Breska ríkið búið að selja síðustu kröfuna á Kaupþing

Rík­is­sjóður Bret­lands hefur selt eft­ir­stand­andi kröfur sínar á Kauþing Singer & Fried­lander, dótt­ur­banka hins íslenska Kaup­þings. Kröf­urnar voru til­komnar vegna Edge-net­reikn­ing­anna.

Netreikningar Kaupþings, Kaupthing Edge, nutu mikilla vinsælda enda voru greiddir háir vextir fyrir þau innlán sem lögð voru inn á þá.
Net­reikn­ingar Kaup­þings, Kaupt­hing Edge, nutu mik­illa vin­sælda enda voru greiddir háir vextir fyrir þau inn­lán sem lögð voru inn á þá. Mynd: Úr safni

Trygg­inga­sjóður inn­stæðu­eig­enda í Bret­landi (FSCS) hefur selt eft­ir­stand­andi kröfur sínar á hinn gjald­þrota banka Kaupþing Singer & Fried­lander (KFS). Alls fékk sjóð­ur­inn 17,8 millj­ónir punda fyrir eft­ir­stand­andi kröfur sínar þegar þær voru seldar til Tavira Securities Limited. John Glen, einn aðstoð­ar­fjár­mála­ráð­herra Bret­lands, til­kynnti breska þing­inu um þessa þróun með skrif­legri til­kynn­ingu sem var birt á mánu­dag.

[links]Þar með lýkur beinum afskiptum rík­is­sjóðs Bret­lands af Kaup­þingi, tæpum ell­efu árum eftir að þau hófust í banka­hrun­inu þegar breska ríkið ákvað að lána trygg­inga­sjóðnum svo hann gæti greitt fyrir flutn­ing á inn­lánum þeirra 157 þús­und við­skipta­vina sem nýtt höfðu sér Edge-net­reikn­inga Kaup­þings til að ávaxta inn­lán sín yfir til hol­lenska bank­ans ING.

Alls lán­aði rík­is­sjóður Bret­lands trygg­inga­sjóðnum 2,6 millj­arða punda til að standa undir þeim greiðslum sem hann þurfti til þessa. Á móti eign­að­ist hann kröfur á þrotabú KFS.

Trygg­inga­sjóð­ur­inn hefur end­ur­greitt þessa upp­hæð til breska rík­is­sjóðs­ins auk vaxta upp á 146 millj­ónir punda. Útgreiðslur úr þrota­búi Kaupþing Singer & Fried­lander til rík­is­sjóðs Bret­lands fyrir síð­ustu greiðsl­una námu 421 millj­ónum punda.

Hinn erlendi netreikningurinn

Icesave-reikn­ing­anna þekkja flestir, og þau vanda­mál sem þeir náðu að baka íslenskri þjóð. Ástæða þess að þeir ollu þeim skaða sem þeir gerðu var að starf­semi Lands­banka Íslands í Bret­landi, sem tók á móti inn­lán­unum sem söfn­uð­ust, var í úti­búi frá íslenska móð­ur­bank­anum.

[adspot]Því féll ábyrgð á lág­marks­greiðslum á inn­stæð­unum sem þurfti að greiða út við þrot Lands­banka Íslands á íslenska trygg­inga­sjóð inn­stæðu­eig­enda, sem átti ekki fyrir þeim. Bretar og Hol­lend­ingar ákváðu að greiða út lág­markastrygg­ing­una og reyna svo að rukka Ísland. Úr varð Icesave málið sem leyst­ist á end­anum fyrir EFTA-dóm­stólnum snemma árs 2013, þar sem því var hafnað að Ísland hefði brotið geg Evr­óputil­skipun um inn­stæðu­trygg­ingar með því að greiða ekki eig­endum Icesave reikn­inga lág­marks­inn­stæðu­trygg­ingu. Þrotabú Lands­bank­ans átti á end­anum fyrir öllum greiðsl­unum og kláraði að greiða þær í jan­úar 2016. Indriði Þor­láks­son, fyrr­ver­andi ráðu­neyt­is­stjóri í fjár­mála­ráðu­neyt­inu sem mikið að Icesavemálinu, hélt því fram að greiðslur frá Íslandi í gjald­eyri vegna inn­stæðna í úti­búum Lands­banka Íslands í Bret­landi og Hollandi hafi á end­anum verið 53,5 millj­örðum króna umfram þann höf­uð­stól sem ríkin höfðu yfir­tekið.

Edge-reikningarnir

Kaupþing tók einnig þátt í því að bjóða mjög háa vexti fyrir net­inn­lán til að verða sér úti um laust fé á síð­ustu miss­erum starf­semi sinnar. Það var gert í gegnum Kaupt­hing Edge net­reikn­ing­anna. Sá banki gerði það hins vegar í gegnum dóttu­fé­lög, meðal ann­ars Kaupþing Singer & Fried­lander í Bret­landi. Því voru inn­lánin ekki á ábyrgð hins íslenska Trygg­inga­sjóðs inn­stæðu­eig­enda heldur sjóða í þeim löndum þar sem dótt­ur­fé­lögin störf­uðu.

Þann 8. októ­ber 2008 ákvað breska fjár­mála­eft­ir­litið (FSA) að banna Kaupþing Singer & Fried­lander að taka við nýjum inn­lánum og ákvörð­unin átti að taka gildi síðar þennan sama dag. Í kjöl­farið voru Edge net­reikn­ing­arnir fluttir til hol­lenska bank­ans ING Direct N.V. Þessi ákvörðun var tekin til að vernda almanna­hags­muni og tryggja stöð­ug­leika breska fjár­mála­kerf­is­ins, sam­kvæmt skjölum frá breskum eft­ir­lits­stofn­unum, við aðstæður þar sem FSA taldi að Kaupþing Singer & Fried­lander upp­fyllti ekki lengur skil­yrði fyrir starfs­leyfi til að taka við inn­lánum.

Klukkan 14:49 þennan sama dag, 8. októ­ber 2008, var Kaupþing Singer & Fried­lander settur í greiðslu­stöðvun. Daginn eftir féll móð­ur­bank­inn, Kaupþing á Íslandi.

Þann 20. októ­ber 2009 komst breskur dóm­stóll að þeirri nið­ur­stöðu að flutn­ingur Edge inn­lán­anna frá Kaup­þingi Singer & Fried­lander hefði verið bæði mál­efna­legur og lög­legur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hrun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár