SMS og MMS ganga í endurnýjun lífdaga

Eftir að hafa lotið í lægra haldi fyrir nýjum sam­skipta­for­ritum á borð við Messen­ger og WhatsApp eru gömlu góðu SMS- og MMS-skila­boðin að eiga end­ur­komu. Þeim fjölgar nú eftir ára­langan sam­drátt.

Sendum SMS-texta­skila­boðum og MMS-mynd­skila­boðum heldur áfram að fjölga í íslenska far­síma­kerf­inu. Á fyrri hluta árs­ins 2019 voru send 92,3 millj­ónir SMS-a, sem er 3,5 pró­sent fleiri en send voru á sama tíma­bili í fyrra.

[links]Mynd­skila­boðin voru ívið færri, eða um 2,3 millj­ónir á fyrstu sex mán­uðum árs­ins. Þeim fjölg­aði þó hlut­falls­lega mun meira., eða um 19,2 pró­sent milli ára.

Þetta kemur fram í nýrri töl­fræði­skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar um íslenska fjar­skipta­mark­að­inn sem birt var nýverið, og sýnir þróun hans á fyrri hluta árs 2019.

Við­skipta­vinir Nova eru allra not­enda dug­leg­astir við SMS og MMS skeyta­send­ingar. Alls senda þeir 56,4 pró­sent af öllum sendum SMS-um og 48,2 pró­sent af öllum sendum MMS-um.

SMS-ið hefur átt undir högg að sækja sem sam­skipta­máti á und­an­förnum árum í kjöl­far þess að önnur sam­skipta­for­rit, á borð við t.d. Messen­ger og WhatsApp, hafi rutt sé til rúms og orðið meg­in­leið margra not­enda til að eiga staf­ræn sam­skipti og bjóða upp á mun fleiri mögu­leika í sam­skiptum en gömlu góðu SMS-in hafa gert.

[adspot]Sendum SMS-um fjölg­aði ár frá ári á fyrstu árum staf­rænu bylt­ing­ar­inn­ar. Þannig sendu Íslend­ingar rúm­lega 143 millj­ónir slíkra allt árið 2008 en tæp­lega 216 millj­ónir árið 2012. Fjöldi smá­skila­boð­anna jókst því um 51 pró­sent á tíma­bil­inu.

Þá tók hins vegar að halla undir fæti hjá SMS-un­um. Þeim fækk­aði jafnt og þétt ár frá ári og í lok árs 2017 voru þau send SMS hér­lendis orðin 174 millj­ón­ir. Þessi þróun átti sér stað sam­hliða því að ferða­mönnum á Íslandi fjölg­aði gríð­ar­lega – þeir fóru úr um hálfri milljón í rúm­lega tvær millj­ónir á örfáum árum – og not­endum íslenska fjar­skipta­kerf­is­ins sömu­leið­is.

Í fyrra varð hins vegar breyt­ing á. Þá fjölg­aði SMS-skeytum sem send voru úr símum um 3,4 millj­ónir á fyrri hluta þess árs, sam­an­borið við sama tíma­bil árið áður. Á árinu 2018 í heild fjölg­aði sendum SMS-um alls um sex millj­ónir og voru alls um 180 millj­ónir slíkra send í gegnum íslenska far­síma­kerfið á því ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár