Neyðarlánaskýrslan áfellisdómur yfir stjórnsýslu Seðlabankans

Þing­mað­ur­inn sem lagði fram fyr­ir­spurn um ráð­stöfun, inn­heimtur og ákvörð­un­ar­töku vegna veit­ingu neyð­ar­láns Seðla­banka Íslands til Kaup­þings fyrir rúmum ára­tug segir að vinnu­brögð Seðla­bank­ans í mál­inu hafi ekki verið boð­leg.

„Þetta er auð­vitað áfell­is­dómur finnst mér yfir stjórn­sýsl­unni í bank­anum að þessu leyti. Það er alveg vafa­laust í mínum huga.“

[links]Þetta sagði Jón Steindór Valdi­mars­son, þing­maður Við­reisnar, í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í gær­kvöldi. Jón Steindór lagði í fyrra fram fyr­ir­spurn til for­sæt­is­ráð­herra þar sem hann fór fram á að fá upp­lýs­ingar um ráð­stöfun neyð­ar­láns­ins sem Seðla­banki Íslands veitti Kaup­þingi í októ­ber 2008, upp­lýs­ingar um hvernig ákvörðun um lánið var veitt og hvernig inn­heimtur af lán­inu voru.

Í svari sínu við fyr­ir­spurn­inni beindi for­sæt­is­ráð­herra því til Seðla­banka Íslands að hann myndi óska eftir upp­lýs­ingum um þá ráð­stöfun frá Kaup­þingi ehf., slita­búi hins fallna banka.

Skýrsla Seðla­bank­ans um veit­ingu láns­ins var síðan birt í fyrra­dag.

Hægt er að sjá stiklu úr þætti gær­dags­ins hér að neðan:

Í skýrsl­unni kemur skýrt fram að ekki hafi verið unnið í sam­ræmi við banka­stjórn­ar­sam­þykkt um veit­ingu þraut­ar­vara­lána, sem hafði verið sett í apríl 2008, þegar neyð­ar­lánið var veitt. Þar er einnig stað­fest að engin form­leg lána­beiðni hafi legið fyrir í seðla­bank­anum, að lánið hafi verið greitt út áður en gengið var frá lána­papp­írum og form­legum veð­töku­gögnum.

Jón Steindór segir að þrátt fyrir að reynt sé að sýna því skiln­ing að ákvarð­an­irnar hafi verið teknar við mjög óvenju­legar aðstæður, í miðju fjár­mála­hruni, þá séu svona vinnu­brögð ekki boð­leg. „Það rétt­lætir það ekki að menn geri það með þessum hætti. Að það sé nán­ast ekki til nein skjölun af neinu tagi á beiðnum, á hinni form­legu ákvörðun, með hvaða skil­yrðum og svo fram­vegis. Jafnvel þótt menn séu í miklum flýti og undir gríð­ar­legri pressu þá á stofnun eins og Seðla­bank­inn skil­yrð­is­laust að hafa þannig verk­lag og ferla að það stand­ist slíkt álag en sé samt gert með réttum og form­legum hætti.“

[adspot]Skýrslan var rúm fjögur ár í vinnslu, en til­kynnt var um gerð hennar í febr­úar 2015. Rúmlega tíu og hálft ár er liðið frá því að neyð­ar­lánið var veitt. Í for­mála skýrsl­unnar segir Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri að meðal þess sem hafi tafið skýrslu­gerð­ina sé að reynt hafi „verið að fylgja þeirri meg­in­reglu í starfi Seðla­bank­ans á und­an­förnum árum að úrlausn­ar­efni nútíðar og framtíðar hafi for­gang umfram mál­efni for­tíð­ar­innar.“

Jón Steindór segir að sér finn­ist það heldur ekki boð­leg skýr­ing.„Þarna var um að tefla því­líka hags­muni og því­líka fjár­muni að menn hljóta að vilja læra sem hrað­ast af for­tíð­inni til þess að menn geri ekki sömu mis­tökin í fram­tíð­inni. Það er ansi stór tíma­teygja þegar þú ert komin tíu ár frá atburðum þangað til að þú ætlar að fara að læra af þeim. Þá getur maður spurt sig hvað hefði getað gerst eða hvað hefði gerst í milli­tíð­inni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hrun

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár