Velta í ferðaþjónustu nánast óbreytt milli ára

Þrátt fyrir mik­inn sam­drátt í flugi var velta í öðrum ein­kenn­andi greinum ferða­þjón­ustu nán­ast óbreytt milli ára í maí og júní. Tölur Hag­stof­unnar benda til þess að í kjöl­far falls WOW air stoppi erlendir ferða­menn lengur á land­inu og eyði fleiri krónum.

Velta í ein­kenn­andi greinum ferða­þjón­ustu, fyrir utan far­þega­flutn­ing milli landa, var nán­ast óbreytt milli ára í maí og júní 2019 þrátt fyrir mik­inn sam­drátt í flugi. Veltan dróst saman um 0,2 pró­sent ef borið er saman tíma­bilið maí til júní 2018 til sama tíma­bils á þessu ári. Þetta kemur fram í tölum Hag­stof­unnar.

Breytt hegðun ferðamanna vegna aukins vægis erlendra flugfélaga

Yfir mán­uð­ina maí og júní var velta í far­þega­flutn­ing milli landa með flugi 29 pró­sent lægri en yfir sama tíma­bili í fyrra. Síðan í júní í fyrra hafa tvö flug­fé­lög hætt starf­semi, Primera Air í októ­ber 2018 og WOW air í mars 2019. Þrátt fyrir þessar miklu umsvipt­ingar í flugi til lands­ins hélst velta í gisti­þjón­ustu í maí og júní svo til óbreytt milli ára sem og velta í veit­inga­rekstri. Samvæmt tölum Hag­stof­unnar veltu gisti­staðir og veit­inga­staðir 35 millj­örðum yfir maí og júní á þessu ári.

Í grein­ingu Arion ­banka á íslenskri ferða­þjón­ustu frá því í júlí kemur fram að fall WOW air hafi lík­lega haft áhrif á hegðun þeirra ferða­manna sem koma til lands­ins. Sam­kvæmt könnun Ferða­mála­stofu meðal erlendra ferða­manna dvöld­u ­ferða­menn ­með­ WOW a­ir ­skemur en aðrir ferða­menn og eyddu minna að með­al­tali en til dæmis ferða­menn með­ Icelanda­ir. Þá flutt­i WOW a­ir hlut­falls­lega fleiri ­ferða­menn ­sem stöldr­uðu aðeins í skamma stund á land­inu án þess að gista.

Í kjöl­far gjald­þrots WOW air í mars jókst vægi erlendra flug­fé­laga í flug­fram­boði lands­ins en erlend flug­fé­lög fljúga alla jafna sjaldnar í viku til lands­ins. Sú þróun virð­ist hafa leitt til þess að hver ferða­maður dvelur lengur og eyðir meiri á meðan hann er hér á landi.

Gistinóttum fækkað lítillega

Í maí síð­ast­liðnum fækk­aði heild­ar­gistin­óttum um rúm 9 pró­sent á meðan erlendum ferða­mönnum fækk­aði um 23,6 pró­sent. Þá dróst heild­ar­fjöldi gistinótta í júní aðeins um 2 pró­sent í júní og 1 pró­sent í júlí síð­ast­liðnum.

Samkvæmt grein­ingu Arion banka dvaldi hver ferða­maður mun lengur hér á landi í sumar en fyrir ári síðan. Ef gistinætur eru teknar saman og deilt niður á fjölda ferða­manna þá má sjá að dval­ar­tími hvers ferða­manns var 18,7 pró­sent lengri í maí á þessu ári en í fyrra, sem er nálægt sól­ar­hrings lengri dval­ar­tími.

Óvænt gleðitíðindi

Enn fremur hefur eyðsla hvers og eins ferða­manns auk­ist á milli ára. Samkvæmt grein­ingu Arion banka ráð­staf­aði hver ferða­maður 30 pró­sent fleiri krónum í maí og korta­velta á hvern ferða­mann aldrei verið meiri. Þó að ferða­mönnum fækk­aði um 23,6 pró­sent þá dróst korta­velta í maí aðeins saman um 13,1 pró­sent á milli ára.

Í grein­ing­u ­Arion ­banka kemur fram að við­búið var að korta­velta á hvern ferða­menn í krónum talið myndi aukast sök­um ­geng­is­veik­ing­ar krón­unnar en hversu mikil aukn­ingin það var hafi verið óvænt gleði­tíð­ind­i. „Að því gefnu að þetta sé end­an­leg nið­ur­staða um korta­notkun ferða­manna þá verður svo lít­ill sam­dráttur í maí og vöxtur í apríl að telj­ast mikil varn­ar­sigur fyr­ir­ ­ís­lenska ­ferða­þjón­ustu,“ segir í grein­ing­unni.

Virðisaukaskyld velta bílaleiga 10 milljarðar yfir maí og júní

Smá­vægi­leg aukn­ing var í virð­is­auka­skyldri veltu bíla­leiga á milli ára og námu þær 10 millj­örðum á tíma­bil­inu maí til júní á þessu ári. Velta ferða­skrif­stofu og ferða­skipu­leggj­enda breytt­ist einnig lítið í heild­ina eða aðeins um 0,1 pró­sent á milli ára.

Veltan dróst hins vegar saman um 10,7 pró­sent hjá ferða­skrif­stofum sem selja ferðir erlendis en jókst hjá skrif­stofum sem selja ferðir á Íslandi um 2 pró­sent. Virð­is­auka­skyld velta ferða­skrif­stofa og ferða­skipu­leggj­enda voru 20 millj­arðar yfir maí og júní 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár