Nærri þriðjungi fleiri bílaleigubílar úr umferð

Mun fleiri bíla­leigu­bílar eru úr umferð í októ­ber í ár en í sama mán­uði í fyrra. Með­al­tekjur á hvern bíla­leigu­bíla hafa dreg­ist saman.

Tæplega þriðj­ungi fleiri bíla­leigu­bílar voru úr umferð í byrjun októ­ber í ár en í sama mán­uði í fyrra. Alls voru 919 bíla­leigu­bílar úr umferð í októ­ber miðað við 705 bíla í októ­ber 2018. Þá hefur jafn­framt fækkað í heildar bíla­leigu­flot­anum á milli ára. Þetta kemur fram í bráða­brigða­tölum Hagstofu Íslands. Frá júlí 2018 til júní 2019 veltu bíla­leigur hér á landi um 51 millj­örðum króna eða um 4,3 millj­örðum á mán­uði.

60 prósent ferðamanna leigja bílaleigubíla

[links]Um þrír af hverjum fimm ferða­mönnum sem komu til lands­ins í fyrra ferð­ast um á bíla­leigu­bíl, sam­kvæmt könnun Ferða­mála­stofu. Þá ferð­að­ist tæp­lega þriðj­ungur í skipu­lagðri rútu­ferð og um 15 pró­sent í áætl­un­ar­bif­reið. 

Í fyrra voru bíla­leigu­bílar um 8 pró­sent af með­al­út­gjöldum ferða­manna og eyðir að með­al­tali hver ferða­maður 16.732 þús­und krónur í bíla­leigu­bíla, að því er fram kemur í könn­unum Ferða­stofu.[adspot]

Meðaltekjur á hvern bílaleigubíl dragast saman

Í ferða­þjón­ustu­grein­ingu Lands­bank­ans kemur fram að á tíma­bil­inu júlí 2018 til júní 2019 veltu bíla­leigur um 51 millj­örðum króna eða um 4,3 millj­örðum á mán­uði.

Að með­al­tali voru um 23.600 bíla­leigu­bílar í umferð á þessu tíma­bili. Þetta þýðir að velta á hvern bíl var um það bil 180 þús­und krónur. Dregið hefur úr veltu á hvern bíl á síð­ustu árum en árið 2016 var með­al­velta á hvern skráðan bíl rétt yfir 200 þús­und krónur á mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár