Rannsókn yfirvalda í Lúxemborg á stjórnendum Kaupþings að ljúka

Rannsókn yfir­valda í Lúx­em­borg á stjórn­endum og starfs­mönnum Kaup­þings í Lindsor-mál­inu fer senn að ljúka en rann­sóknin hefur staðið yfir í ára­tug. Rík­is­sak­sókn­ari í Lúx­em­borg mun taka ákvörðun um hvort að ákæra verði gefin út.

Rannsókn yfir­valda í Lúx­em­borg á stjórn­endum og starfs­mönnum Kaup­þings banka hf. og Kaupt­hing Bank Luxembourg S.A. vegna Lindsor-máls­ins svo­kall­aða er að ljúka. Rann­sókn­ar­gögn verða send til rík­is­sak­sókn­ara í Lúx­em­borg sem tekur ákvörðun um hvort að ákæra verði gefin út. Þetta stað­festi fjöl­miðla­full­trúi rann­sókn­ar­dóm­ar­ans í Lúx­em­borg í sam­tali við Morg­un­blaðið. 

Lindsor-málið svokallaða

[links]Lindsor-málið snýst um 171 millj­ónir evra lán sem Kaupþing veitti félagi sem heitir Lindsor Holding Corporationog er skráð til heim­ilis á Tortóla-eyju. Lindsor var í eigu Otris, félags sem stjórn­endur Kaup­þings stýrðu og virk­aði sem nokk­urs konar afskrifta­sjóður utan efna­hags­reikn­ings Kaup­þings.

Lánið var veitt 6. októ­ber 2008, sama dag og neyð­ar­lög voru sett á Íslandi og Geir H. Haarde, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, bað guð að blessa Ísland. Þann dag lán­aði Seðla­banki Íslands líka Kaup­þingi 500 millj­ónir evra í neyð­ar­lán.

Þremur dögum síðar var Kaup­þing fall­inn. Lánið til Lindsor var aldrei borið undir lána­nefnd Kaup­þings. Það var notað til að kaupa skulda­bréf af Kaup­þingi í Lúx­em­borg, ein­stökum starfs­mönnum þess banka og félagi í eigu Skúla Þor­valds­son­ar, vild­ar­við­skipta­vinar Kaup­þings.

Í grein­ar­gerð sér­staks sak­sókn­ara sem fylgdi gæslu­varð­halds­úr­skurði yfir Magn­úsi Guð­munds­syni, fyrrum for­stjóra Kaup­þings í Lúx­em­borg, í maí 2010, segir að „til­gangur við­skipt­anna hafi verið sá að flytja áhætt­una af fallandi verð­gildi skulda­bréf­anna af eig­end­um þeirra og yfir á Kaup­þing á Ísland­i“. Þar sagði einnig að gögn bendi til þess að Lindsor hafi keypt skulda­bréfin á mun hærra verði en mark­aðs­verði.

Þegar Kaup­þing féll þremur dögum eftir kaupin á bréf­unum var ljóst að Lindsor gat ekki greitt lánið til baka, enda eina eign félags­ins verð­litlu skulda­bréfin sem félagið hafði keypt þremur dögum áður. Engar trygg­ingar voru veittar fyrir lán­inu. Þeir sem seldu bréfin los­uðu sig hins vegar undan ábyrgðum og rann­sókn­ar­að­ilar telja að þeir hafi um leið tryggt sér mik­inn ágóða. Þessu hafa Kaup­þings­menn hins vegar alltaf hafnað.

Ákveður hvort að ákæra verði gefin út

Lindsor-málið hefur því verið til rann­sóknar, bæði hjá yfir­völdum á Íslandi og í Lúx­em­borg, í ára­tug. Yfirvöld í Lúx­em­borg komu til lands­ins árið 2016 til að yfir­heyra Íslend­inga í tengslum við málið. Á meðal þeirra var rann­sókn­ar­dóm­ari en rann­sókn­ar­dóm­arar sjá um rann­sókn saka­mála í Lúx­em­borg. Samkvæmt heim­ildum Morg­un­blaðs­ins mun sá rann­sókn­ar­dóm­ari bráð­lega skila rann­sókn­ar­gögnum til rík­is­sak­sókn­ara í Lúx­em­borg sem tekur síðan ákvörðun um hvort að ákæra verði gefin út.

Hefði verið betra að veita ekki lánið

Seðla­banki Íslands birti skýrslu um neyð­ar­lán bank­ans til Kaup­þings í maí síð­ast­liðnum en skýrslan var rúm fjögur ár í vinnslu. Í for­mála skýrsl­unnar segir Már Guð­munds­son, seðla­banka­stjóri, að eftir á hyggja hefði verið betra að veita ekki lánið.

Jafn­framt kemur fram í skýrsl­unni að að það liggi nú fyrir að ekki muni end­ur­heimt­ast meira af lán­inu en sem nemur 260 millj­ónum evra, sem eru 37 millj­arðar króna á gengi dags­ins í dag. Árið 2014 hafði Seðla­banki Íslands gefið það út að um 270 millj­ónir evra myndu end­ur­heimt­ast af lán­inu. Nú er ljóst að sú upp­hæð hefur skroppið saman.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár