Kínverjar hafa í hótunum við Þjóðverja

Ef Þjóð­verjar úti­loka kín­verska fyr­ir­tækið Huawei frá því að taka þátt í útboði vegna 5G háhraða­nets í Þýska­landi gætu Kín­verjar svarað með því að banna inn­flutn­ing á þýskum vörum, t.d. bílum, til Kína.

Að und­an­förnu hefur tals­vert verið fjallað í fjöl­miðlum um miklar breyt­ingar, sem framundan eru í fjar­skipta­heim­inum, með til­komu hins nýja háhraða­nets 5G. Prófanir og upp­setn­ing tækja­bún­aðar er víða komin vel á veg og í mörgum löndum verður 5G komið í notkun á næsta ári. Upp­bygg­ing þess­arar nýju tækni kostar mikla fjár­muni og því mikið í húfi fyrir fram­leið­endur að ,,hreppa hnossið“ ef svo mætti að orði kom­ast. Eitt stærsta fyr­ir­tækið á þessum vett­vangi er hið kín­verska Huawei, sem einnig er næst stærsti fram­leið­andi gsm síma í heim­inum, á eftir Samsung.

Huawei er tákn hins nýja Kína

Fyrir nokkru voru gerðar breyt­ingar á kín­verskri lög­gjöf. Þessar breyt­ingar gera kín­versku leyni­þjón­ust­unni kleift að þvinga kín­versk fyr­ir­tæki til sam­vinnu. Þar á meðal Huawei. Þessi laga­breyt­ing hefur vakið athygli og jafn­vel grun­semdir. Ekki síst vegna tíma­setn­ing­ar­innar, en eins og áður sagði er 5G handan við hornið og Huawei ætlar sér stóran hlut í upp­bygg­ingu þess. For­svars­menn Huawei hafa í við­tölum lagt mikla áherslu á að fyr­ir­tækið sé algjör­lega sjálf­stætt og á engan hátt undir hæl kín­verskra stjórn­valda.

Fyrir nokkru var fjallað ítar­lega um Huawei í breska dag­blað­inu The Guardian. Þar segir meðal ann­ars að Huawei sé tákn hins nýja Kína, landið hafi lengst af verið hrá­efn­is­selj­andi, og að þar í landi hafi einkum verið ýmis konar gróf­iðn­aður, eins og grein­ar­höf­undur The Guardian orðar það. Nú ætli Kín­verjar sér stærri hluti og Huawei tákn þess að Kín­verjar séu að verða, eða orðnir, jafn­okar þeirra þjóða sem fremst standa þegar kemur að tækni­legum lausnum og fram­leiðslu slíks bún­aðar.

Bandaríkjamenn og Kínverjar þrýsta á Færeyinga

Fær­ey­ingar eru meðal þeirra þjóða sem eru búnar að ákveða að taka upp 5G háhraða­netið. Prófanir hafa þegar farið fram og þær ann­að­ist Huawei fyr­ir­tækið. Fær­ey­ingar hafa góða reynslu af sam­vinnu við Huawei, fyr­ir­tækið setti upp og ann­að­ist rekstur 4G nets­ins á eyj­unum og Huawei hefur lagt áherslu á áfram­hald­andi sam­vinnu. Nú eru Fær­ey­ingar hins vegar tví­stíg­andi og enn hefur ekki verið skrifað undir samn­ing um 5G þótt til­kynnt hafi verið fyrir hálfu ári að ,,þetta væri allt á næstu grösum“ eins og tals­maður Føroya Tele, fær­eyska síma­fé­lags­ins, orð­aði það. Fær­ey­ingar hafa undr­ast þessa seinkun en fyrir skömmu kom ástæðan í ljós: þrýst­ingur frá Banda­ríkja­mönnum um að semja ekki við Huawei. Carla Sands, sendi­herra Banda­ríkj­anna í Danmörku hefur tekið stórt upp í sig í við­tölum við danska fjöl­miðla og sömu­leiðis í aðsendum greinum í dönskum blöðum.

Segir ríka ástæðu til að ótt­ast að stjórn­völd í Kína noti Huawei til njósna um önnur lönd. Kín­verjar hafa ekki setið þegj­andi hjá en á fundi kín­verska sendi­herr­ans í Danmörku með Lögmanni Færeyja og einum ráð­herra sagði sendi­herr­ann að samn­ingur við Huawei myndi opna allar dyr (orða­lag sendi­herr­ans) en ef ekki yrði samið við Huawei væri við­skipta­samn­ingur (frí­versl­un­ar­samn­ingur) Færeyja og Kína fyrir bí. Slíkur samn­ingur, sem árum saman hefur verið unnið að, skiptir Fær­ey­inga miklu, einkum vegna útflutn­ings á laxi.

Bretland, Tékkland, Slóvakía, Kanada og Þýskaland

Fær­ey­ingar eru ekki þeir einu sem finna fyrir miklum þrýst­ingi Kínverja vegna 5G nets­ins. Í maí á þessu ári var Chen Wen, stað­geng­ill kín­verska sendi­herr­ans í Bret­landi, í við­tali hjá breska sjón­varp­inu, BBC. Þar sagði hann að það myndi hafa marg­hátt­aðar afleið­ingar varð­andi fjár­fest­ingar Kínverja í Bret­landi ef Huawei yrði úti­lokað frá að taka þátt í upp­bygg­ingu 5G á Bret­landseyjum. Breska dag­blaðið Financial Times greindi frá því fyrr á árinu að sendi­herra Kína í Kanada hefði talað á svip­uðum nótum í við­tali við blaðið. Fjöl­miðlar í Tékk­landi og Slóvakíu hafa greint frá þrýst­ingi kín­verskra stjórn­mála- og emb­ætt­is­manna á þar­landa ráða­menn.

Nýjasta dæmið um slíkan þrýst­ing er frá Þýska­landi. Wu Ken, sendi­herra Kína í Þýska­landi, tók í síð­ustu viku þátt í mál­þingi sem við­skipta­blaðið Hand­els­blatt hélt. Þar var einnig Sigmar Gabriel fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra Þýska­lands sem skipt­ist á skoð­unum við sendi­herr­ann. Sendi­herr­ann vitn­aði í orð þýska utan­rík­is­ráð­herr­ans Heiko Maas sem í við­tali í nóv­em­ber sagði að rétt væri að íhuga að banna Huawei að taka þátt í upp­bygg­ingu 5G nets­ins í Þýska­landi. Sendi­herr­ann rifj­aði ummælin upp og sagði að ef Huawei yrði úti­lokað frá Þýska­landi myndi það hafa afleið­ingar, nefndi sér­stak­lega að Kín­verjar fluttu á síð­asta ári inn þýska bíla, og bíl­hluti, fyrir upp­hæð sem sam­svarar 2.750 millj­örðum íslenskra króna.

Þetta er fyrir utan allan annan inn­flutn­ing frá Þýska­landi. Boð­skapur sendi­herr­ans fór ekki milli mála, Kín­verjar myndu láta hart mæta hörðu ef Huawei yrði úti­lokað frá Þýska­landi. Rík­is­stjórn Þýska­lands und­ir­býr nú lög­gjöf þar sem þýskum fjar­skipta­fyr­ir­tækjum verður bannað að skipta við ,,ótrú­verðug“ fyr­ir­tæki varð­andi 5G tækn­ina. Þýskir fjöl­miðlar segja þetta frum­varp bein­línis sniðið til að úti­loka Huawei. Spænska fjar­skipta­fyr­ir­tækið Telefónicas, sem er með starf­semi í fjöl­mörgum löndum, til­kynnti hins­vegar fyrir tíu dögum að Nokia og Huawei muni í sam­ein­ingu standa að upp­bygg­ingu 5G í Þýska­landi. Tals­maður fyr­ir­tæk­is­ins gaf lítið fyrir hugs­an­lega lög­gjöf sem ætlað væri að úti­loka Huawei frá þýskum mark­aði. ,,Slíkt bann hlyti að brjóta í bága við alþjóða­samn­inga.“

Bandaríkjamenn óttast njósnir

Banda­ríkja­menn hafa að und­an­förnu þrýst á banda­menn sína að semja ekki við Huawei um upp­setn­ingu og rekstur 5G. Segjast ótt­ast njósnir. Sá þrýst­ingur hefur meðal ann­ars orðið til þess að nor­ræn fjar­skipta­fyr­ir­tæki hafa verið mjög tví­stíg­andi, og sum ýmist sagt upp samn­ingum við Huawei eða til­kynnt að núgild­andi samn­ingar verði ekki end­ur­nýj­aðir. Norska rík­is­stjórnin til­kynnti fyrir nokkrum dögum nýjar fjar­skipta­reglur, þar er tekið fram að fyr­ir­tæki sem ekki séu í sam­vinnu við norsk yfir­völd í örygg­is­málum megi ekki ráða yfir meira en helm­ingi móð­ur­stöðva fjar­skipta­fyr­ir­tækja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár