Eru ekki að tala fyrir því að bankarnir verði seldir á einni nóttu

Kristrún Tinna Gunn­ars­dóttir, sem sat í Hvít­bók­ar­hópnum, segir að arð­semi rík­is­bank­anna á und­an­förnum árum hafi að uppi­stöðu í raun verið papp­írs­hagn­aður. Ekki sé hægt að vænta þess að hún verði svo há í fram­tíð­inni.

„Við erum alls ekki að tala fyrir því að allt banka­kerfið eða allur hlutur rík­is­ins sé seldur á einni nóttu. En það gæti mögu­lega, til lengri tíma litið, verið betra að fá inn einka­að­ila þar. Þá er auð­vitað gríð­ar­lega mik­il­vægt að reglu­verkið og eft­ir­litið sé traust.“ Það eigi að tryggja að Ísland lendi ekki í sam­bæri­legum hremm­ingum og síð­ast þegar bank­arnir voru í eigu einka­að­ila.

Þetta segir Kristrún Tinna Gunn­ars­dótt­ir, hag­fræð­ingur hjá Oli­ver Wyman í Sví­þjóð sem sat í starfs­hópnum sem skrif­aði Hvít­bók um fram­tíð­ar­sýn fyrir fjár­mála­kerf­ið, í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarn­ans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut sem sýnt verður í kvöld. Þátt­ur­inn hefst klukkan 21 og hægt er að sjá stiklu úr honum hér að neð­an:

Kristrún Tinna segir að það sé alltaf áhætta af fjár­fest­ingum og óvissa ríki um verð­þróun fjár­mála­fyr­ir­tækja sem ríkið taki á sig sem eig­andi. Auk þess sé það líka var­huga­vert að vera með mörg egg í sömu körf­unni.

[adspot]Þótt arð­greiðslur úr bönk­unum sem end­ur­reistir voru eftir banka­hrunið hafi hlaupið á hund­ruð millj­örðum króna á síð­ustu árum, og að mestu runnið til rík­is­ins, þá sé það tíma­bil á enda runnið að mati Kristrúnar Tinnu. „Þegar fjár­munir voru færðir frá gömlu bönk­unum yfir til þeirra nýju þá var gert verð­mat á eign­unum sem var hóf­lega áætlað og því hafa verið alls­konar end­ur­út­reikn­ingar sem hafa skapað hagnað hjá bönk­unum sem er ekki af reglu­legri starf­semi, í raun­inni getur maður sagt hálf­gerðan papp­írs­hagnað. Núna er það tíma­bil að líða undir lok þannig að maður sér það bara á upp­gjörum bank­anna að það er núna grunn­rekst­ur­inn sem er að skila arð­inum. Og þá verður bara skýr­ara og skýr­ara að grunn­rekstur bank­anna er að skila lægri ávöxtun.“

[links]Hún segir að það hafi verið jákvætt að ríkið hafi verið sá aðili sem hafi hagn­ast á þeirri óvenju­lega háu arð­semi sem verið hafi af banka­starf­semi vegna þess­ara sér­stöku aðstæðna á und­an­förnum árum og óvissa ríkti um raun­veru­legt virði eigna bank­anna. „En núna erum við í raun­inni að fara inn í aðeins eðli­legra rekstr­ar­um­hverfi þar sem að grunn­rekst­ur­inn þarf að standa undir þeirri arð­sem­is­kröfu sem er gerð.“

Í við­tal­inu ræðir Kristrún Tinna einnig ýmsa aðra anga Hvít­bók­ar­innar, meðal ann­ars þær kann­anir sem starfs­hóp­ur­inn lét gera um við­horf almenn­ings til fjár­mála­kerf­is­ins, álagn­ingu á íbúð­ar­lánum hér­lendis í sam­an­burði við hin Norð­ur­löndin og sér­tæka skatta sem leggj­ast á íslenska banka en ekki sam­keppn­is­að­ila þeirra inn­an­lands og erlendis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár