Enn eykst kynjabilið í starfsnámi á framhaldsskólastigi

Aðeins þrír af hverjum tíu nem­endum á fram­halds­skóla­stigi er í starfs­námi hér á landi. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­maður Samtaka iðn­að­ar­ins, segir að það þurfi sam­stillt þjóð­ar­á­tak til að fjölga starfs­námsnemum.

Guðrún Svava, nemandi í bifvélavirkjun.
Guðrún Svava, nem­andi í bif­véla­virkjun. Mynd: #Kvennastarf

Þrír af hverjum tíu nem­endum á fram­halds­skóla­stigi voru í starfs­námi haustið 2018 en 69,3 pró­sent nem­enda stund­uðu nám á bók­náms­brautum. Til sam­an­burðar þá stunda um 50 pró­senta nem­enda starfs­nám á hinum Norð­ur­lönd­unum. Þá jókst bilið á milli kynj­anna á milli ára og var hlut­fall stráka í starfs­námi mun hærra en stelpna. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­maður Samtaka iðn­að­ar­ins, segir að það þurfi sam­stillt þjóð­ar­á­tak til að fjölga starfs­námsnemum.

Aðgerðir stjórnvalda ekki skilað árangri

[links]Í nýjum tölum Hagstofu Íslands má sjá að rúm­lega þrír af hverjum tíu nem­endum á fram­halds­skóla­stigi voru í starfs­námi haustið 2018 sem er svip­aður fjöldi og árið áður. Undir starfs­nám flokk­ast allar iðn­greinar, list­nám á fram­halds­skóla­stigi og önnur starfs­menntun þar á meðal sjúkra­liða­nám og garð­yrkju­nám á fram­halds­skóla­stigi.

Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar frá apríl 2017 um starfs­menntun segir að þrátt fyrir árlöng fyr­ir­heit stjórn­valda um að efla starfs­nám á fram­halds­skóla­stigi hafi aðgerðir stjórn­valda ekki skilað þeim árangri sem stefnt var að þegar lög nr. 92/2008 um fram­halds­skóla voru sam­þykkt.

Með þeim átti meðal ann­ars að efla verk­nám og ná fram sterkara sam­starfi skóla, vinnu­staða og atvinnu­lífs­ins í heild. Lögin áttu að verða starfs­rétt­inda­námi til fram­dráttar og opna skólum leið til að efla starfs­nám og nám tengt þjón­ustu­greinum. Nið­ur­staða Rík­is­end­ur­skoð­unar er að það hafi ekki gengið eftir.

Bilið á milli kynjanna jókst á milli ára

Árið 2017 var átak­inu #kvenna­starf hleypt af stökk­unum af Samtökum iðn­að­ar­ins og öllum iðn- og verk­greina­skólar lands­ins. Átakinu var ætlað að útrýma úreltum staðalí­myndum um svokölluð karla- og kvenna­störf og vekja athygli á þeim konum sem eru­starf­andi í hinu ýmsum kar­lægum starfs­greinum. Markmið átaks­ins var einnig að fjölga konum í iðn- og verk­greinum.

„Augljóst er að ef fleiri stelpur sjá tæki­færi í starfs­menntun verður auð­veld­ara að fjölga nem­endum í iðn- og verk­mennta­greinum og fleira fag­menntað fólk verður til fyrir íslenskt atvinnu­líf,“ segir á heima­síðu átaks­ins. 

Bilið á milli kynj­anna í starfs­námi jókst hins vegar á milli árs­ins 2017 og 2018 og voru karlar 39,3 í starfs­námi haustið 2018 en aðeins 21,5 pró­sent kvenna. [adspot]

Helmingur nemenda stundar starfsnám á hinum Norðurlöndunum

Á hinum Norð­ur­lönd­unum leggja um 50 pró­sent nem­enda stund á starfs­nám á fram­halds­skóla­stigi sam­an­borið við um 30 pró­senta nem­enda hér á landi. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­maður SI, vakti athygli miklum vanda starfs­náms hér á landi í erindi sínu á mál­þingi í Háskól­anum á Akureyri í gær.

„Við hljótum að spyrja okkur, hvað er að á Íslandi þegar hugað er að þessum sam­an­burði? Erfitt er að kenna áhuga­leysi nem­enda um en í nýlegri könnun kemur fram að um helm­ingur nýnema í fram­halds­skólum hefur meiri áhuga á verk­legum fögum en bók­legum. Aðeins um 15% nem­enda grunn­skóla­nem­enda völdu þó starfs­námið í fram­halds­skóla nú vorið 2019. Þetta þýðir að um 35% eða um 1.400 umsækj­endur fundu sig knúna til að velja bók­nám í stað starfs­náms­ins, gegn eigin sann­fær­ingu. Þetta er sorg­leg staða,“ segir Guðrún.

Hún segir jafn­framt að fyrstu og stærstu hindr­an­irnar séu rót­gróið sam­fé­lags­við­horf og sleggju­dómar sem finn­ist til að mynda hjá vinum, kenn­urum og náms­ráð­gjöfum. En einnig væru kerf­is­brestir í grunn­skóla- og fram­halds­skóla­kerf­inu sem hindra nem­endur. 

Guðrún segir að það sé stöðugt verk­efni og áskorun hjá Samtökum iðn­að­ar­ins að fjölga starfs­námsnemum. „Við erum með þessa vinnu í sífelldri end­ur­skoðun. Ég hef þó oft sagt að okkar átak eitt og sér dugi ekki til því vand­inn er djúp­stæður. Við þurfum sam­stillt þjóð­ar­á­tak til að lyfta þessu grettistaki í eitt skipti fyrir öll. Slíkt átak þarf að eiga sér stað í sam­vinnu skóla­stofn­ana, for­svars­manna atvinnu­lífs og stjórn­valda. Samtök iðn­að­ar­ins eru til­búin til verks­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár