Tímaáætlun um Brexit felld í breska þinginu

Boris Johnson for­sæt­is­ráð­herra segir að nú sé óvissa uppi hjá bresku þjóð­inni. Hann lýsti yfir von­brigðum, en sagði að Bretland myndi fara úr Evr­ópu­sam­band­inu, með einum eða öðrum hætti.

Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, lýsti yfir von­brigðum sínum eftir að breska þingið felldi til­lögu hans um tíma­á­ætlun fyrir umræðu um samn­ing Bret­lands og Evr­ópu­sam­bands­ins, vegna útgöngu Bret­lands úr sam­band­inu.

Atkvæðin féllu þannig að 308 sam­þykktu til­lög­una en 322 voru á móti, og sögðu nei.

Nú tekur við óvissa, sagði Johnson eftir að nið­ur­staðan varð ljós, en sagði að Bretland væri á leið úr úr Evr­ópu­sam­band­inu með einum eða öðrum hætti, og það í sam­ræmi við það sem lagt væri upp með, sem er 31. októ­ber, eftir níu daga.

Johnson sagði í þing­inu, í aðdrag­anda atkvæða­greiðsl­unnar, að hann myndi kalla eftir kos­ingum ef ekki tæk­ist að ljúka því sem væri lagt upp og sam­þykkja samn­ing­inn, fyrir 31. októ­ber. Eftir atkvæða­greiðslu var hins vegar komið anna hljóð í Johnson, og sagði hann að næsta mál á dag­skrá væri að heyra í leið­togum Evr­ópu­sam­bands­ins, sam­kvæmt frá­sögn breska rík­is­út­varps­ins BBC.

Jeremy Corbyn, leið­togi breska Verka­manna­flokks­ins, sagði að Johnson gæti sjálfum sér um kennt, en að hann væri til­bú­inn til við­ræðna um eðli­lega þing­lega með­ferð samn­ings um útgöngu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár