Viðskiptaafgangur minni á þriðja ársfjórðungi en í fyrra

Við­skipta­af­gangur var 63 millj­arðar á þriðja árs­fjórð­ungi á þessu ári, sam­kvæmt Seðla­bank­anum. Hrein staða við útlönd var jákvæð um 714 millj­arða króna.

Seðlabanki Íslands
Seðla­banki Íslands Mynd: Birgir Þór Harðarson

Á þriðja árs­fjórð­ungi á þessu ári var 63 millj­arða króna afgangur á við­skipta­jöfn­uði við útlönd sam­an­borið við 73,8 millj­arða króna afgang á sama árs­fjórð­ungi í fyrra.

Þetta kemur fram á vef Seðla­banka Íslands sem sýna bráða­birgða­yf­ir­lit um greiðslu­jöfnuð við útlönd á þriðja árs­fjórð­ungi árið 2019 og erlenda stöðu þjóð­ar­bús­ins í lok árs­fjórð­ungs­ins.

Halli á vöru­skipta­jöfn­uði var 45,9 millj­arðar en afgangur á þjón­ustu­jöfn­uði var 101,3 millj­arðar króna. Frum­þátta­tekjur skil­uðu 13,4 millj­arða króna afgangi en rekstr­ar­fram­lög 5,9 millj­arða króna halla.

Samkvæmt bráða­birgða­yf­ir­lit­inu námu erlendar eignir þjóð­ar­bús­ins 3.870 millj­örðum í lok árs­fjórð­ungs­ins en skuldir 3.156 millj­örðum. Hrein staða við útlönd var því jákvæð um 714 millj­arða króna eða 24,5 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu (VLF) og batn­aði um 91 millj­arða eða 3,1 pró­sent af VLF á fjórð­ungnum.

Hrein fjár­magns­við­skipti bættu erlenda stöðu þjóð­ar­bús­ins um 115 millj­arða króna á fjórð­ungnum og munar þar mest um kaup inn­lendra aðila á erlendum verð­bréfum sem námu um 80 millj­arða.

Erlendar eignir juk­ust í heild­ina um 74 millj­arða vegna fjár-magns­við­skipta en skuldir lækk­uðu um 40 millj­arða króna. Gengis- og verð­breyt­ingar höfðu nei­kvæð áhrif á erlenda stöðu þjóð­ar­bús­ins um 6 millj­arða króna. Það skýrist aðal­lega af 4 pró­sent hækkun á gengi krón­unnar gagn­vart helstu gjald­miðlum miðað við geng­is­skrán­ing­ar­vog, sam­kvæmt Seðla­bank­anum. Breyt­ingar á erlendum verð­bréfa­mörk­uðum voru litlar á árs­fjórð­ungnum eða rétt um 0,1 pró­sent lækkun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabankinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár