Veturinn sem varla varð (á suðvesturhorninu)

Vetr­ar­ins sem við höfum nú kvatt verður minnst fyrir sögu­lega úrkomu sem olli nátt­úru­ham­förum á Seyð­is­firði. Hann ein­kennd­ist auk þess af skyndi­hlýnun sem varð til þess að með ein­dæmum snjó­létt var á Suð­vest­ur­landi.

Gervitunglamynd sem tekin var 24. febrúar sýnir vel hversu snjólétt var suðvestanlands á meðan aðrir landshlutar voru huldir snjó.
Gervi­tungla­mynd sem tekin var 24. febr­úar sýnir vel hversu snjó­létt var suð­vest­an­lands á meðan aðrir lands­hlutar voru huldir snjó. Mynd: MODIS

Farsótt, eld­gos og óvenju­legt tíð­ar­far. Hér erum við ekki að tala um árið 1918 heldur und­an­gengna mán­uði sem hafa verið sér­stakir að mörgu leyti. Enginn frosta­vetur varð en nátt­úru­ham­fara á Seyð­is­firði vegna sögu­legrar úrkomu sem kom á „raka­færi­bandi“ með aust­an­átt­inni verður ævin­lega minnst þegar vet­ur­inn 2020-2021 mun bera á góma. Fleira var öðru­vísi en við eigum að venj­ast, sér­stak­lega ef miðað er við fyrra­vetur sem var ill­viðra­samur. Fyrstu mán­uðir árs­ins voru nær snjó­lausir í Reykja­vík og víðar á suð­vest­an­verðu land­inu var snjó­létt. Hell­is­heiðin var til dæmis aldrei ófær en í fyrra­vetur var henni lokað tólf sinnum í sex klukku­tíma eða lengur í senn. Sömu sögu er að segja af Mos­fells­heið­inni. Henni þurfti aldrei að loka í vetur en var lokað sextán sinnum í fyrra.

Einar Svein­björns­son veð­ur­fræð­ingur og rit­stjóri veð­ur­vefs­ins Bliku, segir að vet­ur­inn sem nú er lið­inn sam­kvæmt okkar gamla tíma­tali, hafi verið „dálítið sér­stakur“ og algjör and­stæða við síð­asta vetur. Hann minnir þó á að það sé eitt helsta ein­kenni veð­ur­fars hér á landi að það komi okkur alltaf á óvart. „Sér­stak­lega vegna þess að við getum ekki treyst því að hlutir end­ur­taki sig nema þá á nokk­urra ára fresti“.

[adspot]

En byrjum á byrj­un­inni.

Tíð­ar­farið í nóv­em­ber var fremur hag­stætt og eðli­legt, rifjar Einar upp. Breyti­leg veðr­átta réði ríkjum líkt og við eigum að þekkja á þessum árs­tíma. Það komu stormar og hinn sígildi kulda­kafli svo fátt eitt sé nefnt.

Síðan kom des­em­ber.

Snjólétt en storma­samt var þá almennt á land­inu en sér­stakir veð­ur­at­burðir áttu sér svo stað sem ekki finn­ast dæmi um frá upp­hafi mæl­inga.

„Það sem stendur upp úr fyrst og fremst er hversu ofboðs­lega úrkomu­samt var á aðvent­unni á Aust­ur­landi sem olli svo hinum miklu skriðu­föllum á Seyð­is­firði,“ segir Einar. „Þessar rign­ingar voru veru­lega eft­ir­tekt­ar­verðar og skera í augu í lengri tíma sam­an­burði. Þær voru óvenju­legar á alla tíma­kvarða, hvort sem við horfum á nokkra daga í senn, vikur eða mán­uð­inn í heild sinni.“

Skýr­ing­anna er að leita í því að veð­ur­kerfin „læst­ust í ákveðnu fari,“ eins og Einar orðar það. Kyrr­stætt lægða­svæði var á hring­sóli suður af Færeyjum og því fylgdi stöðug aust­an­átt, „og ekki bara ein­hver aust­an­átt heldur varð hún að raka­færi­bandi sem beind­ist dag eftir dag að Aust­ur­landi“.

Mikil úrkoma er langt í frá eitt­hvað fram­andi fyr­ir­brigði á Seyð­is­firði en í vetur var hún hins vegar „með miklum afbrigðum,“ segir Einar. „Spurn­ingin er hvort að þetta hafi gerst áður í for­tíð­inni, það á eftir að rann­saka ofan í kjöl­inn, eða hvort að það hafi rignt meira vegna þess að það er meiri raki í loft­hjúpnum nú en áður vegna hlýn­unar loft­lags.“

[adspot]

Þeirri spurn­ingu hvort að þetta gæti átt eftir að end­ur­taka sig í nán­ustu fram­tíð er að sögn Einars algjör­lega ósvarað. Á síð­ustu árum hefur úrkoma verið að aukast við Norður-Atl­ants­hafið, sér­stak­lega í Vestur-Noregi og vís­bend­ingar eru um að það sé einnig að eiga sér stað á suð­austur- og aust­ur­hluta Íslands. „En hvernig og hvort sú úrkomu­aukn­ing teng­ist þessum atburðum á Seyð­is­firði er óljóst.“

Upp­söfnuð úrkoma var 569 mm á fimm daga tíma­bili á Seyð­is­firði í aðdrag­anda aur­skrið­anna. Aldrei áður hefur mælst jafn mikil úrkoma á jafn stuttum tíma á Íslandi.

Fljót­lega eftir jólin urðu straum­hvörf í veðr­inu og það sner­ist til „allt ann­arrar tíðar“ að sögn Einars er á sér skýr­ingar svo­kall­aðri skyndi­hlýnun í heið­hvolf­inu sem hægði á öllum vest­an­vind­unum. Skyndi­hlýnun er vel þekkt fyr­ir­bæri en hennar verður vart suma vetur en aðra ekki. Í fyrra­vetur var „ekk­ert slíkt uppi á ten­ingnum og vest­an­vind­ur­inn sner­ist hér af miklum krafti í kringum norð­ur­skautið og dembdi til okkar hverri óveð­urslægð­inni á fætur annarri“.

En vegna þess­arar skyndi­hlýn­unar í vetur þá varð tíð­ar­farið í jan­úar og febr­úar hag­stætt og sér­lega lítið um ill­viðri. „Norð­austan- og aust­an­áttir voru ríkj­andi sem gerði það að verkum að óvenju­lega snjó­létt var sunn­an­lands og vestan. Slíkt er ekki eins­dæmi en það jaðr­aði við það,“ segir Einar.

Til að leita að sam­bæri­legum vetri horfa menn gjarnan að hans sögn til vet­urs­ins 1976-1977. „Hann var líka plag­aður af þess­ari skyndi­hlýnun og ein­hverjum afbrigði­leg­heitum í hringrásinni.“

[adspot]

Fyrstu mán­uðir árs­ins, sem alla jafna eru þeir snjó­þyngstu, voru einmitt afbrigði­legir af þessum sökum. „Jörð varð aldrei alhvít í Reykja­vík í jan­úar,“ segir Einar. Það hefur aðeins gerst þrisvar sinnum áður frá því að mæl­ingar hófust, síð­ast árið 2010. Febrúar var einnig blíður og alhvítir dagar í Reykja­vík aðeins þrír tals­ins. Að sama skapi var mun minna um hálku og klaka á götum og gang­stéttum en við höfum átt að venj­ast und­an­farna vetur.

En þannig var nú ekki ástandið um allt land. Síður en svo. Janúar var til að mynda í með­al­lagi snjó­þungur á Akureyri og alhvítir dagar þar í febr­úar 20 tals­ins sem er umfram með­al­lag. Víðar á Norð­ur­landi sem og á Vest­fjörðum var einnig nokkuð snjó­þungt og snjó­flóð féllu. „Snjó­þyngslin má rekja til þess að hafáttir, austan og norð­austan áttir, voru ríkj­andi. Í þessum áttum er Suður- og Vest­ur­landið í vari fyrir vindum frá hálend­inu og minni úrkoma þar.“

Í það heila tekið var færð milli lands­hluta góð. „Auðvitað komu ákveðnir kaflar og dagar þar sem varð ófært.“ Sem dæmi nefnir Einar að ákveðið hafi verið að halda Dynj­and­is­heið­inni á Vest­fjörðum opinni í fyrsta sinn að vetr­ar­lagi og að það hafi gengið ágæt­lega.

Skyndi­hlýn­unin á sér rætur langt í burtu frá litla Íslandi eða við mið­baug og í Kyrra­hafi. „Hiti í loft­inu, varma­flæði, berst frá suð­lægum slóðum í átt­ina að heim­skaut­inu í tíu til þrjá­tíu kíló­metra hæð,“ útskýrir Einar. „Það velt­ist um og skyndi­lega sjáum við hlýnun sem getur á nokkrum dögum numið tugum gráða í um 30 kíló­metra hæð.“

Þetta hefur svo aftur áhrif á hið svo­nefnda vest­an­vinda­belti, sem þekkt er fyrir lægða­gang, en Ísland er í norð­ur­jaðri þess. Hlýja loftið hægir á kerf­inu, loft­þrýt­ingur hækkar og átt­irnar breyt­ast. Áhrif skyndi­hlýn­unar í heið­hvolfi geta varað í 4-8 vikur en stundum lengur.

En ýmis­legt um þetta veð­ur­fyr­ir­bæri er enn nokkuð á huldu. Það er algeng­ara þegar La Niña eða El Niño verða í Kyrra­haf­inu þó að ekki sé vitað af hverju. Í vetur var það La Niña sem átti sér stað, en þá er kaldur sjór við Suður-Ameríku, öfugt við það sem ger­ist með El Niño. Stöðugt fleiri rann­sóknir eru gerðar á sam­hengi allra þess­ara fyr­ir­bæra í veðri, hvar sem þau eru að eiga sér stað, til að reyna að varpa skýr­ara ljósi á veð­ur­kerfi jarð­ar­innar. „En það sem við vitum er að þetta teng­ist allt,“ segir Einar. „Það er alveg klárt.“

[adspot]

Skyndi­hlýn­un­ar­innar gætti fram í mars sem var almennt til­tölu­lega hlýr og snjó­léttur á Suð­vest­ur­landi þó að ill­viðrakafla hafi gert. 18. mars fór hiti upp í 20,4 stig á Dala­tanga sem er næst­hæsti hiti sem mælst hefur á land­inu í mars­mán­uði. Metið frá árinu 2012 stendur enn, 20,5 stig á Kvískerjum.

Óstað­fest er svo að úrkomu­met fyrir apr­íl­mánuð hafi fallið í ár þegar sól­ar­hringsúr­koma á Kvískerjum mæld­ist 238 mm.

Á vet­urna er veðr­áttan á Íslandi mjög breyti­leg og kafla­skipt Einar segir að oft­ast fáum við „eitt­hvað af öllu“. Inn á milli koma vetur sem eru til­tölu­lega eins­leitir. „Veturinn núna er dæmi um slíkan vetur. Hann er þó ekki eins­leit­ari en svo að des­em­ber var með allt öðru móti en til dæmis jan­úar og febr­úar.“

Það sama má í raun einnig segja um vet­ur­inn í fyrra. Hann var eins­leitur en með allt öðrum hætti og ein­kennd­ist af stöð­ugum ill­viðrum, lægðum og djúpum stormum yfir landið.

Þá vilja nokkrir svip­aðir vetur stundum koma hver á fætur öðrum. Það gerð­ist t.d. 1989-1995. Þeir vetur voru flestir snjó­þungir og storma­samir en á árunum 1960-1964 voru þeir sér­stak­lega hæg­látir. Tveir síð­ustu vetur hafa þó verið „eins og svart og hvítt,“ segir Einar um ófyr­ir­sjá­an­leik­ann í þessum efnum.

En hverju getum við svo átt von á með hækk­andi sól? Erlendar reikni­stofur munu skila næstu lang­tíma­spám um miðjan maí svo að ótíma­bært er að spá núna um sum­arið 2021, að mati Einars. Hvað varðar hins vegar veðrið næstu daga og vikur gætum við átt von á bakslagi um mán­aða­mótin með norð­aust­an­átt og mögu­lega hreti.

Þetta er kannski ekki alveg það sem þjóðin vildi heyra. En Einar er fljótur að bæta við: „Sumarið mun koma, við þurfum ekki að hafa áhyggjur af öðru. En eins og oft vill ger­ast gæti vorið orðið dálítið skrikkj­ótt og munur á veðri milli daga. Við gætum fengið eitt­hvað af öllu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

náttúruhamfarir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár