Ísland veiðir næst mest á hvern íbúa

Hlut­deild sjáv­ar­út­vegs­ins í gjald­eyr­is­öflun hefur auk­ist und­an­farin þrjú ár og skil­aði greinin um fimmt­ungi gjald­eyr­is­tekna þjóð­ar­bús­ins á fyrri helm­ingi árs­ins. Ísland er nítj­ánda stærsta fiski­þjóð heims og veiðir 3,4 tonn á hvern íbúa.

Sjáv­ar­út­vegur er næst stærsta útflutn­ings­grein Íslend­inga og hefur hlut­deild geirans í gjald­eyr­is­öflun auk­ist tölu­vert und­an­farin þrjú ár. Greinin skil­aði um fimmt­ungi gjald­eyr­is­tekna þjóð­ar­bús­ins á fyrri helm­ingi árs­ins 2019. Þrátt fyrir minna útflutt magn í ár frá fyrra ári þá er spáð að útflutn­ings­verð­mæti sjáv­ar­af­urða verði um 9 pró­sent meira í ár en í fyrra.

Þetta er á meðal þess sem kemur fram nýrri skýrsla Íslands­banka um íslenskan sjáv­ar­út­veg.

3,4 tonn á hvern íbúa

Ísland vermir 19. sæti á lista yfir stærstu fisk­veiði­þjóðir heims og er hlut­deild lands­ins um 1,3 pró­sent á heims­vísu. Íslend­ingar veiða þó næst mest á hvern íbúa í heim­inum á eftir Færeyjum eða alls 3,4 tonn á hvern íbúa.

Störfum í sjáv­ar­út­vegi hefur fækkað tölu­vert síð­ast­lið­inn ára­tug vegna þeirra miklu tækni­fram­þróun sem orðið hefur í grein­inni. Þrátt fyrir færri störf hefur fram­leiðni í grein­inni auk­ist um 55 pró­sent á árinum 2011 til 2018.

Minna útflutt magn en meiri útflutningsverðmæti

Sjáv­ar­út­veg­ur­inn aflar næst mestar gjald­eyr­is­tekna atvinnu­vega Íslands eftir ferða­þjón­ust­unni. Eftir aukn­ingu á útfluttu magni sjáv­ar­af­urða und­an­farin tvö ár eru horfur á að minna magn sjáv­ar­fangs verði flutt út í ár en í fyrra. [adspot]

Í skýrslu Íslands­banka kemur fram að á fyrstu 9 mán­uðum árs­ins nam sam­dráttur útflutn­ings nærri 6 pró­sentum miðað við sama tíma­bili í fyrra og skýrist við­snún­ing­ur­inn að stórum hluta af loðnu­bresti á fyrsta fjórð­ungi árs­ins. Horfur eru á að nærri 3 pró­sent sam­dráttur verði í útfluttu magni sjáv­ar­af­urða í ár frá fyrra ári. Á næsta ári segir spáir bank­inn hins vegar að útflutt magn sjáv­ar­af­urða auk­ist á ný um ríf­lega 1 pró­sent.

Þrátt fyrir þennan sam­drátt í útflutn­ing þá eru horfur á að útflutn­ings­verð­mæti sjáv­ar­af­urða verði um það bil 9 pró­sent meira í ár en í fyrra þrátt fyrir minna útflutt magn eða í kringum 250 millj­arðar króna. Samkvæmt skýrsl­unni kemur það til meðal ann­ars af hækkun heims­mark­aðs­verðs í erlendri mynt, veik­ari krónu í ár en í fyrra og aukn­ingu á útflutn­ingi þorsks. Íslands­banki spáir jafn­framt fyrir um 4 pró­sent aukn­ingu útflutn­ings­verð­mætis á næsta ári.

Fiskeldi taki fram úr fiskveiðum á næsta ári

Enn fremur kemur fram í skýrsl­unni að útflutt magn eld­is­fisks hefur auk­ist umtals­vert á und­an­gengnum árum og var það rúm­lega þrefalt meira á árinu 2018 en á árinu 2014. Á sama tíma­bili hefur verð­mæti vegna útflutn­ings á eld­is­fiski auk­ist minna, eða rúm­lega tvö­fald­ast. Ástæðan er einna helst styrk­ing krón­unnar á umræddu tíma­bili.

Í skýrsl­unni segir að mesta aukn­ingin í fram­leiðslu sjáv­ar­af­urða á heims­vísu liggi í fisk­eldi og gerir spá OECD ráð fyrir að fisk­eldi muni í fyrsta skipti standa undir meira magni sjáv­ar­af­urða en hefð­bundnar fisk­veiðar árið 2022.

Tímabil fjárfestinga tekið við

Á árinu 2018 námu skuldir sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja 389 millj­örðum króna og hækk­aði skulda­staða félag­anna um 24 millj­arða frá fyrra ári. Alls hafa skuldir fyr­ir­tækja í grein­inni hafa auk­ist um 74 millj­arða eða nærri fjórð­ung frá því þær náðu lág­marki árið 2016.

Í skýrsl­unni segir að þrátt fyrir skulda­aukn­ingu stóð rekstur sjáv­ar­út­vegs­fé­laga betur undir skuld­setn­ing­unni á árinu 2018 en ári áður. Nýjar lán­tökur voru umfram afborg­anir lána á árinu og hefur slíkt átt sér stað allt frá upp­hafi árs 2015 sem bendi til þess að tíma­bili nið­ur­greiðslu skulda sé lokið og að tíma­bil auk­innar fjár­fest­ingar sé nú tekið við í grein­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnahagmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár