Vísindamenn fylgjast með hverju skrefi Öræfajökuls

Allra augu eru á Öræfajökli. Vel er fylgst með því hvernig þró­unin í eld­stöð­inni er.

Óvissu­stig er enn í gildi vegna auk­inn­ar virkni í Öræfa­jökli síð­ustu daga. „Við för­um ekki á gult stig nema það sé eitt­hvað mikið að ger­ast,“ seg­ir Krist­ín Jóns­dótt­ir, jarð­eðlis­fræð­ing­ur hjá Veður­stofu Íslands, í við­tali við Morg­un­blaðið í dag.

Kemur þar fram að Veð­ur­stofan sé með Öræfa­jökul „í gjör­gæslu“ og fylgj­ast vís­inda­menn náið með hverju skrefi sem verður í þróun jarð­hrær­inga í þess­ari næst­stærstu eld­stöð Evrópu.

Ólaf­ur G. Flóvenz, jarð­eðlis­fræð­ing­ur og for­stjóri ÍSOR, sagði fyr­ir helgi að elds­um­brot væru í raun haf­in í Öræfajökli og lík­leg­ast að kvik­an væri kom­in mjög ná­lægt yf­ir­borði. Þetta kom fram í við­tali Stöðvar 2 við hann.

Hann bæti þó við að óvissan væri mikil og það ætti eftir að skýr­ast hvernig þró­unin yrði.

Aðeins eld­fjallið Etna á Sikiley situr á stærri eld­stöð í Evr­ópu. Óvissu­­stigi almanna­varna er lýst yfir þegar grunur vaknar um að eitt­hvað sé að ger­­ast af nátt­úru- eða manna­völdum sem á síð­­­ari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar sé ógn­að.

Fjallað var ítar­lega um Öræfar­jök­ul­seld­stöð­ina á vef Kjarnans þegar óvissu­stigi var lýst yfir.

Öræfa­jök­ull stendur syðst í Vatna­jökli milli Skeið­ar­ár­sands og Jök­ulsár­lóns, svo nefnd séu kunnug kenni­leiti í nágrenn­inu. Í Öræfajökli er einnig Hvanna­dals­hnjúk­ur, hæsta fjall Íslands.

Tvisvar hefur gosið í Öræfajökli á sögu­legum tíma, árin 1362 og árið 1727. Fyrra gosið var stór­gos þar sem öll byggð næst jökl­inum lagð­ist í eyði. Nafn svæð­is­ins hvarf með byggð­inni, en áður hafði svæðið kall­ast Litla-Hér­að. Öræfa­jök­ull kall­að­ist einnig Hnappa­fells­jök­ull, eftir hnöpp­unum á jökl­inum sem rísa rúm­lega 1.800 metra yfir sjáv­ar­máli, fyrir gos­ið.

Heim­ildir um gosið 1362 eru fremur fátæk­legar en sagnir um eldsum­brotin eru að finna í ann­álum frá ofan­verðri 14. öld. Í Gott­skálk­san­nál segir til dæm­is:

„Í Aust­fjörðum sprakk í sundur Knappa­fells­jök­ull og hljóp ofan á Lómagnúpssand, svo að af tók vegu alla. Á sú í Aust­fjörð­um, er Úlf­arsá heit­ir, hljóp á stað þann er heitir að Rauða­læk, og braut niður allan stað­inn, svo að ekki hús eftir nema kirkj­an.“

Gosið var heil­mikið og þeytti upp um 10 rúm­kíló­metrum af gjósku. Sævar Helgi Braga­son hefur fjallað um gosið á Stjörnu­fræði­vefn­um. Þar segir meðal ann­ars að þetta hafi verið mesta vik­ur­gos sem orðið hefur á Íslandi síðan í Heklu­gosi 800 árum fyrir Krists­burð. Eldsum­brot­unum fylgdu jök­ul­hlaup undan mörgum skrið­jöklunum sem renna niður eftir öskju­barm­inum utan­verð­um; Falljökli, Virk­isjökli, Kotár­jökli, Rót­ar­fjallsjökli og Svína­fellsjökli niður Skeið­ar­ár­sand. Hlaup úr Kvíár­jökli (þar sem í dag má nema brenni­steins­lykt) rann út á sjó.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

náttúruhamfarir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár