Magnús Harðarson skipaður nýr forstjóri Kauphallarinnar

Magnús Harð­ars­son tekur við af bróður sínum Páli sem for­stjóri Nasdaq Iceland.

Magnús Harð­ar­son hefur verið skip­aður nýr for­stjóri Nasdaq Iceland, eða Kaup­hallar Íslands. Magnús mun hefja störf nú þegar. Hann hefur starfað hjá Nasdaq síðan 2002, fyrst sem for­stöðu­maður við­skipta­sviðs og síðar sem for­stöðu­maður sölu og þjón­ustu. Hann hefur að auki verið stað­geng­ill for­stjóra Nasdaq Iceland frá árinu 2011.

Magnús tekur við starf­inu af bróður sínum, Páli Harð­ar­syni, sem hafði gegnt því frá árinu 2011. Páll var nýverið skip­aður fjár­mála­stjóri evr­ópskra mark­aða hjá Nas­daq (European Markets).

Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands er haft eftir, Armintu Saladziene, aðstoð­ar­for­stjóra Nasdaq, að fyr­ir­tækið þekki mjög vel til starfa Magnúsar, enda hafi það fengið að njóta krafta hans í fram­kvæmda­stjórn Nasdaq Iceland í mörg ár. „Magnús hefur gríð­ar­lega mikla þekk­ingu á efna­hags­legu umhverfi og reynslu á fjár­mála­mark­aði sem er nauð­syn­legt vega­nesti fram veg­inn, en hann hefur gegnt stóru hlut­verki í upp­bygg­ingu verð­bréfa­mark­aðar á Íslandi. Við erum viss um að þekk­ing hans og hug­myndir um áfram­hald­andi vöxt mark­að­ar­ins eigi eftir að verða verð­bréfa­mark­aði og atvinnu­lífi til góðs og hlökkum til að vinna með honum áfram í nýju starfi.“

Magnús er fæddur árið 1966. Áður en hann hóf störf hjá Nasdaq Iceland, þá Kauphöll Íslands, var hann hag­fræð­ingur hjá Þjóð­hags­stofnun í þrjú ár og þar áður starf­aði hann sem efna­hags­legur ráð­gjafi. Hann hefur Ph.D. gráðu í hag­fræði frá Yale Uni­versity.

Magnús hefur gegnt starfi for­stjóra frá 1. októ­ber síð­ast­liðnum, þegar bróðir hans Páll hóf störf sem fjár­mála­stjóri evr­ópskra mark­aða hjá Nas­daq (European Markets). Páll mun einn­ing sitja í fram­kvæmda­stjórn European Markets undir stjórn Björn Sibbern. Undir European Markets heyra allir mark­aðir Nas­daq í Evr­ópu og á Norð­ur­lönd­un­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöll

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár