Hreiðar Már og Magnús sekir í Marple-málinu

Hreiðar Már Sig­urðs­son og Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi stjórn­endur Kaup­þings banka, voru í gær sak­felldir fyrir fjár­drátt í Lands­rétti í Marple-mál­inu svo­kall­aða. Hins vegar var refs­ing yfir þeim í mál­inu felld niður.

Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, voru í Lands­rétti í gær sak­felldir fyrir hluta þeirra brota sem þeim var gefið að hafa framið í Marple-mál­inu svo­kall­aða. Hreiðar Már var sak­felldur fyrir fjár­drátt og Magnús fyrir hlut­deild í fjár­drætti.

[links]Hvorugum var gerð refs­ing vegna brota sinna þar sem þeir hafa náð sex ára refsi­há­marki auðg­un­ar­brota með fyrri dómum. Fjár­festir­inn Skúli Þor­valds­son, meintur eig­andi félags­ins Marple Holding, og Guðný Arna Sveins­dóttir, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóri Kaup­þings, voru aftur á móti sýknuð af ákærum. Hægt er að lesa dóm­inn í heild sinni hér.

Millifærsla á þremur milljörðum króna

Ákært var í þremur liðum en sýknað í tveimur þeirra. Sakfellt var í lið sem sneri að milli­færslu á þremur millj­örðum króna frá Kaup­þingi hf. til Kaup­þings í Lúx­em­borg en þaðan end­uðu pen­ing­arnir á reikn­ingi félags­ins Marple. Lands­réttur telur í dómi sínum að þótt brot Hreiðars núna varði háa fjár­hæð sé málið fjarri því eins yfir­grips­mikið og þau brot sem hann hafi þegar verið fund­inn sekur um og sætt refs­ingu fyrir. Lands­réttur vísar í sömu rök varð­andi nið­ur­fell­ingu á refs­ingu Magnúsar, en hann var fund­inn sekur um hlut­deild í brotum Hreiðars Más.

[adspot]Magnús hafði áður hlotið fjög­urra ára og sex mán­aða dóm og bætt­ist 18 mán­aða dómur hér­aðs­dóms þar ofan á. Með fyrri dómum hafði Hreiðar hlotið sex ára fang­elsi fyrir fjár­mála­brot, en það er refsi­há­mark slíkra brota. Til við­bótar var honum dæmdur hegn­ing­ar­auki í dómi hér­aðs­dóms í Marple-mál­inu.

Skúli og Guðný sýknuð af öllum ákæruliðum

Fjár­festir­inn Skúli Þor­valds­son var hins vegar sýkn­aður af öllum kröfum ákæru­valds­ins, en hann hafði verið dæmdur í sex mán­aða fang­elsi í hér­aðs­dómi. Guðný Arna Sveins­dóttir, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóri bank­ans, var einnig sýknuð af ákærum um fjár­drátt og umboðs­svik, líkt og í hér­aðs­dómi.

Lands­réttur við­ur­kennir í dóm­inum skaða­bóta­skyldu bæði Magnúsar og Hreiðars Más gagn­vart Kaup­þingi ehf. vegna tjóns sem gat hlot­ist af hátt­semi þeirra. Hreiðar Már og Magnús þurfa að greiða þriðj­ung málsvarn­ar­launa verj­enda sinna í hér­aði og fyrir Lands­rétti. Annar kostn­aður fellur á rík­is­sjóð. Skaða­bóta­skyldu gegn Skúla og Guðnýju er hins vegar vísað frá dómi þar sem þau eru sýknuð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár