Marel hækkaði um 66 prósent í fyrra – Icelandair lækkaði um 21 prósent

Mark­aðsvirði hluta­bréfa í íslensku Kaup­höll­inni var 30 pró­sent hærra í lok lið­ins árs en ári áður. Velta jókst um rúman fimmt­ung milli ára en lang­mest var verslað með bréf í Marel ann­ars vegar og Arion banka hins vegar. Icelandair lækk­aði mest.

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel. Félagið er það langverðmætasta sem skráð er í íslensku Kauphöllina og hækkaði mikið á árinu sem var að líða.
Árni Oddur Þórð­ar­son, for­stjóri Marel. Félagið er það lang­verð­mætasta sem skráð er í íslensku Kaup­höll­ina og hækk­aði mikið á árinu sem var að líða.

Alls námu heild­ar­við­skipti með hluta­bréf í Kauphöll Íslands 612 millj­örðum króna í fyrra. Langmest við­skipti voru með bréf í Marel, 118 millj­arðar króna, og í Arion banka, 98 millj­arðar króna. Sam­an­lagt námu við­skipti með hluta­bréf þess­ara tveggja verð­mæt­ustu félaga sem skráð eru á íslenskan hluta­bréfa­markað því 216 millj­örðum króna og voru 35,3 pró­sent af heild­ar­við­skiptum með hluta­bréf í henni á árinu 2019.

[links]Hluta­bréf í Marel voru tekin til við­skipta í Euro­next-­Kaup­höll­inni í Amster­dam í byrjun júlí og eru því tví­skráð. Í aðdrag­anda skrán­ing­ar­innar fór fram hluta­fjár­út­boð hjá Marel þar sem félagið seldi 100 milljón nýja hluti. Þeir hlutir jafn­gilda 15 pró­sent af heild­ar­hlutafé Mar­el. Arion banki er einnig tví­skráður á markað, hér­lendis og í Svíþjóð.

Alls varð veltu­aukn­ing upp á 21,3 pró­sent í fyrra, en heild­ar­við­skipti á árinu 2018 voru 506 millj­arðar króna. Heild­ar­við­skiptin voru samt sem áður minni en þau voru árið 2017 þegar þau náðu hámarki sínu eftir banka­hrun og voru 632 millj­arðar króna.

Þetta má lesa úr við­skipta­yf­ir­liti fyrir árið 2019 sem Nasdaq Iceland, sem rekur íslensku Kaup­höll­ina, hefur birt.

Flest félög hækkuðu í virði

Mark­aðsvirði skráðra hluta­bréfa var í árs­lok 1.251 millj­arður króna sem er 30 pró­sent hærra en í lok árs 2018. Í lok árs 2019 voru alls 24 félög skráð á markað, 20 á Aðal­markað og fjögur á Nasdaq First North.

[adspot]Úrvals­vísi­talan hækk­aði um 31,4 pró­sent á árinu 2019.

Marel hækk­aði lang­mest allra félaga á árinu, eða um 65,9 pró­sent. Mark­aðsvirði félags­ins í lok árs var 473,4 millj­arðar króna. Ekkert annað félag í Kaup­höll­inni kemst nálægt því að vera svo verð­mætt. Næst verð­mætasta félagið er Arion banki sem metið er á 156,5 millj­arða króna, en bréf í bank­anum hækk­uðu um 22,4 pró­sent á árinu 2019. Bréf í Símanum hækk­uðu hlut­falls­lega næst mest, eða um 43,2 pró­sent.

Bréf alls 13 félaga sem skráð eru á Aðal­markað hækk­uðu á árinu og bréf í tveimur til við­bótar, í fast­eigna­fé­lög­unum Reitum og Eik, lækk­uðu undir eitt pró­sent. Þau félög sem fóru verst út úr árinu og lækk­uðu umtals­vert voru Hagar (virði bréfa lækk­aði um 6,0 pró­sent), Sýn (virði bréfa lækk­aði um 16,3 pró­sent), Eimskip (virði bréfa lækk­aði um 16,9 pró­sent) og Icelandair Group, sem lækk­aði mest allra eða um 21,2 pró­sent. 

Ávöxtun talin góð

Í til­kynn­ingu frá Nasdaq OMX er haft eftir Finnboga Rafni Jónssyni, for­stöðu­manni við­skipta, að Kaup­höllin sé sátt með gang mála á árinu. „Ávöxtun á árinu var alveg sér­stak­lega góð, en Úrvals­vísi­talan hækk­aði um rúmt 31 pró­sent á árinu og heild­ar­vísi­talan um 24,5 pró­sent. Sama á við um skulda­bréfa­markað þar sem vextir fóru á áður óþekktar slóðir og hækk­aði sem dæmi óverð­tryggða skulda­bréfa­vísi­talan um tæp 15 pró­sent. Velta á hluta­bréfa­mark­aði jókst einnig tölu­vert á milli ára, eða um 21 pró­sent.“

Fast­eigna­þró­un­ar­fé­lagið Kaldalón var skráð á First North á árinu og Kvika banki og Iceland Seafood International færðu sig bæði frá First North yfir á Aðal­mark­að­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöll

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár