Miðflokkurinn fékk 81 milljón króna í ríkisframlög

Mið­flokk­ur­inn er búinn að hreinsa upp skuldir sem hann stofn­aði til þegar hann tók þátt í þing­kosn­ing­unum 2017. Eigið fé flokks­ins fór úr því að vera veru­lega nei­kvætt 2017 í að vera jákvætt í fyrra, að uppi­stöðu vegna rík­is­fram­laga.

Mið­flokk­ur­inn hagn­að­ist um 30 millj­ónir króna á árinu 2018. Tekjur flokks­ins námu alls 89 millj­ónum króna og þar af voru 81 millj­ónir króna í formi rík­is­fram­laga, eða 91 pró­sent.. Kostn­aður við rekstur Mið­flokks­ins, sem var stofn­aður í aðdrag­anda kosn­ing­anna 2017 í kringum Sigmund Davíð Gunn­laugs­son, for­mann hans, var 59 millj­ónir króna í fyrra.

Þetta kemur fram í útdrætti úr árs­reikn­ingi Mið­flokks­ins sem birtur var á vef Rík­is­end­ur­skoð­unar í gær. Hann var síð­asti útdráttur úr árs­reikn­ingum þeirra flokka sem sitja á þingi sem stofn­unin birti.

Í útdrætt­inum kemur einnig fram að lög­að­ilar hafi gefið flokknum 4,4 millj­ónir króna á árinu 2018 og að ein­stak­lingar hafi lagt honum til 1,4 millj­ónir króna. Þrír lög­að­ilar gáfu Mið­flokknum hámarks­fjár­hæð sem mátti gefa, eða 400 þús­und krónur. Þeir voru HB Grandi, sem í dag heitir Brim, Síminn og fyr­ir­tækið Vest­ur­kantur ehf.

Búið að hreinsa upp kosningaskuldirnar

Mið­flokk­ur­inn fékk 10,9 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2017 og sjö þing­menn kjörna. Síðan þá hafa tveir þing­menn flutt sig frá Flokki fólks­ins, í kjöl­far Klaust­ur­máls­ins, og yfir til Mið­flokks­ins. Þing­flokkur hans telur því níu manns í dag. Eigið fé flokks­ins var nei­kvætt um 15,9 millj­ónir króna í lok árs 2017 en jákvætt um 14,7 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót. Flokknum hefur því tek­ist að reka sig með afgangi í fyrra og gera upp þær skuldir sem hann safn­aði upp vegna þátt­töku í kosn­ing­unum 2017, en þær námu 17,2 millj­ónum króna. [adspot]Skulda­staðan í lok árs 2018 var komin niður í 2,8 millj­ónir króna.

Árið 2018 var fyrsta árið í rekstri þeirra stjórn­mála­flokk­anna sem eiga full­trúa á þingi frá því að fram­lög til þeirra úr rík­­is­­sjóði voru hækkuð um 127 pró­­sent, að til­­lögu sex flokka sem sæti eiga á Alþingi. Fram­lög úr rík­­is­­sjóði til flokk­anna átta á þingi áttu að vera 286 millj­­­­­ónir króna í fyrra en urðu 648 millj­­­­­ónir króna eftir að sú ákvörðun var tek­in. Einu flokk­­­­arnir sem skrif­uðu sig ekki á til­­­­lög­una voru Píratar og Flokkur fólks­ins.

Þegar kosið verður næst, árið 2021, munu flokk­­­arnir átta sem náðu inn á þing í haust­­­kosn­­­ing­unum 2017 verða búnir að fá alls úthlutað rúm­­­lega 2,8 millj­­­örðum króna úr rík­­­is­­­sjóði vegna áranna 2018-2021 til að standa straum af starf­­­semi sinn­i.

Ný lög sam­­þykkt í fyrra

Ný lög um fjár­­­mál stjórn­­­mála­­flokka voru sam­­þykkt á Alþingi í des­em­ber í fyrra. Á meðal breyt­inga sem þau lög fela í sér eru að stjórn­­­mála­­flokkar mega nú taka á móti hærri fram­lögum frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­l­ing­­um. Hámarks­­fram­lagið var 400 þús­und krónur en var hækkað í 550 þús­und krón­­ur.

Auk þess var sú fjár­­hæð sem ein­stak­l­ingur þarf að gefa til að vera nafn­­greindur í árs­­reikn­ingum við­kom­andi flokka eða fram­­bjóð­enda hækkuð úr 200 þús­und krónum í 300 þús­und krón­­ur.

Hug­takið „tengdir aðil­­ar“ var líka sam­ræmt, en Rík­­is­end­­ur­­skoðun gerði í fyrra athuga­­semdir við umfram­fram­lög aðila sem voru gefin í gegnum nokkur mis­­mun­andi félög í eigu sömu aðila.

Þá var ákveðið að láta stjórn­­­mála­­flokk­anna skila árs­­reikn­ingum sínum til rík­­is­end­­ur­­skoð­anda fyrir 1. nóv­­em­ber ár hvert í stað 1. októ­ber líkt og nú er. Sú grund­vall­­ar­breyt­ing fylgdi með að Rík­­is­end­­ur­­skoðun mun hætta að birta tak­­mark­aðar upp­­lýs­ingar úr reikn­ingum flokk­anna, svo­­kall­aðan útdrátt, og birtir þess í stað árs­­reikn­ing­anna í heild sinni árit­aða af end­­ur­­skoð­end­­um.

Þessi breyt­ing á hins vegar ekki að taka gildi fyrr en á næsta ári, þrátt fyrir að nýju lögin séu þegar komin í gagn­ið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnahagmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár