Ekki marktækur munur á álagningu á íbúðalán hér og á Norðurlöndunum

Kristrún Tinna Gunn­ars­dóttir, sem sat í starfs­hópnum sem skrif­aði Hvítbók um fram­tíð­ar­sýn fyrir fjár­mála­kerfið, segir að sér­tækir skattar á banka legg­ist að lokum á neyt­endur. Hún er gestur 21 á Hring­braut í kvöld.

„Við fest­umst stundum í því að hugsa að banki er bara banki. Sem er alls ekki raunin. Maður þarf eig­in­lega að brjóta niður að banka­þjón­usta eru margir mis­mun­andi þjón­ustu­þættir. Það eru íbúða­lánin, fyr­ir­tækja­lán, greiðslu­þjón­usta og svo fram­vegis.

Í vinn­unni skoð­unum við líka hvern og einn þess­ara flokka og hverjir eru sam­keppn­is­að­ilar á hverjir eru sam­keppn­is­að­ilar á hverjum stað fyrir sig. Þá kemur mjög skýrt í ljós þar sem sam­keppnin er mikil er álagn­ingin minni. Eins og til dæmis á íbúða­lánum þá er ekki mark­tækur munur á álagn­ingu bank­ana á Íslandi og á Norð­ur­lönd­unum.“

Þetta segir Kristrún Tinna Gunn­ars­dóttir, hag­fræð­ingur hjá Oliver Wyman í Svíþjóð sem sat í starfs­hópnum sem skrif­aði Hvítbók um fram­tíð­ar­sýn fyrir fjár­mála­kerfið, í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut annað kvöld. Þátt­ur­inn hefst klukkan 21 á fimmtu­dag og hægt er að sjá stiklu úr honum hér að neðan:

Á Íslandi hefur skap­ast sam­keppni á íbúða­lána­mark­aði á und­an­förnum árum vegna þess að líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafa sótt meira inn á þann markað. Þeir þurfa ekki að greiða ýmsa sér­tæka skatta sem bankar þurfa að greiða og hafa því getað boðið upp á mun betri kjör. Sem stendur býður Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna til að mynda sjóðs­fé­lögum sínum upp á 2,36 pró­sent verð­tryggða breyti­lega vexti á meðan að Arion banki býður sínum við­skipta­vinum upp á 4,22 pró­sent verð­tryggða breyti­lega vexti. Bankinn býður þó upp á 80 pró­sent hámarks­lán á meðan að líf­eyr­is­sjóð­ur­inn býður upp á 70 pró­sent.

Kristrún Tinna segir að sér­tækir skattar sem lagðir séu á fjár­mála­fyr­ir­tæki hafi gríð­ar­lega mikil áhrif. „Og auð­vitað, eins og með flesta skatta, enda þeir að lokum á neyt­endum. Þannig að að því marki sem bank­arnir eru að keppa við líf­eyr­is­sjóði sem bera ekki slíka skatta þá auð­vitað mynd­ast ákveðnir skrýtnir hvatar í kerf­inu.“

Í við­tal­inu ræðir Kristrún Tinna einnig ýmsa aðra anga Hvít­bók­ar­innar og sér­stak­lega þá umræðu sem sprottið hefur upp um eign­ar­hald rík­is­ins á bönk­unum í kjöl­far þess að Hvít­bókin var birt í síð­asta mán­uði. Hún ræðir einnig þær kann­anir sem starfs­hóp­ur­inn lét gera um við­horf almenn­ings til fjár­mála­kerf­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár