Næst stærsta eldfjall Evrópu lætur á sér kræla

Vís­inda­menn hafa hækkað við­bún­að­ar­stig vegna jarð­hrær­inga í Öræfajökli, stærstu eld­stöð Íslands og þeirri næst stærstu í Evrópu. En hvað vitum við um Öræfa­jökul?

Öræfajökull séður frá suðri.
Öræfa­jök­ull séður frá suðri. Mynd: Wiki Commons

Jarð­hrær­inga hefur gætt í Öræfajökli í auknum mæli á und­an­förnum vikum og á dög­unum hefur mynd­ast sig­ket­ill í jökl­inum miðjum. Þá hefur brenni­steins­lyktar gætt í og við Kvíá, sem gengur undan einum skrið­jökli Öræfa­jök­uls, Kvíár­jökli.

Vegna þessa hafa vís­inda­menn, í sam­starfi við Almanna­varnir, hækkað við­bún­að­ar­stig í nágrenni jök­uls­ins í óvissu­stig. Hafin er vinna við að kort­leggja rým­ingar á svæð­inu og nákvæm­ari mæli­tækjum er komið fyrir.

Allt er þetta gert vegna gruns um að hér gæti næst stærsta eld­stöð í Evrópu verið að láta á sér kræla. Aðeins eld­fjallið Etna á Sikiley situr á stærri eld­stöð í Evrópu. Óvissu­stigi almanna­varna er lýst yfir þegar grunur vaknar um að eitt­hvað sé að ger­ast af nátt­úru- eða manna­völdum sem á síð­ari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar sé ógnað.

Vís­inda­menn flugu yfir Öræfa­jökul í morgun með Land­helg­is­gæsl­unni til þess að kanna aðstæður og taka sýni. Þannig má hug­an­lega glöggva sig betur á því hvað sé á seiði undir jökl­inum.

Öræfajökull

Öræfa­jök­ull stendur syðst í Vatna­jökli milli Skeið­ar­ár­sands og Jök­ulsár­lóns, svo nefnd séu kunnug kenni­leiti í nágrenn­inu. Í Öræfajökli er einnig Hvanna­dals­hnjúkur, hæsta fjall Íslands.

Tvisvar hefur gosið í Öræfajökli á sögu­legum tíma, árin 1362 og árið 1727. Fyrra gosið var stór­gos þar sem öll byggð næst jökl­inum lagð­ist í eyði. Nafn svæð­is­ins hvarf með byggð­inni, en áður hafði svæðið kall­ast Litla-Hérað. Öræfa­jök­ull kall­að­ist einnig Hnappa­fells­jök­ull, eftir hnöpp­unum á jökl­inum sem rísa rúm­lega 1.800 metra yfir sjáv­ar­máli, fyrir gosið.

Heim­ildir um gosið 1362 eru fremur fátæk­legar en sagnir um eldsum­brotin eru að finna í ann­álum frá ofan­verðri 14. öld. Í Gott­skálk­san­nál segir til dæmis:

„Í Aust­fjörðum sprakk í sundur Knappa­fells­jök­ull og hljóp ofan á Lómagnúpssand, svo að af tók vegu alla. Á sú í Aust­fjörðum, er Úlfarsá heitir, hljóp á stað þann er heitir að Rauðalæk, og braut niður allan stað­inn, svo að ekki hús eftir nema kirkjan.“

Gosið var heil­mikið og þeytti upp um 10 rúm­kíló­metrum af gjósku. Sævar Helgi Bragason hefur fjallað um gosið á Stjörnu­fræði­vefnum. Þar segir meðal ann­ars að þetta hafi verið mesta vik­ur­gos sem orðið hefur á Íslandi síðan í Heklu­gosi 800 árum fyrir Krists­burð. Eldsum­brot­unum fylgdu jök­ul­hlaup undan mörgum skrið­jöklunum sem renna niður eftir öskju­barm­inum utan­verðum; Falljökli, Virk­isjökli, Kotár­jökli, Rót­ar­fjallsjökli og Svína­fellsjökli niður Skeið­ar­ár­sand. Hlaup úr Kvíár­jökli (þar sem í dag má nema brenni­steins­lykt) rann út á sjó.

„Ekki er vitað hversu stór jök­ul­hlaupin voru en leiða má líkum að því að þau hafi ekki verið stór­kost­leg og til þess benda raunar vegs­um­merki í fjall­inu. Jök­ull­inn var minni þá en nú vegna hlý­inda­tíma­bils sem á undan var gengið. Hlaupið hefur þó án efa verið skelfi­legt og kröft­ugt vegna mik­illar fall­hæðar niður fjalls­hlíð­arnar. Úr orku þess dróg um leið og hlaup­vatnið var komin niður á flat­lendið þar sem það dreifð­ist um sandana,“ skrifar Sævar Helgi.

Það liðu margir ára­tugir áður en búið var aftur í Litla-Héraði, því sem var þá farið að kalla Öræfa­sveit. Orðið Öræfi hafa enda verið rétt­nefni fyrir þetta svæði og minn­ing­arnar um gosið 1362. Á Vís­inda­vefnum er sagt frá því að hug­takið „öræfi“ merki ofsa, óbyggðir, eyði­lönd eða hafn­leysu. Allt hefur þetta átt við þetta svæði og gerir jafn­vel enn.

Gosið 1727 var mun minna. Þrjár mann­eskjur fór­ust í jök­ul­hlaupum auk fjölda hús­dýra. Á Stjörnu­fræði­vefnum má lesa eft­ir­minn­ingar séra Jóns Þor­láks­sonar, prests á Sand­felli þegar gosið hófst. Snarpir jarð­skjálftar riðu yfir áður en gosið hófst og fund­ust þeir vel í sveit­inni.

[box]

Eldstöð utan gosbeltis

Eld­keilan Öræfa­jök­ull stendur utan gos­belt­anna sem ganga í gegnum jarð­skorpuna undir Íslandi þar sem oft­ast gýs hér á landi. Talið er að eld­stöðin standi á leifum tveggja meg­in­eld­stöðva. Við Skafta­fells­jökul sjást leifar meg­in­eld­stöðvar sem var virk fyrir um 2,7 milljón árum og nálægt Breiða­merk­ur­fjalli má einnig finna leifar gam­allar meg­in­eld­stöðvar.

Á toppi Öræfa­jök­uls er askja í stað venju­legs topp­gígs og er askjan full af jök­ulís. Talið er að ísinn sé 550 metra þykkur. Á brún öskj­unnar má svo finna jök­ul­skerið Hvanna­dals­hnjúk sem er hæsti tindur Íslands í um 2.110 metra hæð yfir sjáv­ar­máli.

Öræfa­jök­ull og hugs­an­leg flóð undan jökl­inum hafa verið kort­lögð og rann­sökuð. Matthew J. Roberts og Magnús Tumi Guð­munds­son hafa til að mynda rann­sakað jarð­fræði eld­stöðv­ar­innar og sögu­leg flóð undan jökl­inum. Lesa má rann­sókn þeirra á vef Veð­ur­stof­unnar.

Jafnvel þó nokkuð hafi verið ritað um eld­stöð­ina Öræfa­jökul þá eiga vís­inda­menn ekki mikið af gögnum um virkni og hegðun eld­fjalls­ins. Skýr­ingin er vit­an­lega sú að langt er síðan þar gaus síð­ast og þessi gamli þurs hefur blundað vært um langa tíð.

Flugu yfir jökullinn í dag

Jarð­vís­inda­menn frá Háskóla Íslands og Veð­ur­stof­unni flugu yfir jökul­inn í dag og rann­sök­uðu. Magnús Tumi var einn þeirra vís­inda­manna og sagði hann í sam­tali við frétta­stofu RÚV að sig­ket­ill­inn sem mynd­ast hefur sé í kringum 21 til 25 metra djúpur. Það sé ekki sér­lega djúpur sig­ket­ill en mikil dýpkun á þeim stutta tíma sem hann hefur mynd­ast.

Lög­reglu­yf­ir­völd á Suð­ur­landi segj­ast ekki vera neitt ofsa­lega áhyggju­full yfir ástand­inu. „Við erum ekk­ert ofsa­lega áhyggju­fullir en á meðan við erum að skoða þá fylgjum við þessum stigum Almanna­varna og förum á óvissu­stig,“ segir Sveinn Kristján. Engin rým­ing­ar­á­ætlun sé í gangi. Ekkert hafi verið virkjað nema eft­ir­lits­kerfið. Þannig hafi lög­reglan á Suð­ur­landi verið með vakt við Kvíá í nótt,“ er haft eftir Sveini Krist­jáni Rún­ars­syni, yfir­lög­reglu­þjóni á Hvols­velli, á vef RÚV.

„Eins og ég segi þá er ekki alveg vitað hvað er í gangi þarna. Mögulega er þetta ein­hver atburður sem er búinn. Mögulega er vatnið í katl­inum að skila sér í róleg­heitum niður Kvíá og það skýri lykt­ina. Þetta er allt verið að skoða,“ sagði Sveinn Kristján enn fremur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

jarðvísindi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár