Rannsakendur frá Lúxemborg yfirheyrðu menn á Íslandi

Lög­reglu­yf­ir­völd í Lúx­em­borg sendu þrjá menn hingað til lands í lok des­em­ber vegna Lindsor-máls­ins svo­kall­aða. Þeir yfir­heyrðu Íslend­inga sem tengj­ast mál­inu. Það snýst um lán sem Kaupþing veitti sama dag og Geir H. Haarde bað guð að blessa Ísland.

Þrír menn sem vinna við rann­sókn á Lindsor-mál­inu svo­kall­aða komu til Íslands í des­em­ber síð­ast­liðnum, lögðu fram rétt­ar­beiðni og ósk­uðu eftir atbeina emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara vegna rann­sóknar máls­ins. Í kjöl­farið yfir­heyrðu þeir Íslend­inga sem tengj­ast mál­inu, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Einn þeirra sem kom hingað til lands er rann­sókn­ar­dóm­ar­inn sem stýrir rann­sókn­inni, Ernest Nilles.

Lindsor-málið hefur verið til rann­sóknar í á níunda ár, bæði hjá yfir­völdum á Íslandi og í Lúx­em­borg. Lög­reglu­yf­ir­völd í Lúx­em­borg yfir­heyrðu menn ytra í tengslum við rann­sókn á því í mars 2015. Á meðal þeirra sem yfir­heyrðir voru eru íslenskir rík­is­borg­ar­ar.

Rann­sókn máls­ins er enn opin hjá yfir­völdum í báðum lönd­unum þótt hún engar ákærður hafi verið gefnar út í því. Þeir sem eru grun­aðir um lög­brot í mál­inu, fyrr­ver­andi helstu stjórn­endur Kaup­þings og vild­ar­við­skipta­vinur þeirra, hafa ávallt harð­neitað að nokkuð sak­næmt hafi átt sér stað í mál­inu.

Þegar mál­flutn­ingur í svoköll­uðu CLN-máli fór fram í des­em­ber 2015 fjall­aði Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings og einn sak­born­inga í því máli, um Lindsor-málið í ræðu. Í ræðu sinni sagði Hreiðar Már að Lindsor-málið hafi snú­ist um end­ur­kaup á skulda­bréfum sem Kaupþing hafði áður gefið út á alþjóð­legum skulda­bréfa­mörk­uðum. Hann sagði að kaupin hafi verið gerð í „sam­ræmi við ráð­legg­ingu Deutsche Bank og með þeim kaupum minnkuðum við end­ur­fjár­mögn­un­ar­þörf bank­ans og högn­uð­umst með því að kaupa til baka skulda­bréf á afföllum.“

Lán veitt 6. október 2008

Lindsor-málið snýst meðal ann­ars um lán upp á 171 millj­ónir evra, 20,5 millj­arða króna á gengi dags­ins í dag, sem Kaupþing veitti félagi sem heitir Lindsor Holding Corporation og er skráð til heim­ilis á Tortóla-eyju. Lindsor var í eigu Otris, félags sem stjórn­endur Kaup­þings stýrðu og virk­aði sem nokk­urs konar afskrifta­sjóður utan efna­hags­reikn­ings Kaup­þings.

Lánið var veitt 6. októ­ber 2008, sama dag og neyð­ar­lög voru sett á Íslandi og Geir H. Haarde, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, bað guð að blessa Ísland. Þann dag lánað Seðla­banki Íslands líka Kaup­þingi 500 millj­ónir evra í neyð­ar­lán. Þremur dögum síðar var Kaup­þing fall­inn.

Lánið til Lindsor var aldrei borið undir lána­nefnd Kaup­þings. Það var notað til að kaupa skulda­bréf af Kaup­þingi í Lúx­em­borg, ein­stökum starfs­mönnum þess banka og félagi í eigu Skúla Þor­valds­son­ar, vild­ar­við­skipta­vinar Kaup­þings.

Í grein­ar­gerð sér­staks sak­sókn­ara sem fylgdi gæslu­varð­halds­úr­skurði yfir Magn­úsi Guð­munds­syni, fyrrum for­stjóra Kaup­þings í Lúx­em­borg, í maí 2010, segir að „til­gangur við­skipt­anna hafi verið sá að flytja áhætt­una af fallandi verð­gildi skulda­bréf­anna af eig­end­um þeirra og yfir á Kaup­þing á Ísland­i“. Þar sagði einnig að gögn bendi til þess að Lindsor hafi keypt skulda­bréfin á mun hærra verði en mark­aðs­verði.

Hreiðar Már Sigurðsson hefur ávallt hafnað því að nokkur innan Kaupþings hafi hagnast vegna neyðarláns Kaupþings.
Hreiðar Már Sig­urðs­son hefur ávallt hafnað því að nokkur innan Kaup­þings hafi hagn­ast vegna neyð­ar­láns Kaup­þings.

Þegar Kaup­þing féll þremur dögum eftir kaupin á bréf­unum var ljóst að Lindsor gat ekki greitt lánið til baka, enda eina eign félags­ins verð­litlu skulda­bréfin sem félagið hafði keypt þremur dögum áður. Engar trygg­ingar voru veittar fyrir lán­inu. Þeir sem seldu bréfin los­uðu sig hins vegar undan ábyrgðum og rann­sókn­ar­að­ilar telja að þeir hafi um leið tryggt sér mik­inn ágóða.

Hafna því að hafa hagnast um eina evru

Þessu hafa Kauþings­menn alltaf hafnað. Hreiðar Már sagði í grein sem hann skrif­aði síðla árs 2014 að ekk­ert af fjár­magn­inu frá sem Kaupþing fékk frá Seðla­bank­anum hafi verið notað til að kaupa eigin skulda­bréf Kaup­þings. „Allt fjár­magnið var nýtt til að tryggja aðgang við­skipta­vina bank­ans í fjöl­mörgum löndum Evrópu að banka­inni­stæðum sínum, tryggja aðgang dótt­ur­banka Kaup­þings í Evrópu að lausafé og mæta veð­köllum bank­ans vegna fjár­mögn­unar hans og við­skipta­vina hans á verð­bréfum hjá alþjóð­legum bönkum í Evrópu.[...]Enginn eig­andi, við­skipta­vinur, stjórn­andi eða starfs­maður bank­ans hagn­að­ist um svo mikið sem um eina evru vegna láns Seðla­banka Íslands. Engar óeðli­legar fjár­magns­hreyf­ingar áttu sér stað með and­virði láns­ins og starfs­menn Kaup­þings sem komu að ráð­stöfun láns­ins gengu til sinna starfa af heið­ar­leika.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnahagsbrot

Mest lesið undanfarið ár