Niðurgreiðsla sumarúrræða brýtur gegn bæði EES-samningi og lögum að mati FA

Félag atvinnu­rek­enda hefur sent Lilju Alfreðs­dóttur mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra erindi vegna rík­is­styrkja til sum­ar­náms á háskóla­stigi. Hluti styrkj­anna fer í að nið­ur­greiða nám­skeiða­hald, sem FA segir skekkja sam­keppn­is­stöðu einka­fyr­ir­tækja.

Ólafur Stephensen er framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda.
Ólafur Steph­en­sen er fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda. Mynd: Hringbraut

Félag atvinnu­rek­enda (FA) hefur sent Lilju Alfreðs­dóttur mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra erindi vegna útfærslu á stuðn­ingi ráðu­neytis hennar við sum­ar­nám, en 500 millj­ónum króna var veitt til sum­ar­náms á háskóla­stigi.

FA segir að skoðun sín á mál­inu hafi leitt í ljós að veru­legur hluti þeirrar fjár­hæðar renni til símennt­un­ar­stofn­ana háskól­anna og feli í sér tug­þús­unda nið­ur­greiðslur á nám­skeiðum sem séu í beinni sam­keppni við nám­skeið á vegum einka­rek­inna fræðslu­fyr­ir­tækja.

„End­ur­mennt­un­ar­deildir háskól­anna aug­lýsa nú nám­skeið á 3.000 krónur, sem alla jafna kosta tugi þús­unda. Í kynn­ingum á þeim segir beinum orðum að þau séu nið­ur­greidd af mennta­mála­ráðu­neyt­inu,“ segir í erindi FA.

Þetta, segir FA, virð­ist brjóta gegn banni gegn sam­keppn­is­hamlandi rík­is­styrkjum sem fjallað er um í 61. grein EES-samn­ings­ins og að mati FA brýtur þessi nið­ur­greiðsla ráðu­neyt­is­ins á nám­skeiðum einnig gegn lögum um opin­bera háskóla og sam­keppn­is­lögum, en nánar er fjallað um erindi FA til ráð­herra á vef félags­ins. 

Þar kemur fram að Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu og Eft­ir­lits­stofnun EFTA hafi einnig verið send afrit af erind­inu.

Ósanngjörn samkeppni að mati einkafyrirtækja

Kjarninn fjall­aði um þessi sum­ar­úr­ræði stjórn­valda fyrr í þessum mán­uði og greindi frá óánægju fram­kvæmda­stjóra tveggja einka­fyr­ir­tækja á fræðslu­mark­aði með nið­ur­greidd nám­skeið á vegum háskóla lands­ins.

„Okkur finnst þetta dálítið sér­stakt, að það sé í raun og veru verið að halda þessu innan rík­is­ins. Eins og við horfum á þetta þá er auð­vitað nógu erfitt að reka einka­fyr­ir­tæki með öllum þeim áföllum sem hafa dunið yfir síð­ustu mán­uði,“ sagði Jón Jósa­fat Björns­son fram­kvæmda­stjóri Dale Carnegie á Íslandi þá í sam­tali við Kjarnann og Ingrid Kuhlman, fram­kvæmda­stjóri hjá Þekk­ing­ar­miðlun tók í sama streng.[links]

Hún benti á að end­ur­mennt­un­ar­deildir háskól­anna væru að bjóða upp á nám­skeið sem að ein­hverju leyti skör­uð­ust við fram­boð einka­fyr­ir­tækj­anna á þessum mark­aði.

„Þetta eru meðal ann­ars nám­skeið um jákvæða sál­fræði, um breyt­inga­stjórnun og um árang­urs­ríka fram­komu. Þetta eru allt nám­skeið sem einka­að­ilar bjóða líka upp á. Nú er ég með fram­kom­unám­skeið og um teym­is­vinnu. Það er alveg ljóst að við sem einka­að­ilar á fræðslu­mark­aði getum ekki keppt við þessi verð. Það er alveg ljóst að ég mun ekki bjóða upp á nein nám­skeið í jákvæðri sál­fræði í bil­i,“ sagði Ingrid.

Félag atvinnu­rek­enda segir að auð­veld­lega hefði mátt útfæra að minnsta kosti hluta stuðn­ings­ins með öðrum hætti, til dæmis með svip­uðum móti og ferða­gjöf stjórn­valda, ein­hvers­konar ávís­ana­kerfi þar sem ein­stak­lingar gætu nýtt náms­styrk frá rík­inu ýmist hjá háskólum eða einka­reknum fræðslu­fyr­ir­tækjum. Með því móti hefði sam­keppn­is­staðan á þessum mark­aði, sem þegar væri skökk, ekki skekkst enn frekar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

háskólanám

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár