Svandís: Mynd af græðgi sem fór úr böndunum

Svandís Svav­ars­dóttir, heil­brigð­is­ráð­herra, segir að þær ávirð­ingar sem fram komu í umfjöllun Kveiks um meintar mútu­greiðslur Samherja í Namibíu séu stór­mál. Hún segir að sú mynd sem dregin var upp í þætt­inum sé mynd af græðgi sem fór úr bönd­unum.

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir, heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Svandís Svav­ars­dóttir, heil­brigð­is­ráð­herra, segir að henni hafi liðið illa eftir að hafa horft á frétta­skýr­ing­ar­þátt Kveiks um Samherja í gær­kvöldi. „Mér fannst þetta ömur­legt. Já ég er bara mjög hugsi eftir þetta. Þessi mynd sem þarna er dregin upp er nátt­úr­lega mynd af græðgi sem fer úr bönd­unum,“ segir Svandís í sam­tali við Bítið á Bylgj­unni í morgun.

[links]Í frétta­­skýr­inga­þætti Kveiks í gær­kvöldi kom meðal ann­­ars fram að vís­bend­ingar væru um að greiðslur upp á að minnsta kosti 1,4 millj­­­arða króna frá Sam­herja til hóps sem inn­­i­heldur meðal ann­­­ars tvo ráð­herra í Namib­­­íu, væru mút­­u­greiðslur og að við­­­skipti fyr­ir­tæk­is­ins í Afr­ík­­u­land­inu væru skýr dæmi um spill­ing­u. Um­­fjöll­unin var unnin í sam­­starfi Kveiks, Stund­­ar­innar, Al Jazeer­a og Wiki­leaks.

Svandís bendir á að það sem hafi verið gott við þátt Kveiks sé að hann hafi sýnt aflið sem er í góðri og metn­að­ar­fullri blaða­mennsku. „Þarna sjáum við hvað almanna­hags­munum er betur gerð skil með því að fjöl­miðlar fái að vinna vinn­una sína til enda.“

Svandís segir jafn­framt að sann­ar­lega sé mörgum spurn­ingum um þetta mál ósvarað og hún líkt og aðrir í sam­fé­lag­inu bíði átekta. „Þarna er um að ræða gríð­ar­lega stóran ger­anda í íslensku atvinnu­lífi. Það er stór­mál, þær ávirð­ingar sem þarna komu fram. Það verður að kom­ast botns í það hvað er hæft í því sem þarna er nefnt og það er komið í far­veg,“ segir Svandís og vísir í að emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara hafi efni þátt­ar­ins nú þegar til skoð­unar.

Aðspurð hvort hún eigi von á því að þetta mál verði rætt sér­stak­lega í rík­is­stjórn svarar Svandís að hún átta sig ekki alveg á því. Næsti rík­is­stjórn­ar­fundur sé á föstu­dag­inn og segir Svandís að henni þyki það ekki ólík­legt að þetta mál beri á góma þá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mútur

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Upp­skrift að því að drepa umræð­una með börnum

Á þriðju­dag voru ætl­aðar mútu­greiðslur, skatt­svik og pen­inga­þvætt­is­til­burðir Samherja opin­beraðir. Líkt og venja er var lítið um varnir dag­inn eftir. Gögnin sem umfjöll­unin byggði á, og trú­verð­ug­leiki upp­ljóstr­ar­ans sem reyndi ekki með neinum hætti að breiða yfir sinn þátt í mál­inu, var enda yfir­þyrm­andi. Réttlát reiði kraum­aði í sam­fé­lag­inu og hvert rann­sókn­aremb­ætti á fætur öðru, í hverju land­inu á fætur...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár