Áslaug Arna frestar brottvísun barna sem hafa verið lengur en 16 mánuði

Dóms­mála­ráð­herra hefur ákveðið að fresta brott­vísun þeirra barna sem leitað hafa eftir hæli á Íslandi, og hafa verið í kerf­inu í meira en 16 mán­uði. Að óbreyttu ætti Muhammed Zohair Faisal því ekki að verða vísað úr landi á morgun.

Muhammed Zohair Faisal.
Muhammed Zohair Faisal. Mynd: Change.org áskorun til ríkisstjórnar

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra hefur ákveðið að fresta brott­vísun barna í þeim málum þar sem máls­með­ferð hefur farið yfir 16 mán­uði. Það þýðir að óbreyttu að hætt verður við brott­vísun Muhammeds Zohair Faisal sem vísa átti úr landi á morgun, 3. febr­úar, en hann hefur dvalið hér­lendis í meira en tvö ár. Alls hafa tæp­lega 18 þús­und manns skrifað undir áskorun til stjórn­valda um að fresta brott­vísun Muhammeds og fjöl­skyldu hans um helg­ina.

Dóms­mála­ráð­herra ætlar einnig að kynna í rík­is­stjórn áform um að stytta hámarks­tíma máls­með­ferðar úr átján mán­uðum í sextán í hæl­is­málum þar sem börn eiga í hlut.

Í frétt sem birt­ist á vef dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins í dag segir að að sam­kvæmt lögum um útlend­inga sé heim­ilt að veita útlend­ingi dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða að til­teknum skil­yrðum upp­fylltum, hafi hann sótt um alþjóð­lega vernd og ekki fengið nið­ur­stöðu í máli sínu á stjórn­sýslu­stigi innan 18 mán­aða.

„Nýlega hefur athygli dóms­mála­ráð­herra verið vakin á því að í ein­stökum málum geti tím­inn orðið óhæfi­lega langur. Dóms­mála­ráð­herra vill leggja áherslu á að máls­með­ferð­ar­tími í vernd­ar­kerf­inu sé styttur eins og frekast er kostur. Tölu­verður árangur náð­ist í fyrra við að hraða með­ferð mála hjá Útlend­inga­stofnun. Mik­il­vægt er að halda áfram á þeirri braut. Sér­stak­lega þarf að leggja áherslu á að for­gangs­raða í þágu barna og marka slíkri máls­með­ferð eins stuttan tíma og kostur er.“

[adspot]Þar segir að ráð­herr­ann hafi heim­ild til að setja í reglu­gerð nán­ari ákvæði um máls­með­ferð Útlend­inga­stofn­unar, kæru­nefndar útlend­inga­mála og lög­reglu, meðal ann­ars heim­ildir til að úrskurða um mál á ein­faldan og skil­virkan hátt með vísan til fyrri for­dæma. Enn fremur hafi ráð­herra heim­ild til að mæla nánar fyrir um máls­með­ferð­ar­tíma. „Í ljósi alls ofan­greinds mun dóms­mála­ráð­herra kynna í rík­is­stjórn áform um að stytta hámarks­tíma máls­með­ferðar úr átján mán­uðum í sextán í hæl­is­málum þar sem börn eiga í hlut. Standa vonir til þess að þetta verði aðeins fyrsta skrefið í að stytta með­ferð slíkra mála. Ráðherra leggur áherslu á að þetta sé hámarks­tími og máls­með­ferð eigi eigi alla jafna að taka skemmri tíma. Vilji lög­gjafans og stjórn­valda er skýr. Taka ber sér­stakt til­lit til hags­muna barna við afgreiðslu umsókna um alþjóð­lega vernd.“

Þing­manna­nefnd um mál­efni útlend­inga fund­aði fyrir helgi um stöðu barna og fólks í við­kvæmri stöðu. Áslaug Arna hefur falið nefnd­inni að fylgja þeirri vinnu áfram eftir.

Í til­kynn­ing­unni á vef ráðu­neyt­is­ins segir að Ísland taki nú á móti tölu­vert miklum fjölda umsókna um vernd. Ljóst er að til að ofan­greind mark­mið um máls­hraða náist þarf bæði að tryggja kerf­inu næga fjár­muni til að valda verk­efn­inu og jafn­framt að tryggja að efn­is­reglur hér á landi séu til þess fallnar að greina hratt á milli þeirra sem þarfn­ast verndar og ann­arra.

Þessar breyt­ingar verða útfærðar nánar í reglu­gerð. Þegar hefur verið ákveðið að fresta brott­vísun barna í þeim málum þar sem máls­með­ferð hefur farið yfir sextán mán­uði.“

Tæplega 18 þúsund manns skrifað undir

Á síð­unni þar sem und­ir­skriftun er safnað til að skora á rík­is­stjórn Íslands að bregð­ast við í máli Muhammeds kemur fram að vísa ætti drengnum og fjöl­skyldu hans til Pakistan á morgun. Þar biði þeirra ekk­ert nema óvissa en þangað hefur dreng­ur­inn aldrei komið og for­eldr­arnir ekki í tíu ár. Þau hafi ástæðu til að ótt­ast hvað tekur við þeim í Pakistan og staða barns­ins yrði miklu verri en hér á landi. „Muhammed er ein­stak­lega heill­andi strákur, brosmildur, hlýr og lífs­glaður. Hér hefur Muhammed búið í meira en tvö ár og tengst sam­fé­lag­inu sterkum böndum. Hann er búinn að eign­ast marga vini, leik­skóla­fé­laga á Dverga­steini og skóla­fé­laga í Vest­ur­bæj­ar­skóla og Skýja­borgum. Hann talar lýta­lausa íslensku, er frá­bær náms­maður svo eftir er tekið og hefur tek­ist að bræða hjörtu allra þeirra sem hafa kynnst honum.“

Alls hafa yfir 17.700 manns skrifað undir áskor­un­ina þegar þetta er skrifað, en hún var sett af stað á föstu­dag.

Í text­anum sem fylgir und­ir­skrifta­söfn­un­inni, sem sett var af stað af blaða­mann­inum Val Grett­is­syni, segir að barna­sátt­máli Sam­ein­uðu þjóð­anna kveði á um að það sem barni sé fyrir bestu skuli ávallt hafa for­gang í ákvörð­unum stjórn­valda. Það feli meðal ann­ars í sér að tryggja líf barns, þroska og öryggi, óháð laga­legri stöðu eða athafna for­eldra hans eða hennar. „Þegar máls­með­ferð ungs barns hefur staðið yfir í rúm­lega tvö ár bera stjórn­völd ríkar skyldur gagn­vart barn­inu, sem dvalið hefur hér stóran hluta ævi sinnar og aldrei séð heima­land for­eldr­anna. Íslensk stjórn­völd hafa gefið það út að Ísland skuli verða besta land í heimi fyrir börn. Sýnum það í verki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár