Spá áframhaldandi en þó minni vexti í ferðaþjónustu

Hag­fræði­deild Lands­bank­ans spáir að þrátt tölu­verða fækk­un ferða­manna á þessu ári muni komum er­lend­ra ferða­manna til lands­ins fjölga um 3 pró­sent á næsta ári og um 5 pró­sent árið 2021.

Hag­fræði­deild Lands­banka Íslands er bjart­sýn á að áfram verði vöxtur í ferða­þjón­ustu hér á landi en að vöxt­ur­inn verði þó mun minni en Íslend­ingar hafa fengið að venj­ast á síð­ustu árum. Bankinn spáir að ferða­mönnum muni fjölga um 3 pró­sent á næsta ári og 5 pró­sent árið á eftir. Þetta kemur fram í nýrri grein­ingu bank­ans á stöðu ferða­þjón­ust­unnar hér á landi. 

Bjartsýn á vöxt ferðaþjónustunnar

Í grein­ing­unni kemur fram að margt bendi til þess að eft­ir­spurn eftir Íslandi sem áfanga­stað verði sterk á næstu árum. Þar horfir hag­fræði­deild Lands­bank­ans meðal ann­ars til við­horfskann­anna þar sem fram kemur að aukin ánægja gætir á meðal ferða­manna sem koma til lands­ins sem og jákvætt við­horf ferða­skipu­leggj­anda.

[links]Auk þess spili lægra gengi krón­unnar stóra rullu og þar með auk­inn kaup­mátt ferða­mann. Veiking krón­unnar á þessu ári hefur dregið mjög úr áhrifum gjald­þrots WOW air á tekjur íslenskra ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja. Í grein­ingu bank­ans er gert ráð fyrir stöð­ugu gengi en þó örlít­illi veik­ingu krón­unnar á spá­tíma­bil­inu sem mun styðja við áfram­hald­andi vöxt ferða­þjón­ust­unnar.

Aftur á móti hafa versn­andi efna­hags­horfur í helstu við­skipta­löndum Íslands sem og stórir óvissu­þættir á borð við borð við Brexit og við­skipta­stríð Banda­ríkj­anna og Kína einnig áhrif. Seðla­banki Evrópu hefur nýverið lækkað spá sína um hag­vöxt á evru­svæð­inu fyrir næsta ár úr 1,4 pró­sent niður í 1,2 pró­sent. Líkurnar á sam­drætti í Banda­ríkj­unum á næsta ári hafa jafn­framt auk­ist tölu­vert á síð­ustu vikum og mán­uðum.

6 prósent fjölgun í flugsætum hjá erlendum flugfélögum

Enn fremur kemur fram í grein­ing­unni að að ráð­andi þáttur í fjölgun ferða­manna á næstu árum verði fram­boð á flug­sætum til lands­ins. Bankinn gerir ráð fyrir að fram­boð erlendra flug­fé­laga af flug­sætum muni aukast um 6 pró­sent á næsta ári. 

Í grein­ing­unni segir að nú séu uppi hug­myndir um stofnun tveggja flug­fé­laga á grund­velli rústa WOW air. Verði af öðrum eða báðum þessum áformum sé ljóst að áhrifin verða til meiri vaxtar en að áhrifin verða þó fremur lítil , að minnsta kosti til að byrja með, enda muni þau ekki bæta miklu við það fram­boð sem nú þegar er á flug­sætum til og frá land­inu.

Þá er hins vegar einnig óvissa með fram­boð flug­sæta Icelandair í ljósi vand­ræða með Boeing Max- þot­urnar og hvenær þær kom­ast í gagnið. Með fyr­ir­vara um þessa óvissu gerir bank­inn ráð fyrir að sæta­fram­boð Icelandair auk­ist um 5 pró­sent á næsta ári.

Viðbrögð Icelandair við falli WOW air hafa dregið tölu­vert úr áhrifum á ferða­þjón­ust­una hér á landi. Á fyrstu 7 mán­uðum árs­ins flutti Icelandair 29 pró­sent fleiri erlenda ferða­menn til lands­ins en á sama tíma í fyrra. Í grein­ingu bank­ans kemur fram að ef ekki hefði komið til neinnar fjölg­unar hjá Icelandair hefði ferða­mönnum til lands­ins fækkað um 31,4 pró­sent.

2,2 milljónir ferðamanna komi til landsins árið 2021

Að lokum er því spáð í grein­ing­unni að fjöldi erlendra gesta sem sækja muni landið heim með flugi á þessu ári verði rúm­lega 2 millj­ónir og að þeim fækki í heild sinni um tæp­lega 14 pró­sent frá fyrra ári. 

Á næsta ári spáir bank­inn að ferða­mönnum fjölgi um 3 pró­sent og 5 pró­sent á árinu 2021 og verði þá hátt í 2,2 millj­ónir, litlu færri en metárið 2017.

Í árlegri ferða­þjón­ustu­út­tekt Arion banka sem birt var fyrr í sept­em­ber er því hins vegar spáð að komum ferða­manna til Íslands muni fjölga um 2 pró­sent á næsta ári, 7 pró­sent árið 2021 og 4 pró­sent á ár­inu 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár