Ein vika í Ástralíu: Eldar, flóð, sandbyljir og haglél

Ástralía hefur fengið að finna fyrir dekkri tónum lit­rófs nátt­úru­afl­anna á aðeins einni viku. Frum­byggjar lands­ins segja að fyr­ir­byggj­andi aðgerðir, sem for­feður þeirra stund­uðu, hefðu getað bjargað miklu.

Maður heldur á hagléli á stærð við golfbolta fyrir framan þinghúsið í Canberra þann 20. janúar.
Maður heldur á hagléli á stærð við golf­bolta fyrir framan þing­húsið í Canberra þann 20. jan­úar. Mynd: EPA

Skóg­ar­eldar, skyndi­flóð, sand­byljir og haglél á stærð við golf­bolta. Ástralía hefur fengið að finna fyrir dekkri tónum lit­rófs nátt­úru­afl­anna á aðeins einni viku. Þykkur reykur lagð­ist yfir höf­uð­borg­ina Canberra og loka þurfti flug­vell­inum tíma­bundið. Þrír banda­rískir slökkvi­liðs­menn lét­ust er flug­vél sem notuð var til að berj­ast við skóg­ar­eldana hrap­aði í dag í suð­ur­hluta fylk­is­ins Nýja Suður-Wales. Orsakir slyss­ins eru enn ókunnar.

Þar með hafa skóg­ar­eld­arnir heimt 32 manns­líf, þar af sjö slökkvi­liðs­manna.

Ástralía er víð­áttu­mikið land og þar getur veðrið verið ólíkt frá einum stað til ann­ars. Nú er hásumar og miklir skóg­ar­eldar hafa geisað í kjöl­far for­dæma­lausra þurrka vors­ins. Land­svæði á stærð við Ísland hefur orðið eldi að bráð. Verst hefur ástandið verið á suð­aust­ur­strönd­inni, í Vikt­or­íu­fylki og Nýja Suður-Wales. Um 2.000 heim­ili hafa orðið eld­unum að bráð og um helm­ingur Ástrala seg­ist hafa orðið fyrir beinum áhrifum ham­far­anna.

Síðustu daga hefur mikil úrkoma verið á ýmsum svæðum, meðal ann­ars í hluta Nýja Suður-Wales. Nú hefur stytt upp og hiti farið hækk­andi á nýjan leik. Enn á ný hafa því verið gefnar út við­var­anir vegna skóg­ar­elda. Þar loga eldar á 65 stöðum og ekki hefur tek­ist að hefta útbreiðslu nítján þeirra. Í Sydney, höf­uð­borg fylk­is­ins, er spáð yfir 40 stiga hita og hvass­viðri.

Of seint að yfirgefa hættusvæði

„Þú ert í hættu og þarft að bregð­ast strax við til að kom­ast af.“

Þannig hljóm­uðu neyð­ar­boð sem íbúar í bænum Buldah í Vikt­or­íu­fylki, rétt við landa­mærin að Nýja Suður-Wales, fengu í gær. Eldar á svæð­inu virt­ust þá vera að breið­ast hratt út og mikil hætta blasa við. Var íbú­unum til­kynnt að það væri of seint að yfir­gefa svæðið. Besti kost­ur­inn væri að leita skjóls inn­an­dyra og loka gluggum. Eða fara ofan í vatn.

Þetta hættu­á­stand ríkti í þrjár klukku­stundir þar til slökkvi­liðs­mönnum tókst að ná tökum á útbreiðslu eld­anna. Enn eru íbú­arnir þó beðnir að vera á varð­bergi. Hættan er ekki liðin hjá.

Í Vikt­or­íu­fylki, þar sem stór­borg­ina Melbourne er m.a. að finna, féll brún­leit rign­ing úr lofti á mörgum stöðum og fresta varð leikjum á opna ástr­alska tennis­mót­inu. Þá var sund­laugum lokað og Yarra-áin varð brún af ösku. Þrátt fyrir úrkom­una kvikn­uðu 44 eldar vegna eld­inga.

Rign­ing­arnar á þessum slóðum eru ekki endi­lega kær­komnar. Þær skapa hættu á flóðum og einnig aur­skriðum. Fylk­is­stjór­inn Daniel Andrews segir að engu að síður sé það ástand skárra en „heitir norðan vindar“.

Úrkoman sem féll í Viktoríu-fylki og Nýja Suður-Wales orsak­aði flóð á sumum stöðum en í aust­ur­hluta þeirra, þar sem eld­arnir eru mestir, nægði hún ekki til að slökkva þá. Til þess þarf hún að vera yfir 100 mm. Ekki er von á að það ger­ist fyrr en í febr­úar.

Ekki leitað til frumbyggja

Eins og rakið var í frétta­skýr­ingu Kjarnans nýverið kom margt til sem varð til þess að skóg­ar­eld­arnir í Ástralíu þetta sum­arið urðu meiri en oft­ast áður. Þar spila miklir þurrkar og met­hiti stórt hlut­verk.

Full­trúar frum­byggja Ástrala hafa einnig bent á að við­hald skóga með eldum hafi verið stundað í álf­unni í þús­undir ára, löngu áður en Bretar og aðrir Evr­ópu­búar stigu þar á land. Fyr­ir­byggj­andi eldar sem frum­byggjarnir kveiktu eru kall­aðir „menn­ing­ar­brunar“ (e. cultural burns) og höfðu það hlut­verk að brenna með skipu­lögðum hætti sprek og lauf sem ann­ars yrðu stór­kost­legur elds­matur í kjarr­eldum sem árlega kvikna af nátt­úru­legum orsökum.

[links]Eftir að skóg­ar­eld­arnir miklu kvikn­uðu af krafti á síð­asta ári var kallað eftir því að þessi eld­varn­ar­tækni frum­byggj­anna yrði könnuð og tekin upp með skipu­legum hætti. Það hefði þurft að gera fyrr, segir Shannon Foster, kenn­ari við Tækni­há­skól­ann í Sydney, sem hefur meðal ann­ars það hlut­verk að standa vörð um þekk­ingu þjóðar sinnar, D'harawal-fólks­ins.

„Kjarrið verður að brenna,“ hefur BBC eftir henni. Hún bendir á að frum­byggjar líti á landið sem lif­andi veru, móður sína, sem haldi lífi í fólki. Menn­ing­ar­bruni hafi ekki það hlut­verk að taka frá land­inu heldur að við­halda því og gefa til baka.

Eldar sem viðhalda vistkerfum

Stjórn­völd í Ástralíu kveikja fyr­ir­byggj­andi elda en Foster segir að þeirra aðferðir séu aug­ljós­lega ekki að virka. „Þeir eldar eyði­leggja allt. Það er barna­leg leið við að stjórna kjarr­eldum og það er ekk­ert til­lit tekið til frum­byggj­anna sem þekkja landið best.“

Hún segir að menn­ing­ar­bruni varð­veiti landið en eyði­leggi það ekki. Þó að þessum sið hafi smátt og smátt verið nær útrýmt eftir land­nám Evr­ópu­búa sé þekk­ingin enn fyrir hendi. En eng­inn vilji sé hjá yfir­völdum að leita í þann brunn. Sjálf seg­ist Foster boðin og búin að veita upp­lýs­ingar og ráð­gjöf.

Hún ótt­ast hins vegar að þau land­svæði sem orðið hafa hvað verst úti í eld­unum nú verði ekki end­ur­heimt heldur að land­notkun verði breytt. „Frum­byggjarnir hafa gætt þessa lands svo lengi og að sjá það eyði­leggj­ast vegna þess að eng­inn vildi leyfa okkur að hugsa um það er hræði­legt. Það er ekki eins og við höfum ekki varað ykkur við.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

náttúruhamfarir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár