Lindsor-rannsóknin nær til nýrra grunaðra og á að ljúka fyrir haustið

Eitt af stærstu hrun­mál­unum svoköll­uðu er enn í rann­sókn í Lúx­em­borg, tæpum tólf árum eftir að atburð­irnir sem eru undir í mál­inu áttu sér stað. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá þar­lendum yfir­völdum er afar lík­legt að ákæra verði gefin út í mál­inu.

Rannsókn yfir­valda Í Lúx­em­borg á hinu svo­kall­aða Lindsor-máli hefur und­an­farið náð til nýrra ein­stak­linga sem grun­aðir eru um að hafa framið lög­brot. Vegna þessa hefur rann­sóknin tekið lengri tíma en búist var við en henni ætti að ljúka í síð­asta lagi á kom­andi hausti.

Þegar rann­sókn­inni lýkur verða öll gögn máls­ins send til sak­sókn­ara í Lúx­em­borg sem mun taka ákvörðun um hvort að ákært verður í mál­inu eða ekki. Samkvæmt aðstoð­ar­sak­sókn­ara sem sér um málið er afar lík­legt að ákæra verði lögð fram gagn­vart ein­hverjum hinna grun­uðu í málínu, en ekki hafa feng­ist stað­festar upp­lýs­ingar um hverjir það eru. Ólíklegt er hins vegar að Lindsor-málið komi fyrir dóm­stóla í Lúx­em­borg fyrr en á árinu 2021.

Þetta segir Diane Klein, tals­kona dóms­mála­ráðu­neytis Lúx­em­borgar, í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um stöðu máls­ins.

Lindsor-­málið snýst um 171 millj­ónir evra lán sem Kaup­þing veitti félagi sem heit­ir Lindsor Holding Corporation og er skráð til heim­ilis á Tortóla-eyju.

Lánið var veitt 6. októ­ber 2008, sama dag og ­neyð­ar­lög voru sett á Íslandi og Geir H. Haarde, þáver­andi for­­sæt­is­ráð­herra, bað guð að blessa Ísland. Þann dag lán­aði Seðla­­banki Íslands líka Kaup­­þingi 500 millj­­ónir evra í neyð­­ar­lán.

Upphafið var bréf Davíðs

Lindsor-málið er stærsta hrun­málið sem hefur ekki enn verið klárað með ákæru þrátt fyrir að hafa verið til rann­sóknar í á tólfta ár, bæði hjá lög­reglu­yf­ir­völdum á Íslandi og í Lúx­em­borg.

Rann­sókn máls­ins er enn opin hjá yfir­völdum í báðum lönd­unum þótt engar ákærður hafi verið gefnar út í því. Þeir sem eru grun­aðir um lög­brot í mál­inu, fyrr­ver­andi helstu stjórn­endur Kaup­þings og vild­ar­við­skipta­vinur þeirra, hafa ávallt harð­neitað að nokkuð sak­næmt hafi átt sér stað í mál­inu.

Þar á meðal er Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings. Í ræðu sem Hreiðar Már flutti í öðru dóms­máli þar sem hann var sak­born­ingur, sagði hann að Lindsor-málið hefði snú­ist um end­ur­kaup á skulda­bréfum sem Kaupþing hefði gefið út á alþjóð­legum skulda­bréfa­mörk­uðum. Hann sagði að kaupin hafi verið gerð í „sam­ræmi við ráð­legg­ingu Deutsche Bank og með þeim kaupum minnkuðum við end­ur­fjár­mögn­un­ar­þörf bank­ans og högn­uð­umst með því að kaupa til baka skulda­bréf á afföllum.“

Líklega ber Lindsor fyrst á góma í opin­berum skjölum þegar Davíð Oddsson, þá seðla­banka­stjóri og nú rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, sendi grein­ar­gerð sem huldu­menn höfðu afhent honum, til efna­hags­brota­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra þann 9. des­em­ber 2008. Greint var frá tæm­andi inni­haldi bréfs­ins í fyrsta sinn opin­ber­lega í bók­inni Kaupt­hink­ing: Bankinn sem átti sig sjálfur, sem kom út haustið 2018. Hægt er að sjá bréfið efst í þess­ari frétta­skýr­ingu.

Í grein­ar­gerð­inni sem fylgdi með bréf­inu frá Davíð stóð m.a. að vik­urnar fyrir hrun banka­kerf­is­ins hafi Kaupþing fjár­fest í eigin skulda­bréfum með ýmsum hætti. Tvær leiðir hefðu verið not­aðar og þær hafi báðar verið úr smiðju for­stjóra Kaup­þings, úti­bús­stjór­ans í Lúx­em­borg [Magnúsar Guð­munds­sonar] og aðal­lög­fræð­ings bank­ans þar í landi.

Önnur snérist um að kaupa skulda­bréf á mark­aði með beinum hætti, gegnum úti­búið í Lúx­em­borg með fjár­magni frá móð­ur­fé­lag­inu á íslandi. „Alls voru keypt bréf með þessum hætti fyrir 200 m. evra, Fjár­fest­ing­arnar voru gerðar gegnum félag sem heitir Lindsor Holding en fyrir ofan það er flók­inn eign­ar­haldsstrúktúr sem þó er að fullu eign bank­ans sjálfs. Hug­myndin að þessum fjár­fest­ingum var að aðstoða starfs­menn bank­ans við að end­ur­heimta það mikla tap sem þeir höfðu orðið fyrir frá miðju ári 2007. Lánin voru veitt sem pen­inga­mark­aðs­lán til Lindsor Holding án nokk­urra lána­nefnd­ar­sam­þykkta eða form­legrar skjala­gerðar,“ sagði í grein­ar­gerð­inni sem aldrei hefur verið opin­berað hver skrif­aði.

Fyrstu stjórnarmenn skipaðir eftir að Lehman Brothers féll

Hvað var þetta Lindsor? Þann 18. júlí 2008 var stofnað félag á Bresku Jóm­frú­areyj­unum. Það fékk nafnið Lindsor Holdings Corporation. Félagið var í eigu Otris, félags sem stjórn­endur Kaup­þings stýrðu og virk­aði sem nokk­urs konar afskrifta­sjóður utan efna­hags­reikn­ings Kaup­þings. Fyrstu stjórn­ar­menn Lindsor voru skip­aðir 18. sept­em­ber 2008, þremur dögum eftir að Lehman Brothers bank­inn féll og innan við mán­uði áður en að Kaupþing fór á haus­inn.

Lánið var veitt sama dag og Geir H. Haarde bað guð um að blessa Ísland. Mynd: Magnus Frödeberg
Lánið var veitt sama dag og Geir H. Haarde bað guð um að blessa Ísland. Mynd: Magnus Frödeberg

Sama dag og Seðla­banki Íslands veitti Kaup­þingi neyð­ar­lán upp á 500 millj­ónir evra veitti Kaupþing Lindsor 171 milljón evra lán til 25 daga. Engar trygg­ingar voru settar fram fyrir lán­inu. Skjöl sýna að við rann­sókn máls­ins hafi Fjár­mála­eft­ir­litið metið það sem svo að til­gang­ur­inn með lán­inu hafi ekki verið að lána fjár­mun­ina til sér­stakra nota, heldur til að gefa Lindsor svig­rúm til að nota fjár­mun­ina þegar því hent­aði. Lána­nefnd Kaup­þings veitti ekki sam­þykki fyrir lán­inu og hvergi er minnst á Lindsor í fund­ar­gerðum hjá lána­nefnd Kaup­þings fyrir árið 2008.

Keypti skuldabréf af starfsmönnum

Þegar kom að gjald­daga láns­ins, sem var 31. októ­ber 2008, gat Lindsor ekki greitt lánið. Einu eignir félags­ins á þeim tíma voru verð­lítil skulda­bréf útgefin af Kaup­þingi og inn­stæður félags­ins hjá Kaup­þingi í Lúx­em­borg.

Sama dag og Lindsor fékk 171 milljón evra að láni hjá Kaup­þingi, þann 6. októ­ber 2008, keypti félagið nefni­lega skulda­bréf útgefin af Kaup­þingi upp á 84 millj­ónir evra og 95,1 milljón dala ásamt skulda­bréfum útgefnum af Kaup­þingi í japönskum jenum og krónum sem metin voru á 15,2 millj­ónir evra. Sé miðað við skráð gengi 16. októ­ber 2008, þegar Lindsor skipti evru í aðra gjald­miðla til að jafna bók­haldið hjá sér, var upp­hæðin sem notuð var til kaupa á bréf­unum 170,1 millj­ónir evra, eða nán­ast sama upp­hæð og Kaupþing hafði lánað Lindsor.

Selj­and­inn var dótt­ur­bank­inn í Lúx­em­borg sem hafði keypt þorra við­kom­andi bréfa sama dag af fjórum starfs­mönnum sínum, eigin safni bank­ans og félag­inu Marple, skráð í eigu Skúla Þor­valds­sonar, hlut­hafa í bank­anum og eins stærsta lán­taka hans.

Kaupþing í Lúx­em­borg lán­aði Marple fyrir við­skiptum þess eign­ar­lausa félags á árinu 2008 en Kaupþing á Íslandi gekkst í ábyrgð fyrir end­ur­greiðslu þeirra lána. Öll áhætta vegna við­skipt­anna hvíldi því hjá móð­ur­bank­anum á Íslandi. Úr þeim lán­veit­ingum varð sér­stakt sakamál sem lauk með sak­fell­ingu tveggja stjórn­enda Kaup­þings í fyrra.

Ábyrgð vegna lána Kaup­þings til Marple féll á Kaupþing á Íslandi í októ­ber 2008. Föstu­dag­inn 3. októ­ber 2008 greiddi Kaupþing á Íslandi tíu millj­arða króna til dótt­ur­bank­ans í Lúx­em­borg vegna ábyrgðar á þeim lánum. Næsta við­skipta­dag, mánu­dag­inn 6. októ­ber, sama dag og neyð­ar­lög voru sett á Íslandi og Kaupþing fékk 500 milljón evra neyð­ar­lán frá Seðla­banka Íslands, seldi Marple megnið af skulda­bréf­unum sem félagið hafði keypt til Kaup­þings í Lúx­em­borg. Hagnaður Marple af við­skipt­unum var 67,5 millj­ónir evra.

Á þessum tíma voru skulda­bréf á Kaupþing í besta falli mjög lít­ils virði, en Marple fékk yfir­verð fyrir þau. þann 8. októ­ber, dag­inn áður en að Kaupþing féll voru teknir 10,4 millj­ónir punda út af reikn­ingi Marple í reiðufé. Þeir fjár­munir hafa ekki feng­ist end­ur­greiddir og ekki liggur fyrir hver tók þá pen­inga út.

Hugsanlega notað til að koma peningum frá Kaupþingi til tengdra aðila

6. nóv­em­ber 2008 fór fram upp­boð á skulda­bréfum í Kaup­þingi. Verðið á þeim var 6,625 pró­sent af nafn­virði. Þann 17. des­em­ber 2008 var virði þeirra skulda­bréfa sem Lindsor keypti á ögur­stundu í miðju banka­hruni metið á 11 millj­ónir evra. Það sam­svarar því að virði þess hafi rýrnað um 94 pró­sent á tveggja mán­aða tíma­bili.

Það var mat Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, sam­kvæmt bréfi þess til sér­staks sak­sókn­ara dag­settu 22. mars 2010, að Lindsor hafi „hugs­an­lega verið notað til að koma pen­ingum frá Kaup­þingi til tengdra aðila í þeim til­gangi að losa þá við skulda­bréf útgefnum af Kaup­þingi, þar sem ljóst var að staða bank­ans var orðin grafal­var­leg, ásamt því að halda Kaup­þingi í Lúx­em­borg rekstr­ar­hæfu.“

Nánari skoðun á þeim gögnum sem liggja til grund­vallar lána­samn­ings Kaup­þings við Lindsor leiddi til grun­semda um að margt benti til þess að skjöl vegna við­skipt­anna hafi verið útbúin og und­ir­rituð í nóv­em­ber og des­em­ber 2008, eftir fall Kaup­þings. Skjölin voru und­ir­rituð af Hreiðari Má Sig­urðs­syni og nokkrum starfs­mönnum bank­ans í Lúx­em­borg. Þá töldu rann­sak­endur, sam­kvæmt gögnum sem höf­undur hefur undir höndum, að Guðný Arna Sveins­dóttir, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri fjár­mála- og rekst­ar­sviðs Kaup­þings og þá skila­nefnd­ar­maður Kaup­þings, hafi „haft milli­göngu um frá­gang skjal­anna. Skjölin virð­ast vera fölsuð bæði hvað varðar efni og dag­setn­ingar,“ sagði í bréfi eft­ir­lits­ins.

Óskað eftir rannsókn í Lúxemborg

Í öðru bréfi sem Fjár­mála­eft­ir­litið á Íslandi sendi fjár­mála­eft­ir­lit­inu í Lúx­em­borg nokkru fyrr, eða 22. jan­úar 2010, var óskað eftir því að Lindsor-málið yrði rann­sakað þar í landi þar sem uppi væri rök­studdur grunur um fjölda brota á þar­lendum lögum. Í bréf­inu var rakið að þann 12. ágúst 2008 hefði þrír starfs­menn Kaup­þings í Lúx­em­borg keypt skulda­bréf útgefin af Kaup­þingi með afslætti. Þar á meðal var þáver­andi aðstoð­ar­for­stjóri Kaup­þings Í Lúx­em­borg, Björn Jónsson, sem fékk kaup­verðið að langstærstum hluta að láni hjá bank­anum sem hann starf­aði hjá. Hinir tveir starfs­menn­irnir, karl og kona, voru lægra settir. Hvorugt þeirra voru Íslend­ingar og bæði fengu allt kaup­verðið að láni hjá bank­anum.

Nokkrum dögum seinna, þann 18. ágúst, var sam­þykkt lána­lína upp á 1,4 millj­ónir evra til Íslend­ings sem starf­aði líka hjá Kaup­þingi í Lúx­em­borg. Þremur dögum síðar not­aði hann um eina milljón evra til að kaupa skulda­bréf útgefin af Kaup­þingi með afslætti. Öll skulda­bréfin voru keypt af Kaup­þingi í Lúx­em­borg, vinnu­veit­anda fjór­menn­ing­anna.

Kaup þeirra á skulda­bréfum á þessum tíma vöktu furðu rann­sak­enda. Ekkert þeirra hafði áður tekið þátt í kaupum á slíkum. Og öll bréfin voru keypt með afföllum.

Föstu­dag­inn 3. októ­ber, í miðjum hrun­storm­inum, seldi einn útlendu starfs­mann­anna, konan, bréfin sín á nán­ast sama verði og hún hafði keypt þau. Í ljósi þess að íslenska banka­kerfið rambaði á þessum tíma á bjarg­brún­inni, og skulda­trygg­inga­á­lag á Kaupþing hafði rokið upp, þá voru engar við­skipta­legar for­sendur fyrir því að kaupa bréfin af henni á því verði á þessum tíma. Ef konan hefði haldið bréf­unum fram að gjald­daga þá hefði hún ein­fald­lega orðið kröfu­hafi og fengið brota­brot af upp­haf­legu virði skulda­bréfs­ins, líkt og aðrir skulda­bréfa­eig­endur fengu.

Seldu á neyðarlagadaginn

Mánu­dag­inn 6. októ­ber 2008, sama dag og neyð­ar­lögin voru sett á Íslandi, seldu aðstoð­ar­for­stjór­inn og erlendi karl­manns­starfs­mað­ur­inn skulda­bréf sín til Kaup­þings Lúx­em­borg, sama aðila og hafði selt þeim bréfin nokkrum vikum áður. Bréfin voru keypt á yfir­verði, þ.e. tölu­vert yfir mark­aðsvirði þeirra á þeim tíma. Í ljósi þess að bæði aðstoð­ar­for­stjór­inn og hinn starfs­mað­ur­inn höfðu upp­haf­lega keypt bréfin með afslætti þá mynd­að­ist umtals­verður hagn­aður á þessum við­skiptum. Samkvæmt bréfi Fjár­mála­eft­ir­lits­ins til syst­ur­stofn­unar sinnar í Lúx­em­borg var ágóð­inn af við­skipt­unum ann­ars vegar 138 þús­und evrur og hins vegar 173 þús­und evrur. Slá má því föstu að menn­irnir tveir séu í mjög fámennum hópi ein­stak­linga sem fram­kvæmdu arð­bær við­skipti tengd íslenskum bönkum 6. októ­ber 2008.

Sama dag milli­færði aðstoð­ar­for­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, sam­kvæmt bréfi Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, ann­ars vegar 434 þús­und evrur og hins vegar 301 þús­und evrur inn á tvo reikn­inga sem íslenska Fjár­mála­eft­ir­litið vissi ekki hverjir áttu.

Tveimur dögum síðar, mið­viku­dag­inn 8. októ­ber, seldi síðan íslenski starfs­mað­ur­inn skulda­bréfin sín aftur til Kaup­þings í Lúx­em­borg. Fjár­mála­eft­ir­litið sagði að hagn­aður hans hefði verið 497 þús­und evrur. Í skjölum bank­ans voru við­skiptin reyndar látin líta út fyrir að hafa verið fram­kvæmd 6. októ­ber, enda hafði Fjár­mála­eft­ir­litið tekið yfir bæði Glitni og Lands­bank­ann dag­inn áður, 7. októ­ber, og Kaupþing hékk á horrim­inni.

Lindsor lýst sem „ruslakistu“

Björn Jónsson bar við yfir­heyrslu hjá sér­stökum sak­sókn­ara að erlendi karl­mað­ur­inn sem vann hjá honum hefði haft sam­band við sig að fyrra bragði til að spyrj­ast fyrir hvort hann hefði áhuga á kaup­unum. Þess vegna hefði hann keypt umrædd skulda­bréf. „Fimmti starfs­maður Kaupt­hing Lux, Magnús Guð­munds­son, þáver­andi for­stjóri bank­ans, hefur upp­lýst í yfir­heyrslu hjá sér­stökum sak­sókn­ara að hann hafi einnig keypt skulda­bréf útgefin af Kaup­þingi Ísl. í ágúst 2008, þ.e.a.s. á svip­uðum tíma og starfs­menn­irnir fjórir. Hann seg­ist eiga þau enn og hafa greitt þau að fullu.“

Sölur fjór­menn­ing­anna voru að mati Fjár­mála­eft­ir­lits­ins fram­kvæmdar til að bjarga þeim frá því að hafa þurft að taka á sig mikið tap vegna skulda­bréfa­kaupa sem þau höfðu tekið lán til að kaupa. Í bréf­inu frá jan­úar 2010 segir enn fremur að við­skiptin hafi virst vera leið til að koma við­bót­ar­fjár­magni frá Kaup­þingi í Lúx­em­borg til þess­ara starfs­manna. Þar er Lindsor lýst sem „rusla­tunnu“ (e. rubb­ish bin) sem hafi verið sett upp til að koma í veg fyrir að Kaupþing í Lúx­em­borg og tengdir aðilar þyrftu að taka á sig tap vegna fjár­fest­inga sem þeir hefðu ráð­ist í.

Töldu að gögn hefðu verið fölsuð

Skömmu eftir hrunið, nánar til­tekið 15. októ­ber 2008, réð skila­nefnd Kaup­þings PWC til að fara yfir óeðli­lega fjár­magns­flutn­inga til og frá Kaup­þingi í kringum þann tíma sem bank­inn var að fara á haus­inn. Rann­sak­end­urnir ráku fljótt augun í Lindsor. Í áður­nefndu bréfi sem Fjár­mála­eft­ir­litið skrif­aði í jan­úar 2010 sagði að fréttir þess efnis hefðu borist til Lúx­em­borg í nóv­em­ber 2008 þar sem svo virt­ist að aðilar innan dótt­ur­bank­ans þar, sem enn var þá stýrt af Magnúsi Guð­munds­syni, hefðu hafið til­raunir til að fela þann mikla ávinn­ing sem starfs­menn Kaup­þings í Lúx­em­borg höfðu haft af við­skiptum með skulda­bréfin.

Kaupin voru bak­færð en svo end­ur­gerð á því gengi sem skulda­bréfin voru upp­haf­lega keypt á þegar Kaupþing í Lúx­em­borg keypti þau á mark­aði. Virðið var 66-86 pró­sent af nafn­virði.

Kaupþing féll haustið 2008. Mynd: Pexels.
Kaupþing féll haustið 2008. Mynd: Pexels.

Á þessum tíma var Kaupþing í Lúx­em­borg hins vegar búið að flytja tapið af við­skipt­unum til Lindsor, sem hafði keypt bréfin á nafn­virði, og ein­stak­ling­arnir þrír sem seldu bréf í hrun­vik­unni urðu ekki fyrir neinu tapi, þótt hagn­aður þeirra væri ekki lengur til staðar. Kaupþing í Lúx­em­borg tók á sig, að mati Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, tap upp á sam­tals 2,2 millj­ónir evra með þessu. Það tap færði Kaupþing svo yfir til Lindsor. Tap sem mér réttu hefði átt að lenda á starfs­mönn­unum þremur.

Fjár­mála­eft­ir­litið taldi að gögn hefðu verið fölsuð í nóv­em­ber og des­em­ber 2008 til að láta líta út fyrir að kaup Lindsor á skulda­bréf­unum væru lög­mæt.

Tölvu­póst­sam­skipti milli lög­manns hjá Kaup­þingi í Lúx­em­borg og Magnúsar Guð­munds­sonar sýna að gögn sem áttu að sanna að hlut­hafa­fundur í Lindsor hefði farið fram 28. sept­em­ber 2008, hefðu í raun verið gerð í des­em­ber 2008 og þar með verið fölsuð.

Í bréfi eft­ir­lits­ins segir að íslenski og erlendi karl­mað­ur­inn sem störf­uðu hjá Kaup­þingi og fengu að kaupa og selja fyrr­greind skulda­bréf hefðu fengið tvo stóra „pen­inga­styrki“ greidda inn á reikn­inga sína snemma í októ­ber. Þeir voru upp á 803 og 140 þús­und evrur og skráðir sem „afskrift­ar­til­lögur“. Styrkirnir tveir voru milli­færðir á sama tíma og menn­irnir voru að selja skulda­bréfin verð­litlu á yfir­verði í októ­ber 2008. Þessar „afskrift­ar­til­lögur“ voru hins vegar látnar líta út fyrir að hafa verið fram­kvæmdar 30. sept­em­ber.

Líkt við hlutverk fjármálastjóra Enron

Hlut­verki lög­manns hjá Kaup­þingi í Lúx­em­borg er í bréf­inu líkt við hlut­verk Andrew Fastow, sem var á sínum tíma fjár­mála­stjóri Enron. Ástæðan er sú að hann skrif­aði undir samn­inga bæði fyrir hönd Lindsor, þar sem hann var stjórn­ar­maður, og fyrir hönd Kaup­þings þegar Lindsor var að kaupa skulda­bréf af bank­anum. Þannig hafi hann verið báðum megin borðs­ins líkt og Fastow var í efna­hags­brotum Enron, þar sem hann var bæði fjár­mála­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins og sá sem skrif­aði undir samn­inga rusla­tunnu­fé­laga sem það hafði sett upp til kaupa af sér eignir og fela tap.

Andy Fastow var fjármálastjóri Enron.
Andy Fastow var fjár­mála­stjóri Enron.

Tveir starfs­mann­anna sem fengu að kaupa skulda­bréfin færðu pen­inga frá per­sónu­legum reikn­ingum sínum inn í félag sem hét My Mariu í miðju hruni. Það félag átti lysti­snekkju sem upp­haf­lega hafði verið smíðuð fyrir tísku­kóng­inn Giorgio Armani.

Upphæðin sem þau milli­færðu var sam­tals um ein milljón evra. Hvorugt hafði nokkru sinni verið far­þegi á snekkj­unni og gat því ekki útskýrt af hverju þau væru að færa pen­inga inn á rekstr­ar­fé­lag hennar. Fjár­mála­eft­ir­lit­inu grun­aði að um væri að ræða ávinn­ing af sölu skulda­bréf­anna.

My Mariu var á þessum tíma skráð á Isle of Man og í eigu Hreiðars Más Sig­urðs­sonar, Sigurðar Ein­ars­sonar, Magnúsar Guð­munds­sonar, Ingólfs Helga­sonar, Stein­gríms P. Kára­sonar og Ármanns Þor­valds­sonar, sem allir voru stjórn­endur hjá Kaup­þingi. Auk þess voru stærstu eig­endur Kaup­þings, bræð­urnir Lýður og Ágúst Guð­munds­synir, skráðir eig­endur.

Færsl­urnar sem lagðar voru inn á My Mariu voru á end­anum bak­færðar að skipan Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.

„Umboðssvik? Það er bara kjaftæði“

Í yfir­heyrslum hjá sér­stökum sak­sókn­ara við rann­sókn máls­ins við­ur­kenndi Hreiðar Már að skjala­gerðin varð­andi Lindsor hefði verið gerð eftir á. „Mér skilst að það hafi komið frá Magnúsi. Þetta væri mik­il­vægt fyrir Kaupþing Lúx­em­borg að þessi þarna opn­un­ar­skjöl yrðu kláruð.[...]Ég hef ekki gert það hvorki fyrr eða síðar sko. Þetta var eina skiptið sko sem ég und­ir­rit­aði og ég svona aðeins velti því fyrir mér hvort ég ætti að gera þetta en þarna, ég taldi þetta væri bara, já að ég væri að stað­festa það sem hefði verið gert og hefði alltaf staðið til og það væri bara verið í sjálfu sér að klára þennan fæl og ef þetta var eitt­hvað sem var útistand­andi við það að bjarga bank­anum í Lúx­em­borg, þá fannst mér þetta bara, þá ákvað ég auð­vitað að gera það,“ segir í afriti af yfir­heyrslu yfir Hreiðari Má.

Hreiðar Már Sigurðsson. Mynd: Kjarninn
Hreiðar Már Sig­urðs­son. Mynd: Kjarninn

Varðandi upp­kaupin á skulda­bréf­unum þá neit­aði Hreiðar Már því ætið að eitt­hvað væri bogið við þau. „Þetta var aðferð­ar­fræði okkar stjórn­enda Kaup­þings að fara í gegnum þessa krísu.“

Síðar sagði hann að: „Við ætl­uðum bara að kaupa þessi bréf og cancella þeim, þú veist, og bara bóka þann hagn­að­inn.[...]Ég hafði ekki séð fyrir mér að Lindsor væri eitt­hvert svona fram­tíð­ar­fé­lag.“

Þegar Hreiðari Má var til­kynnt að grunur væri um umboðs­svik í mál­inu sagði hann: „Umboðs­svik? Það er bara kjaftæði.“

Hér að neðan fara svo samskipti Hreiðars Más og starfsmanns sérstaks saksóknara við yfirheyrslur vegna málsins:

Hreiðar Már: „Þessi sko sak­ar­efni að ég hafi stefnt fjár­munum Kaup­þings í stór­fellda hættu með kaup á þessum skulda­bréfum, það er nátt­úru­lega ljóst þá að ef þetta er skoðun ykkar á kaupum á eigin bréfum að þá eigið þið nú að láta þá Helga Magn­ús­son [átti lík­lega við Helga Magnús Gunn­ars­son, þá sak­sókn­ara efna­hags­brota­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra] og efna­hags­brota­deild­ina vita að þetta sé nákvæm­lega sama og Már Guð­munds­son sé að gera við gjald­eyr­is­forða þjóð­ar­innar í dag, hann er að nota…

Starfs­maður Sérstaks sak­sókn­ara: Veist þú af hverjum Már er að kaupa eða hvað?

Hreiðar Már: Nei, nei, hann er að kaupa á mark­aði og það sama og ég taldi mig vera að gera og þarna og var gert.

Starfs­maður Sérstaks sak­sókn­ara: En erum við ekki búin að lýsa því fyrir þér að það hafi ekki verið þannig.

Hreiðar Már: Jú, það var keypt á mark­aði?

Starfs­maður Sérstaks sak­sókn­ara: Hm?

Hreiðar Már: Nátt­úru­lega keypt á mark­aði.

Starfs­maður Sérstaks sak­sókn­ara: Keypt af félagi sem heitir Marple, starfs­mönnum Kaup­þings í Lúx­em­borg.

Hreiðar Már: Já, ég vissi það ekki. Ég hafði ekki hug­mynd um það.“

Magnús, líkt og Hreiðar Már, við­ur­kenndi við yfir­heyrslur að Lindsor við­skiptin hefðu verið rang­lega færð inn í kerfi bank­ans en síðan leið­rétt eftir hrun Lindsor í hag. Magnús sagði að það hefði ein­fald­lega verið gert vegna þess að upp­lýs­ing­arnar hefðu verið vit­laust færðar inn til að byrja með. „Ég ætla ekki einum eða neinum að það hafi verið gert með ásetn­ingi. Þannig að þess vegna segi ég að það hafi verið mis­tök.“

Næstum 13 ár frá því að meint brot áttu sér stað

Sú skýr­ing hefur verið gefin hér­lendis að ástæða þess að yfir­völd hér hafi ekki lokið mál­inu með ákæru eða nið­ur­fell­ingu sé að rann­sókn lög­reglu­yf­ir­valda í Lúx­em­borg njóti for­gangs. Beðið sé nið­ur­stöðu hennar áður en örlög Lindsor-máls­ins á Íslandi verði ákveðin.

Lög­reglu­yf­ir­völd í Lúx­em­borg yfir­heyrðu menn ytra í tengslum við rann­sókn á því í mars 2015. Á meðal þeirra sem yfir­heyrðir voru eru íslenskir rík­is­borg­ar­ar.

Þrír menn sem vinna við rann­sókn á Lindsor-mál­inu svo­kall­aða komu til Íslands í des­em­ber 2016, lögðu fram rétt­ar­beiðni og ósk­uðu eftir atbeina emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara vegna rann­sóknar máls­ins. Í kjöl­farið yfir­heyrðu þeir Íslend­inga sem tengj­ast mál­inu. Einn þeirra sem kom hingað til lands er rann­sókn­ar­dóm­ar­inn sem stýrði rann­sókn­inni, Ernest Nilles.

Fyrir ári síðan greindi Morg­un­blaðið svo frá því að rann­sókn­inni væri að ljúka.

Í ljósi þess að næstum ár var liðið frá því að þau svör feng­ust kann­aði Kjarninn stöðu máls­ins hjá dóms­mála­ráðu­neyt­inu í Lúx­em­borg og fékk þau svör að rann­sóknin væri á loka­metr­unum. Fleiri grun­aðir hefðu bæst við hana og það hefði tafið lok rann­sókn­ar­innar. Stefnt væri að því að klára hana fyrir haustið og mjög lik­legt (e.hig­hly likely) væri að það yrði ákært í mál­inu, að mati aðstoð­ar­sak­sókn­ara sem vinnur að rann­sókn­inni. Fari svo muni málið rata fyrir dóm­stóla í Lúx­em­borg á næsta ári, árið 2021. Þá verða liðin næstum 13 ár frá því að und­ir­liggj­andi atburðir áttu sér stað.

Frétta­skýr­ingin byggir að stórum hluta á bók­inni Kaupt­hink­ing: Bankinn sem átti sig sjálfur, sem kom út síðla árs 2018 og er eftir sama höf­und. Sú bók byggir meðal ann­ars á tug­þús­undum blað­síðna af rann­sóknar- og máls­gögnum í málum sem emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara og önnur sam­bæri­leg emb­ætti í öðrum löndum hafa viðað að sér við rann­sókn og sak­sókn þeirra mála sem hrunið leiddi af sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kaupthinking

Mest lesið undanfarið ár