Marel og Össur draga vagninn í ávöxtun hlutabréfa Gildis

Hagnaður Gildis af bréfum sjóðs­ins í Marel og Össur nam 16,9 millj­örðum króna á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins 2019. Ef sú hluta­bréfa­eign er und­an­skilin var sam­tals tap á eign sjóðs­ins á bréfum í hinum 16 félög­unum sem hann átti í á Íslandi.

Hagnaður Gildis af hluta­bréfum í Marel var 9,1 millj­arður króna á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins. Hagnaður líf­eyr­is­sjóðs­ins af hluta­bréfa­eign hans í Össuri var 7,8 millj­arðar króna. Ekkert annað félag hefur skilað Gildi yfir millj­arði í hagnað á árinu, þótt Síminn, með um 900 millj­ónir króna, kom­ist nálægt því.

Sam­an­lagður hagn­aður Gildis af annarri inn­lendri hluta­bréfa­eign var þvert á móti nei­kvæður. Mest var tapið vegna hluta­bréfa í Icelandair (1,1 millj­arður króna) og í Eimskip (1,2 millj­arðar króna).

Þetta kom fram i kynn­ingu Árna Guð­munds­sonar, fram­kvæmda­stjóra Gildis, á fundi sjóðs­fé­laga og full­trúa­ráðs líf­eyr­is­sjóðs­ins sem fram fór á mið­viku­dag.

[adspot]Í kynn­ingu Árna kom fram að hrein eign sam­trygg­inga­deildar Gildis hefði hækkað um rúm­lega 82 millj­arða króna á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins og hefði staðið í 638,4 millj­örðum króna um síð­ustu mán­að­ar­mót. Sú við­bót sem til hefur fallið sam­anstendur af 58,4 millj­arða króna fjár­fest­inga­tekjum, 25,8 millj­arða króna iðgjöldum sem greidd hafa verið inn í sjóð­inn á tíma­bil­inu og 12,7 millj­arða króna gjald­miðla­tekjum. Á móti hefur Gildi grei­ytt út 14,7 millj­arða króna í líf­eyri á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins auk þess sem rekstr­ar­kostn­aður nam 837 millj­ónum króna.

Stærstu eigna­flokkar Gildis eru hluta­bréf. Þannig voru 27 pró­sent af eignum sam­trygg­ing­ar­deildar sjóðs­ins í erlendum hluta­bréfum um síð­ustu mán­aða­mót en 18,7 pró­sent í inn­lendum. Árni fór yfir hver ávöxtun þeirra hluta­bréfa hefði verið á árinu í kynn­ing­unni á fund­inum.

Þar kom í ljós að Marel (62 pró­sent ávöxtun) og Marel (58 pró­sent) skáru sig veru­lega úr. Þriðja besta ávöxt­unin var í bréfum í Símanum (28 pró­sent).

Veruleg nei­kvæð ávöxtun var á sumum félögum sem Gildi hefur fjár­fest í. Þar er Sýn (nei­kvæð ávöxtun upp á 37 pró­sent) og Icelandair (nei­kvæð ávöxtun um 30 pró­sent) í sér­flokki það sem af er ári.

Gildi er með langt mest undir í fjár­fest­ingum sínum í Marel og Össur, en sam­an­lagt virði þeirra hluta sem sjóð­ur­inn á í þeim tveimur félögum nemur 41,1 millj­arði króna. Það er um 42 pró­sent af öllu virði inn­lenda hluta­bréfa­safns sjóðs­ins. Ef eign Gildis í Arion banka, sem er metin á 12,2 millj­arða króna, er bætt við mynda hluta­bréf í þessum þremur félögum 54 pró­sent af inn­lenda hluta­bréfa­safni Gildis. Alls nemur hreinn hagn­aður Gildis af hluta­bréfum í íslenskum félögum 16 millj­örðum króna. Ef hagn­aður sjóðs­ins af bréfum í Marel og Össur er und­an­skilin, en hann hefur sam­tals verið 16,9 millj­arðar króna á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins, þá er tap á eign Gildis í hinum 16 skráðu félög­unum sem sjóð­ur­inn á bréf í.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöll

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár