Ég hef kannað þetta ítarlega og komist að því að þetta tengdist ekkert fjármálakreppu, þetta voru alger Ponzi-svik og útilokað að það hefði haldið velli. Það hefði bara þurft einn mann innan bankans til að taka upp símann og segja „Þessi banki á sig sjálfur“ og þá hefði hann hrunið. Merkilegt að það gerðist ekki.“
Þetta sagði Kevin Stanford, einn stærsti viðskiptavinur Kaupþings banka fyrir hrun í yfirheyrslum hjá embætti sérstaks saksóknara. Þar sagðist hann líka hafa haft einstakan aðgang að stjórnendum Kaupþings. Aðgang sem hann hefði ekki fengið hjá öðrum alþjóðlegum bönkum. „Ég gat hringt í forstjóra bankans. […] Okkur fannst gaman að stunda viðskipti og hafa aðgang að peningum.“ Stanford kallaði enn fremur hin svokölluðu CLN-viðskipti sem hann tók þátt í að undirlagi Kaupþings „kjarnorkusprengju í fjármálum“. Aðspurður af hverju hann hefði verið „valinn“ til að vera eigandi eins félagsins sem notað var í þau viðskipti sagði Kevin að hann héldi að það hefði verið vegna þess að hann „var eini hvíti maðurinn í þorpinu“. Það hafi verið mikilvægt að hann væri útlendingur, ekki Íslendingur, svo að það liti út fyrir að alþjóðlegur fjárfestir væri að kaupa.
Yfirheyrslurnar eru hluti af tugþúsundum skjala sem fjallað er um í bókinni Kaupthinking: Bankinn sem átti sig sjálfur eftir Þórð Snæ Júlíusson, ritstjóra Kjarnans, sem kom út í nóvember 2018 og var í gær tilnefnd til Blaðamannaverðlauna Íslands.
Þú getur það, þú þarft bara að halda að þú getir það
Kaupþing var allra banka stærstur á Íslandi, mennirnir sem stjórnuðu honum voru álitnir nokkurs konar hálfguðir og sjálfsmynd þeirra og margra annarra sem störfuðu fyrir bankann var nátengd árangri hans. Ekkert verkefni var of stórt til að takast á við og engin markmið voru of umfangsmikil. Allt var hægt. Þangað til að bankinn féll með látum haustið 2008 ásamt öllu íslenska bankakerfinu og með tilheyrandi áhrifum á íslenskt samfélag.
Kaupthinking er nefnd eftir hugmyndafræði sem sett var fram í hvatningarmyndbandi fyrir starfsmenn bankans, þar sem dimmraddaður þulur lýsti því yfir hvernig væri hægt að vaxa hratt með því að vera sveigjanlegur, hreyfa sig hraðar og vera snjallari en skrifræðið. Og að það væri hægt að skemmta sér konunglega á meðan. „Ef þú vilt breyta heiminum, þá geturðu það. Þú þarft bara að halda að þú getir það.“
Bókin byggir á tíu ára vinnu höfundar og á miklu magni trúnaðar- og rannsóknargagna, íslenskum og erlendum, sem hann fékk aðgang að snemma á árinu 2018. Á meðal þeirra gagna eru, ógrynni tölvupósta, frumgögn innan úr Kaupþingi, yfirheyrslur yfir sakborningum og vitnum, greinargerðir rannsakenda í risavöxnum málum og hlustanir í síma sem flestar áttu sér annaðhvort stað um það leyti sem skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis birti skýrslu sína í apríl 2010 eða um mánuði síðar í kjölfar þess að helstu stjórnendur Kaupþings voru hnepptir í gæsluvarðhald vegna gruns um stórfellda brotahegðun. Flestir þeirra hlutu síðar fangelsisdóma fyrir efnahagsbrot sem eiga sér enga hliðstæðu í Íslandssögunni.
Það er eins og þú sért að tala kínversku
Gögnin sýna meðal annars hvernig margir af helstu viðskiptavinum og millistjórnendur Kaupþings upplifðu bankann í baksýnisspeglinum. Á meðal þeirra sem tekin var skýrsla af er Sheikh Mohammed Bin Khalifa Al Thani, úr konungsfjölskyldunni í Katar. Al-Thani var kynntur sem kaupandi að rúmlega fimm prósent hlut í Kaupþingi í september 2008. Síðar kom í ljós að Kaupþing hafði fjármagnað kaupin sjálft og viðskiptin leiddu til þess að þrír af æðstu stjórnendum bankans, ásamt einum helsta eiganda hans, voru dæmdir til fangelsisvistar í febrúar 2015 fyrir markaðsmisnotkun, umboðssvik eða hlutdeild í þeim brotum. Til viðbótar stóð til að Al Thani myndi taka þátt í svokölluðum CLN-viðskiptum sem höfðu þann tilgang að reyna að ná niður skuldatryggingaálagi bankans.
Þegar Al Thani var spurður út í þau viðskipti af rannsakendum sérstaks saksóknara við skýrslugjöf sagði hann: „„Getur þú útskýrt þetta, ég skil ekki hvað þú ert að segja[...]það er eins og þú sért að tala kínversku.“
Annar stór viðskiptavinur Kaupþings, sem tók þátt í CLN-viðskiptunum án tapáættu og með fjármagn frá bankanum sjálfum, var Tony Yerolemou. Sá sat um tíma í stjórn Kaupþings.
Við yfirheyrslur sagði hann: „Ég hafði sjálfur enga hugmynd um hvað bankinn var að gera, ég hefði ekki getað vitað það. Ég gerði ráð fyrir að stjórnendur hans vissu hvað þeir væru að gera. […] Þeir voru mjög bjartsýnir og alltaf að reyna að kaupa aðra banka og ég held að það hafi verið mistök að menn héldu að með því að kaupa aðra myndu hlutirnir hækka.“
Enn annar viðskiptavinur, Vincent Tchenguiz, sagði að íslensku bankarnir hefðu ekki verið raunverulegir bankar, heldur vogunarsjóðir.
„Ég var að vona að þið mynduð ekki fatta þetta“
Margir háttsettir starfsmenn voru ekki síður skeptískir á það sem átt hafði sé stað innan Kaupþings síðustu misserin í tilveru bankans. Það kom bersýnilega í ljós í símtölum þeirra á milli sem voru hlustuð. Afrit af mörgum þeirra símtala eru birt í bókinni.
Á meðal þeirra sem ræddu saman í síma í apríl 2010, rétt eftir að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um orsök og afleiðingar falls bankanna var birt, voru Helgi Sigurðsson, fyrrverandi forstöðumaður lögfræðisviðs Kaupþings, og Bjarki Diego, fyrrverandi framkvæmdastjóri útlána hjá Kaupþingi. Bjarki hlaut síðar tveggja og hálfs árs fangelsisdóm í stóra markaðsmisnotkunarmáli Kaupþings. Í símtalinu ræða þeir meinta markaðsmisnotkun út frá þeim upplýsingum sem komu fram í rannsóknarskýrslunni, sérstaklega kaup félagsins Desulo Trading, sem var í eigu Egils Ágústssonar, á hlutabréfum í Kaupþingi sem fjármögnuð voru að fullu af sama banka. Þau kaup voru á meðal þeirra sem voru undir í áðurnefndu markaðsmisnotkunarmáli, þar sem níu manns voru dæmdir sekir í Hæstarétti í október 2016.
Í símtalinu sagði Helgi, sem í dag er héraðsdómari, orðrétt: „Þarna er bókstaflega verið að „plassera“ bréfum. Þetta eru svo augljóslega sýndarviðskipti ef það átti ekkert fé að koma til þarna og það var ekki einu sinni rætt.“
Sumir starfsmenn virtust geta séð spaugilegu hliðina á því sem var að gerast á lokametrunum í lífi Kaupþings banka, og var síðar dæmt sem markaðsmisnotkun. Einn viðskiptastjóri á lánasviði hafði verið kallaður til fundar við við ytri endurskoðendur Kaupþings vegna lána til eignarlausra eða eignalítilla félaga til að kaupa bréf í bankanum. Þetta var gert með tölvupósti sem var sendur 19. september 2008. Hann átti meðal annars að svara því hvernig áðurnefnt Desulo Trading ætlaði að greiða upp lán sem var á gjalddaga í desember 2008.
Afrit af póstinum var meðal annars sent til Bjarka Diego sem svaraði: „Good luck[…], það verður auðvelt fyrir þig að svara þessu!“ Viðskiptastjórinn svaraði að bragði og sagði: „hehe … Það kemur víst alltaf að skuldadögum – ég segi bara líkt og Nick Leeson sagði við endurskoðendur Barings banka: „ég var að vona að þið mynduð ekki fatta þetta …“
Misst algjörlega trú á þessum mönnum sem ráku þennan banka
Halldór Bjarkar Lúðvígsson, fyrrverandi viðskiptastjóri á útlánasviði Kaupþings, var ekki síður myrkur í máli við yfirheyrslur. „Ég hef misst algjörlega trú á þessum mönnum sem að ráku þennan banka og áttu þennan banka og hérna[…]og á öllu sem þarna var gert,“ sagði hann við rannsakendur.
Við fyrstu yfirheyrslunum sem fóru fram yfir Halldóri Bjarkar, sem var lykilvitni saksóknara í hluta Kaupþingsmála, sagðist hann hafa ætlað að hætta í bankageiranum við hrunið. Fyrir því hefðu verið tvær ástæður: „Annars vegar það sem ég varð vitni að í bankanum svona vikurnar og mánuðina fyrir fall varð nú eiginlega til þess að ég varð mjög fráhverfur þessu bankaumhverfi og hitt það að þetta var bara hætt að vera gaman.“ Hann hætti þó ekki og var lengi vel lykilstjórnandi innan Arion banka. Halldór Bjarkar starfar nú hjá Valitor, dótturfélagi Arion banka.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.




























Athugasemdir