Tímabært að endurskoða barnabótakerfið frá grunni

Íslenska barna­bóta­kerfið veitir lít­inn sem engan stuðn­ing við milli­tekju­fjöl­skyldur og bætur lág­tekju­fjöl­skyldna byrja jafn­framt að skerð­ast rétt við lægstu laun og eftir sjö ára aldur barna. Að mati dokt­ors í félags­fræði þarf að end­ur­skoða kerfið.

Barna­bætur á Íslandi eru fyrst og fremst nokk­urs konar fátækt­ar­hjálp fyrir mjög tekjulágar barna­fjölskyldur. Skerð­ing­ar­mörk bót­anna eru hins vegar lág í nor­rænum sam­an­burði og fær því tölu­verður fjöldi lágtekju­fjölskyldna skertar tekjur og þá sér­stak­lega ein­stæðir for­eldrar. Auk þess fá milli­tekju­fjöl­skyldur hér á landi lít­inn sem engan stuðn­ing hér á landi.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um íslenska barna­bóta­kerfið sem dr. Kolbeinn Stef­áns­son vann fyrir BSRB og kynnt var á fundi banda­lags­ins í dag. Að mati skýrslu­höf­undar og BSRB er orðið tíma­bært að end­ur­skoða íslenska barna­bóta­kerfið.

Lítill sem enginn stuðningur við millitekjufjölskyldur

Í skýrslu Kolbeins er barna­bóta­kerfið hér á landi borið saman við kerfi hinna Norð­ur­land­anna en sam­kvæmt skýrsl­unni íslenska barna­bóta­kerfið mjög lág­tekju­miðað sem er ólíkt barna­bóta­kerfum hinna Norð­ur­land­anna. Ísland er ekki eitt um að vera með tekju­tengdar barna­bætur því bæt­urnar eru einnig tekju­tengdar í Danmörku.

Þar í landi liggja þó skerð­ing­armörkin mun hærra og skerð­ing­ar­hlutföllin lægri en hér á landi og fyrir vikið svipar danska barnabótakerf­inu nokkuð til kerf­anna í Finn­landi, Noregi og Svíþjóð sem eru ekki tekju­tengd. [adspot]

Þá segir í skýrsl­unni að þó að barna­bætur hér á landi séu háar í nor­rænu sam­hengi þá séu þær að nokkru leyti aðeins bundnar við fjöl­skyldur með ung börn, þegar börn ná sjö ára aldri dregur mjög úr stuðn­ingi.

Stuðn­ingur við með­al­tekju­heim­ili er jafn­framt mark­vert minni á Íslandi en fyrir sams­konar fjölskyldur á hinum Norðurlöndunum. For­eldrar í hjúskap með meðal atvinnu­tekjur og með tvö börn fá 5.505 krónur á ári ef bæði börnin eru undir sjö ára aldri en ekki neitt ef bæði börnin eru eldri en sjö ára. Á hinum Norðurlöndunum fá slíkar fjölskyldur hins vegar umtals­verðan stuðn­ing.

„Barna­bætur á Íslandi eru fyrst og fremst nokk­urs konar fátækt­ar­hjálp fyrir mjög tekjulágar barna­fjölskyldur en í ljósi þess hve lágt skerð­ing­armörk bótanna liggja má vera ljóst að nokkur fjöldi lágtekju­fjölskyldna fær skertar barna­bætur. Því má segja að barnabótum sé beint þangað sem þörfin er mest en aftur á móti er ekki ljóst að þær mæti þörfum allra lágtekju­fjölskyldna sem þurfa á stuðn­ingi að halda,“ segir í skýrsl­unni.

Minni hækkun til einstæðra foreldra

Í skýrsl­unni er einnig farið yfir þróun kerf­is­ins hér á landi og þar kemur fram að hámarks­upp­hæðir og skerð­ing­armörk barnabóta hafi hækkað á und­anförnum árum en hafi þó ekki enn náð raun­virði hámarks­upp­hæð barna­bóta fyrir 2007. Aftur á móti hafi skerð­ing­ar­hlutföll barnabóta einnig hækkað og árið 2019 var þrepa­skipt tekju­teng­ing barnabóta inn­leidd.

Enn fremur segir í skýrsl­unni að fyr­ir­huguð hækkun rík­is­stjórn­ar­innar á skerð­ing­armörkum barnabóta á næsti ári, í kjöl­far und­ir­rit­un­lífs­kjara­samn­ing­anna, muni skila mjög hóflegum hækk­unum barnabóta og geri lítið sem ekk­ert fyrir allra tekju­lægstu fjölskyld­urnar. Þá gefi hækkun skerð­ing­ar­marka minni hækkun til ein­stæðra for­eldra en til for­eldra í hjúskap, en fyrr­nefndi hópur­inn býr við mjög auknar líkur á fátækt og fjárhags­þreng­ingum.

„Þegar horft er til þeirra kjara­samn­inga sem voru und­ir­rit­aðir á árinu 2019 verður að telj­ast líklegt að þekja kerf­is­ins verði minni árið 2020 en hún var 2019, það er að færri muni fá barna­bætur,“ segir í skýrsl­unni.

Uppfullt af mótsögnum

Þá er ýmis­legt í núver­andi barna­bóta­kerf­inu sem orkar tví­mælis að mati skýrslu­höf­undar. Upphæðir hámarksbóta séu til dæmis hærri fyrir fyrsta barn ein­stæða for­eldra en for­eldra í hjúskap en aftur móti virð­ist gengið út frá því að börn umfram það fyrsta séu ódýrari í rekstri fyrir ein­stæða for­eldra en for­eldra í hjúskap.

Kolbeinn segir jafn­framt að kerfið sé óþarf­lega flókið og erfitt sé að greina heild­stæða hugsun á bak við það. Hann telur því að tíma­bært að taka íslenska barnabótakerfið til gagn­gerrar end­ur­skoð­unar. Slík end­ur­skoðun þyrfti þá að taka til­lit til þess hvernig fjölskyldan hefur breyst í íslensku samfélagi, til dæmis vegna sam­eig­in­legrar forsjár barna og skiptrar búsetu skiln­að­ar­barna.

Þá sé jafn­framt til­efni til að kanna hvort þurfi að auka þekju kerf­is­ins með því að draga úr lágtekju­miðun. „Með skýrum mark­miðum er hægt að móta kerfi sem styður við þau mark­mið fremur en kerfi sem lítur út eins og bútasaumur, upp fullt af mótsögnum og ein­kennum sem orka tvímælis,“ segir Kolbeinn að lokum í skýrsl­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár