Bréf í Iceland Seafood skráð á markað á þriðjudag

Iceland Seafood verður tuttug­asta félagið á Aðal­mark­aði Kaup­hallar Íslands þegar bréf í félag­inu verða tekin til við­skipta eftir helgi.

Bjarni Ármannsson er forstjóri Iceland Seafood.
Bjarni Ármanns­son er for­stjóri Iceland Seafood. Mynd: Aðsend mynd

Hluta­bréf Í Iceland Seafood International verða tekin til við­skipta á Aðal­mark­aði Kaup­hallar Íslands 29. októ­ber næst­kom­andi eftir að Nasdaq Iceland, sem á og rekur kaup­höll­ina, sam­þykkti umsókn félags­ins um skrán­ingu á þann markað. Áður var Iceland Seafood skráð á First North mark­að­inn.

Frá þessu er greint í til­kynn­ingu frá Kauphöll Íslands í dag.

Stjórn Iceland Seafood International hf. óskaði eftir því að öll hluta­bréf í félag­inu verði tekin til við­skipta á Aðal­mark­aðinum í byrjun októ­ber­mán­aðar.

[adspot]Almennt útboð á hluta­bréfum félags­ins hófst klukkan 12:00 mið­viku­dag­inn 16. októ­ber lauk klukkan 16:00 þann sama dag, eða við lokun mark­aða á hefð­bundum tíma.

Í útboð­inu voru seldir 225 millj­ónir hluta í félag­inu fyrir alls rúm­lega 2,1 millj­arð króna. Gengi bréf­anna var því 9,5 krónur á hlut. Um var að ræða 9,63 pró­sent hlut í Icelandic Seafood.

Bjarni Ármanns­son, sem eitt sinn var for­stjóri Glitnis, er for­stjóri Iceland Seafood. Félag í hans eigu, Sjáv­ar­sýn ehf., var líka stærsti eig­andi Iceland Seafood fyrir nýlegt hluta­fjár­út­boð, með 10,6 pró­sent eign­ar­hlut. Félagið Nes­fiskur ehf. átti 10,2 pró­sent hlut, FISK Seafood, sjáv­ar­út­vegs­armur Kaup­fé­lags Skag­firð­inga átti sömu­leiðis 10,2 pró­sent hlut og Jakob Valgeir ehf., í eigu útgerð­ar­manns­ins Jakobs Valgeirs Flosa­sonar, var fjórði stærsti eig­and­inn með 9,7 pró­sent hlut.

Þar á eftir kom félagið Solo Holding ehf. með 8,9 pró­sent hlut, en það félag er í eigu Sjáv­ar­sýnar, FISK Seafood, Jakobs Valgeirs, Nesfisks og Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur ehf., sem keypti þriðj­ung í því í nóv­em­ber í fyrra. Helsti eig­andi Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur er Guð­mundur Krist­jáns­son, for­stjóri Brims, en félagið er langstærsti eig­andi Brims með yfir helm­ings­eign­ar­hlut.

Í stjórn fyr­ir­tæk­is­ins eru Liv Berg­þór­s­dótt­ir, fyrr­ver­andi stjórn­­­ar­­for­­maður WOW air og Aur app, og fyrr­ver­andi for­­stjóri Nova, ­­Magnús Bjarna­­son, stofn­andi og fram­­kvæmda­­stjóri MAR Advisors og fyr­ver­andi for­­stjóri Icelandic Group, og áður­nefndur Jakob Val­­geir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöll

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár