Rannsókn á Lindsor-málinu í Lúxemborg lokið og því vísað til saksóknara

Tæpum tólf árum eftir að aflands­fé­lagið Lindsor Holding fékk lán frá Kaup­þingi til að kaupa verð­lítil skulda­bréf, meðal ann­ars af starfs­mönnum bank­ans í Lúx­em­borg, er rann­sókn á mál­inu lokið þar í landi.

Rann­sókn­ar­dóm­ari í Lúx­em­borg hefur lokið rann­sókn sinni á Lindsor-mál­inu svo­kall­aða og sent nið­ur­stöður hennar til sak­sókn­ara, tæpum tólf árum eftir að hinn íslenski banki Kaupþing, sem er mið­punktur máls­ins, féll og atburð­irnir sem málið snýst um áttu sér stað. Það gerði hann með form­legri ákvörðun sem dag­sett 24. júlí. Sá mun nú leggja mat á nið­ur­stöð­una og, telji hann til­efni til, senda ákæru til dóm­stóla í Lúx­em­borg. Frá þessu er greint í frétta­til­kynn­ingu frá sak­sókn­ara­emb­ætti Lúx­em­borgar frá því í gær sem Kjarninn hefur fengið senda. Til­kynn­ingin hefur verið tölu­vert til umfjöll­unar í fjöl­miðlum í Lúx­em­borg líkt og sjá má hér, hér og hér.

Lindsor-­málið snýst um 171 millj­ónir evra lán sem Kaup­þing veitti félagi sem heit­ir Lindsor Holding Corporation og er skráð til heim­ilis á Tortóla-eyju. Lánið var veitt 6. októ­ber 2008, sama dag og ­neyð­ar­lög voru sett á Íslandi og Geir H. Haarde, þáver­andi for­­sæt­is­ráð­herra, bað guð að blessa Ísland. Þann dag lán­aði Seðla­­banki Íslands líka Kaup­­þingi 500 millj­­ónir evra í neyð­­ar­lán.

Lánið til Lindsor var aldrei borið undir lána­nefnd Kaup­þings. Það var notað til að kaupa skulda­bréf af Kaup­þingi í Lúx­em­borg, ein­stökum starfs­mönnum þess banka og félagi í eigu vild­ar­við­skipta­vinar Kaup­þings.

Þegar Kaup­þing féll þremur dögum eftir kaupin á bréf­unum var ljóst að Lindsor gat ekki greitt lánið til baka, enda eina eign félags­ins verð­litlu skulda­bréfin sem félagið hafði keypt á yfir­verði þremur dögum áður. Engar trygg­ingar voru veittar fyrir lán­inu og tap kröfu­hafa Kaup­þings vegna þess því umtals­vert. Þeir sem seldu bréfin los­uðu sig hins vegar undan ábyrgðum og, ef grun­semdir rann­sak­enda eru rétt­ar, tryggðu sér um leið mik­inn ágóða.

Fjórir sem yrðu sóttir til saka

Kjarninn greindi frá því 9. júlí síð­ast­lið­inn, og hafði eftir Diane Klein, tals­konu dóms­mála­ráðu­neytis Lúx­em­borgar, að aðstoð­ar­sak­sókn­ari sem vinnur að mál­inu teldi afar lík­legt að ákæra verði lögð fram gagn­vart ein­hverjum þeirra grun­uðu í mál­inu. Í frétta­til­kynn­ing­unni frá sak­sókn­ara­emb­ætt­inu sem send var út í gær kemur fram að á meðan að rann­sóknin stóð yfir hafi fimm ein­stak­lingar haft stöðu grun­aðra. Fjórir af þeim verða ákærðir, sam­kvæmt nið­ur­stöðu rann­sókn­ar­innar, ef ákæra verður gefin út. Ekki er greint frá því um hvaða fjóra ein­stak­linga er að ræða.

Dóms­kerfið í Lúx­em­borg er ólíkt því sem Íslend­ingar eiga að venj­ast. Ákveði sak­sókn­ari að gefa út ákæru þá er hún send til svo­kall­aðs „council chamber“ hér­aðs­dóms­stigs Lúx­em­borgar sem mun taka ákvörðun um hvort að málið fái efn­is­með­ferð eða verði vísað frá. Sak­born­ingar í mál­inu munu á þeim tíma­punkti fá tæki­færi til að setja fram varnir í mál­inu.

Þeir sem eru grun­aðir um lög­brot í mál­inu, fyrr­ver­andi helstu stjórn­endur Kaup­þings og vild­ar­við­skipta­vinur þeirra, hafa ávallt harð­neitað að nokkuð sak­næmt hafi átt sér stað í mál­inu.

Málið sagt „afar flókið“

Í frétta­til­kynn­ingu sak­sókn­ara­emb­ætt­is­ins í Lúx­em­borg er farið yfir feril máls­ins. Þar segir að í lok apríl 2010 hafi fjár­mála­eft­ir­litið í Lúx­em­borg gert sak­sókn­ara­emb­ætt­inu þar í landi við­vart um málið. Það hefur lík­ast til gerst í kjöl­far þess að um Lindsor og tengd við­skipta var fjallað í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um banka­hrunið sem kom út um það leyti.

Formleg rann­sókn hófst svo 8. apríl 2011 á margs­konar mögu­legum efna­hags­brotum, meðal ann­ars fjársvikum og pen­inga­þvætti.

Í til­kynn­ing­unni segir að málið hafi reynst afar flókið, sér­stak­lega vegna þess að það hafi haft bæði íslenskan og alþjóð­legan anga.

Tvívegis voru rétt­ar­beiðnir sendar til íslenskra yfir­valda, í sept­em­ber 2013 og í des­em­ber 2016. Í síð­ara skiptið komu raunar þrír rann­sak­endur í mál­inu til Íslands og ósk­uðu form­lega atbeina hér­aðs­sak­sókn­ara við rann­sókn máls­ins. Í kjöl­farið yfir­heyrðu þeir Íslend­inga sem tengj­ast mál­inu. Einn þeirra sem kom hingað til lands er rann­sókn­ar­dóm­ar­inn sem þá stýrði rann­sókn­inni, Ernest Nilles. Nýr rann­sókn­ar­dóm­ari hefur síðan tekið við mál­inu, og lokið rann­sókn­inni.

Í frétta­til­kynn­ing­unni sem send var út í gær þá er íslenskum kol­legum sak­sókn­ara­emb­ætt­is­ins þakkað sér­stak­lega fyrir frá­bæra sam­vinnu.

Kjarninn fjall­aði með afar ítar­legum hætti um Lindsor-málið í frétta­skýr­ingu sem birt­ist 9. júlí 2020.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hrun

Mest lesið undanfarið ár