Fimmtungur ungs fólks án framhaldsskólamenntunar

Hlutfall fólks á aldr­inum 25 til 34 ára sem ekki hefur lokið fram­halds­skóla­prófi er hærra á Íslandi en að með­al­tali innan OECD-ríkj­anna eða alls 19 pró­sent. Mun færri inn­flytj­endur útskrif­ast úr fram­halds­skóla hér á landi.

Mun fleira ungt fólk hefur ekki lokið fram­halds­skóla­prófi hér á landi en að með­al­tali innan ríkja OECD eða alls 19 pró­sent fólks á aldr­inum 25 til 34 ára. Aftur á móti er hlut­fall háskóla­mennt­aðra á sama aldri hærra hér á landi en að jafn­aði innan OECD og hefur það hlut­fall hækkað hratt á síð­ustu árum. Þetta kemur fram í árlegri skýrslu Efnahags og fram­fara­stofn­unar (OECD) um menntun.

Hærri atvinnuþátttaka

Í nýrri skýrslu OECD um menntun eru greindar ýmsar upp­lýs­ingar um stöðu skóla­kerfa í OECD-ríkj­unum, þar á meðal mennt­un­ar­stig þjóðar og fjár­mögnun skóla. Í skýrsl­unni kemur meðal ann­ars fram að hlut­fall fólks á aldr­inum 25 til 34 ára sem ekki hefur lokið fram­halds­skóla­prófi er að með­al­tali 15 pró­sent innan ríkja OECD. Það er lægra hlut­fall en hér á landi þar sem 19 pró­sent ungs fólks án fram­halds­skóla­mennt­unar, sam­kvæmt skýrsl­unni.

Enn fremur kemur fram í skýrsl­unni að hér á landi er atvinnu­þátt­taka ungs fólks án fram­halds­skóla­prófs mjög há hér á landi eða alls 80 pró­sent sam­an­borið við 60 pró­sent að jafn­aði innan OECD.

Mun færri innflytjendur útskrifast úr framhaldsskóla.

Í tölum Hag­stof­unnar má sjá að skóla­sókn inn­­flytj­enda í leik­­skóla, fram­halds­­­skóla og háskóla er að jafn­­aði lægri en skóla­­sókn inn­­­lendra hér á landi. Mestur er mun­­ur­inn í fram­halds­­­skóla en hlut­­falls­­lega færri inn­­flytj­endur en inn­­­lendir byrja í fram­halds­­­skóla við 16 ára aldur og skóla­­sókn þeirra lækkar meira fyrir hvert ald­­ursár.

Ef tölur árs­ins 2017 eru skoð­aðar má sjá að nærri allir inn­­­lendir á 16. ald­­ursári sækja fram­halds­­­skóla, en átta af hverjum 10 inn­­flytj­end­­um. Á 19. ald­­ursári sóttu um sjö af hverjum 10 inn­­­lendum íbúum fram­halds­­­skóla, en aðeins um tveir af hverjum 10 inn­­flytj­end­­um.

Í grein­ingu Hag­stof­unnar segir að end­­ur­­tekn­ing þessa mynsturs á árunum 2008 til 2017 gefur vís­bend­ingu um að brott­hvarf úr fram­halds­­­skóla sé algeng­­ara meðal inn­­flytj­enda en inn­­­lendra. Jafn­­framt hafa flestir þeirra inn­­flytj­enda sem sækja fram­halds­­­skóla hér landi dvalist á Íslandi í meira en níu ár.

Framlög á hvern háskólanema enn undir meðaltali OECD

Í skýrslu OECD eru fram­lög ríkja á hvern háskóla­nema einnig borin saman. Á árinu 2016, sem eru nýj­ustu tölur skýrsl­unnar, voru fram­lög á hvern háskóla­nema hér á landi enn undir með­al­tali OECD ríkj­anna eða um 94 pró­sent af með­al­tal­inu.

Framlög Íslands hafa þó auk­ist milli ára en árið 2015 námu fram­lögin 81 pró­sent af með­al­tali OECD og hækk­uðu því um 13 pró­sentu­stig á einu ár. Ef litið er á tíma­bilið 2010 til 2016 þá hafa fram­lög Íslands hækkað um 43 pró­sent á meðan meðal hækkun fram­laga innan OCED 8 pró­sent. Ísland er þó enn undir með­al­tali OECD.

Fleiri konur með háskólapróf

Hlutfall háskóla­mennt­aðra á aldr­inum 25 til 34 ára vaxið mikið hér á landi á síð­ustu tíu árum eða úr 33 pró­sent í 47 pró­sent í fyrra, sam­kvæmt skýrsl­unni. Mennt­un­ar­stig þessa ald­urs­hóps er svipað og í Noregi og Svíþjóð sem er yfir með­al­tali OECD. Þá hafa mun fleiri konur lokið háskóla­prófi í þessum ald­urs­hóp hér á landi eða 56 pró­sent kvenna en 39 pró­sent karla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

háskólanám

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár