar kom einnig fram að þau þrjú orð sem flestum Íslend­ingum dettur í hug til að lýsa banka­­kerf­inu á Íslandi eru háir vext­ir/­­dýrt/ok­­ur, glæp­a­­starf­­sem­i/­­spill­ing og græðgi.

[adspot]Þar á eftir koma orð eins og van­­traust, hrun og há laun/­­bón­us­­ar/eig­in­hags­muna­­semi.

Kristrún Tinna sagði að það hafi komið á óvart hversu sterk orð hafi verið notuð. „Það er mjög erfitt að reka banka þar sem það er svona ofboðs­lega mikið van­traust þannig að ég held að það und­ir­striki hvað það er mik­il­vægt að eiga sam­tal um þetta. Og jafn­vel taka upp kynn­ing­ar­mynd­bönd til að hjálpa almenn­ingi að fá efni sem er á svona auð­veldu formi til að melta.

[links]Við erum alveg með hóf­legar vænt­ingar um það að fólk sé ekki að fara að lesa þessar 300 blað­síður [sem Hvít­bókin er] og ég skil það bara mjög vel, en ég held samt að þetta séu mál­efni sem eigi mjög mikið erindi við almenn­ing. Maður finnur það.“

Hún seg­ist hafa starfað mikið erlendis á und­an­förnum árum og oft talað um að á Íslandi sé fólki treyst þar til að sönnuð sé á það sekt eða það brýtur gegn traustinu á annan hátt. „ Í stórum hluta heims­ins er því öfugt farið. Þú treystir engum fyrr en þú ert búinn að kynn­ast honum per­sónu­lega og byggja upp traust og orð­spor. Og ég upp­lifi að það sé svo­lít­ill við­snún­ingur [á Íslandi], sér­stak­lega eftir hrunið. Skilj­an­lega. En ég held að við verðum að reyna að vinna okkur í sam­ein­ingu út úr því og leyfa fólki að eiga sam­talið og hlusta á hvort annað.“

Hægt er að horfa á þátt­inn í heild sinni hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvítbók

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár