Bankarnir bentu aldrei á neina alvöru viðskiptavini

Á árunum fyrir hrun, þegar framin voru stór­felld efna­hags­brot í banka­kerf­inu og víðar, var Helgi Magnús Gunn­ars­son yfir efna­hags­brota­deild lands­ins. Hann segir að pen­inga­þvætt­is­til­kynn­ingar hafi flestar borist frá gjald­kerum.

Helgi Magnús Gunn­ars­son hefur verið vara­rík­is­sak­sókn­ari frá árinu 2011. Þar áður hafði hann veitt efna­hags­brota­deild rík­is­lög­reglu­stjóra for­stöðu frá árinu 2007. Hann stund­aði auk þess á sínum tíma fram­halds­nám í rann­sókn og sak­sókn efna­hags­brota við Polit­høg­skolen.

Á þessum árum hefur hann komið að öllum stærstu efna­hags­brota­málum sem sak­sótt hafa verið á Íslandi, fyrst Baugs­mál­inu, síðan þeim málum sem voru til rann­sóknar hjá efna­hags­brota­deild­inni á meðan að hann stýrði henni og loks sótti hann flest stóru hrun­málin í Hæsta­rétti þegar þeim var áfrýjað þangað sem rík­is­sak­sókn­ari.

Hann hefur því miklar reynslu af efna­hags­brotum og yfir­sýn yfir þær breyt­ingar sem orðið hafa í þeim mála­flokki á und­an­förnum árum. Frá sinnu­leys­inu sem var fyrir hrunið, að auknum kröfum um aðgerðir og ábyrgð eftir það, og yfir í ákveðið sinnu­leysi á ný.

Þetta er í þriðja sinn sem höf­undur tekur við­tal við Helga Magnús um þessi mál. Fyrstu tvö skiptin áttu þau sér stað árið 2007 og svo síð­sum­ars 2008, skömmu fyrir banka­hrunið. Í þeim báðum gagn­rýndi hann harð­lega þann aðbúnað og þær aðstæður sem rann­sak­endum efna­hags­brota voru sniðnar.

Sá tónn hefur lítið breyst á þeim rúma ára­tug sem lið­inn er.

Athugasemdir komu ekki á óvart

Þegar Helgi Magnús var sak­sókn­ari efna­hags­brota­deildar þá heyrði hin svo­kall­aða pen­inga­þvætt­is­skrif­stofa undir hann.

Pen­inga­þvætti hefur verið mikið til umfjöll­unar á Íslandi síð­ustu vikur, eftir að alþjóð­legu sam­tökin Financial Action Task Force (FATF) settu Ísland á gráan lista í októ­ber. Það gerð­ist í kjöl­far þess að Ísland fékk fall­ein­kunn í úttekt sam­tak­anna sem birt var í apríl 2018, og síðan mis­tek­ist að verða við öllum úrbót­ar­kröfum innan gef­ins tímara­mma.

Helgi Magnús segir að það hafi ekki komið honum á óvart að það hefðu komið fram athuga­semdir við stöð­una á Íslandi í úttekt­inni, en að það hafi komið honum á óvart að Ísland hefði verið sett á gráan lista. „Við vorum að fá nei­kvæða umsögn og mér fannst það ekk­ert skrýtið. Þetta er bara eins og svo margt hjá okkur Íslend­ingum. Við erum aldrei með neitt lang­tíma plan, heldur erum alltaf bara að slökkva elda. Við erum allt of oft að bregð­ast við vand­anum eftir á í stað þess að fyr­ir­byggja hann í tíma. Ég held að þetta sé bara þannig að menn séu frá degi til dags að ákveða í hvað pen­ingar eiga að fara. Það kostar pen­inga að gera breyt­ingar og tryggja að varnir lands­ins gegn pen­inga­þvætti séu í lagi. Það var eng­inn að garga á stjórn­mála­menn til að setja pen­inga í pen­inga­þvætt­is­varnir og það var eng­inn að hlusta á okkur sem vorum að benda á þetta.“

Þetta var í annað sinn sem Ísland kom illa út úr FATF úttekt. Í fyrra skiptið gerð­ist það 2006.

Aðspurður um hvernig þessum málum hafi verið háttað hjá pen­inga­þvætt­is­skrif­stof­unni, sem heyrði þá undir hann, á sínum tíma segir Helgi Magnús að það hafi verið einn starfs­maður á henni. „Hann var líka í öðrum verk­efnum. Það að kalla þetta skrif­stofu var meira að form­inu til en að efn­inu til.“

Við­kom­andi hafi verið verið lög­reglu­full­trúi, staðið sig ágæt­lega og verið dug­legur að afla upp­lýs­inga. „Þetta var byggt upp þannig að það komu skrif­legar ábend­ingar nær ein­göngu á þessum tíma frá bönkum og spari­sjóðum. Þær voru færðar inn í möppu og svo var búið til eitt­hvað utan­um­hald sem einn starfs­maður setti saman, þar sem hægt var að skrá­setja grunn­upp­lýs­ingar upp úr þessum ábend­ingum.

Úrvinnslan var síðan þannig að þessi starfs­maður las ábend­ing­arnar yfir og mat hvort eitt­hvað væri ger­andi með þetta og kom svo til okkar með hug­myndir hvort það væri eitt­hvað sem við ættum að bregð­ast við. Vit­neskja lög­reglu­yf­ir­valda um hugs­an­legt pen­inga­þvætti ræðst að miklu leyti af því hvort þeir sem eru til­kynn­inga­skyldir til­kynni um grun­sam­legar pen­inga­færslur til pen­inga­þvætt­is­skrif­stof­unnar. Það komu nokkur mál upp sem áttu upp­haf sitt í slíkum til­kynn­ingum, til dæmis varð­andi konu sem var að hafa fé af eldri karl­mönnum víða um landið. Það kom eftir ábend­ingu starfs­manns Íslands­banka úti á landi. Svo voru tvö mál Níger­íu­manna sem voru að svindla sem ég man eftir. Allt þetta fólk hlaut þunga dóma fyrir fjár­svik eftir rann­sókn sem hófst með ábend­ingu um mögu­legt pen­inga­þvætti“

Flestar tilkynningar tengdust fíkniefnaviðskiptum

Á þessum árum hafði Ísland opn­ast mikið og fjár­magns­flutn­ingar milli landa, sam­hliða auknum umsvifum einka­væddu bank­anna, marg­fald­ast. Það sem var athygl­is­vert í þessum upp­gangi þarna fyrir hrun var að það komu aldrei neinar ábend­ingar um neina alvöru við­skipta­vini frá bönk­unum. Það var verið að flytja millj­arða í gegnum bank­ana í allskyns við­skiptum. Ég hafði spurnir af því frá aðila sem þekkti til í Seðla­bank­anum á þessum tíma, þar sem er yfir­sýn yfir gjald­eyr­is­færslur, að honum hafi fund­ist sumar af þessum færslum hafa verið þannig að kannski hafi verið ástæða til þess að skoða þær. En við fengum aldrei ábend­ingar frá bönk­unum um þetta.“

Helgi Magnús segir að á þessum árum hafi verið haldin nám­skeið fyrir banka­starfs­menn þar sem farið var yfir skyldur þeirra til að til­kynna sam­kvæmt pen­inga­þvætt­is­lögum. Samt hafi 80-85 pró­sent allra til­kynn­inga verið tengdar fíkni­efna­við­skiptum, þegar ein­stak­lingar fóru í banka til að kaupa sér gjald­eyri til að kaupa fíkni­efni í Hollandi eða ann­ars staðar. „Þessi nám­skeið náðu ágæt­lega til gjald­kera í bönk­unum. En fyrir þá sem voru að eiga við þessa stóru við­skipta­vini, og voru að milli­færa stórar upp­hæðir fyrir þá, þeir kusu að koma ekki þessum upp­lýs­ingum á fram­færi. Nú ætla ég ekk­ert að full­yrða að það hafi verið til­efni til þess en mér finnst lík­legt að í ein­hverjum til­vikum hafi eitt­hvað verið sem hefði átt að leiða til að upp­lýs­ingum yrði að minnsta kosti komið á fram­færi þannig að meta mætti hvort til­efni væri til frek­ari rann­sóknar. Stórar fjár­muna­færslur, til­kynn­ingar um þær, við bara sáum þær held ég aldrei.“

Reiðin ýtti við ráðamönnum

Það var þó ekki ein­ungis í þeim málum sem snéru að pen­inga­þvætti sem pottur var brot­inn í aðbún­aði efna­hags­brota­deild­ar­innar á þessum árum. Helgi Magnús var óhræddur við að gagn­rýna þá ójöfnu stöðu sem gefin var þegar kom að rann­sókn efna­hags­brota árunum fyrir hrun, og gerði það meðal ann­ars í áður­nefndum tveimur við­tölum við Blaðið 2007 og 24 Stundir sum­arið 2008. Í hinu fyrra, á hátindi banka­góð­ær­is­ins, sagði hann meðal ann­ars: „Það er eng­inn sem gerir athuga­semd við það að refsa manni sem stelur sér kók­flösku á Lauga­veg­inum og oft verður mikil umræða um lítil mál sem valda tak­mörk­uðum skaða. Þegar hvít­flibbar eiga í hlut og það frétt­ist að þeir hafi jafn­vel stungið ævi­tekjum verka­manns­ins undan skatti skap­ast oft engin opin­ber umræða um málið. Það er þetta sem ég vil að fólk vakni til vit­undar um. Þessir hags­munir almenn­ings sem við erum að berj­ast fyrir eru svo gríð­ar­lega miklir. Þessir menn sem við fáumst við eru í þeirri aðstöðu að geta svipt okkur starf­inu, eign­unum og eft­ir­laun­unum.“

Þetta truflar hann enn í dag. Hann seg­ist hafa talað fyrir því að efna­hags­brota­deildin yrði styrkt á sínum tíma þar sem að það hefði ekki verið neitt sam­hengi milli stærðar deild­ar­innar og stærðar atvinnu­lífs­ins á þessum tíma. „Svo gerð­ist það eftir hrunið að þá verður nógu mikil reiði í sam­fé­lag­inu til að menn neyð­ast til að horfast í augu við þetta og finna það á eigin skinni að efna­hags­brot geti kannski snert ein­hvern. Það ríkti skiln­ingur á að nauðgun, níð á börnum, mann­dráp eða annað ofbeldi og fíkni­efna­mál væru glæpir sem hefðu áhrif á sam­fé­lagið. En það var alltaf erfitt að fá ráða­menn til að skilja að efna­hags­brot gætu haft ein­hverja raun­veru­lega þýð­ingu fyrir þá eða hags­muni sam­fé­lags­ins í heild.“

Ákæruvald þarf að vera sjálfstætt

Hrun­málin voru sótt af miklum krafti og mörg þeirra skil­uðu þungum dómum yfir þeim sem sátu á saka­manna­bekk í þeim. Í miðri á, þ.e. árið 2013, var hins vegar ráð­ist í mik­inn nið­ur­skurð á fram­lögum til emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara, sem gerði það meðal ann­ars að verkum að emb­ættið gat ekki klárað rann­sókn á mörgum málum tengdum hrun­inu. Nýlega, þegar Sam­herj­a­málið svo­kall­aða kom upp á yfir­borðið, varð svo harð­vítug póli­tísk umræða um hvers konar fjár­heim­ildir emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara, sem sinnir nú efna­hags­brota­rann­sóknum, þyrfti til að geta tek­ist á við það. Í minn­is­blaði sem Ólafur Þór Hauksson hér­aðs­sak­sókn­ari sendi til dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins í nóv­em­ber kom fram að um hund­rað mál biði rann­sóknar hjá emb­ætt­inu og að núver­andi starfs­manna­fjöldi dygði ekki til að sinna öllum þeim rann­sókn­ar­verk­efnum sem það þarf að takast á við að óbreyttu, hvað þá við­bót­ar­málum af stærra umfangi. Meiri fjár­muni þyrfti til.

Helgi Magnús segir að þetta sé orðið kunn­ug­legt stef. „Ákæru­valdið þarf að vera sjálf­stætt. Með sjálf­stæði á ég við að það séu engin utan­að­kom­andi öfl, pen­inga­öfl eða póli­tísk sem hafi áhrif á afgreiðslur saka­mála. Það er mjög mik­il­vægt. Stærsti þátt­ur­inn í sjálf­stæði ákæru­valds­ins er að það hafi pen­inga til að sinna þeim verk­efnum sem ákæru­valdið á að sinna. Besta leiðin til að skerða sjálf­stæði ákæru­valds­ins og skerða getu þess til að rann­saka og sak­sækja mál er að passa upp á að það hafi ekki næga pen­inga. Það er ósköp ein­falt.“

Ómöguleg staða fyrir ráðamenn að vera í

Að hans mati er það ómögu­leg staða að vera í að póli­tísk kjör­inn ráð­herra sé að veita sér­stak­lega fjár­heim­ildir til rann­sókna eða sak­sókna á til­teknum málum. „Í okkar smáa og fámenna kerfi koma reglu­lega upp stór mál sem setja alla verk­efna­stöðu á hlið­ina. Ef slík mál eiga að fá full­nægj­andi fram­gang innan eðli­legs tíma þarf oft tíma­bundið að fjölga starfs­mönnum og kosta meiru til einnig vegna ann­arra mála sem ann­ars geta lent á bið. Til þess þarf að tryggja pen­inga og fjár­veit­inga­valdið er hjá Alþingi en oft­ast með milli­göngu ráð­herra sem gera til­lögur um fjár­út­látin. Slíkar ákvarð­anir um fjár­út­lát í ein­stökum málum eru óheppi­legar. Í fyrsta lagi býður þetta upp á það að, ef við værum með þannig stjórn­mála­menn að þeir vilji hafa áhrif á nið­ur­stöðu stórra efna­hags­brota­mála gegn fjár­sterkum aðilum sem gætu verið tengdir þeim á ein­hvern hátt, að þeir vilji nú kannski ekk­ert að þetta eða hitt málið fái fram­gang. Þetta býður líka heim þeirri hættu að stjórn­mála­menn eru settir í þá aðstöðu að trú­verð­ug­leiki þeirra er alltaf undir.

Hæfi getur bæði virkað þannig að ef þú ert van­hæfur, vegna tengsla við ein­hvern aðila máls, þá getur þú mis­notað aðstöðu þína þeim í hag sem er þér tengdur, en þú getur líka lent í því að til að sanna að þú sért ekki að mis­nota aðstæður þínar þá geng­urðu lengra en til­efni er til og brýtur á þeim hinum sama. Hæfi snýst því ekki endi­lega um raun­veru­lega mis­notkun á stöðu ein­hverjum til góðs eða ills heldur að það sé hægt að treysta því að slíkt ger­ist ekki. Þetta er ómögu­legar aðstæður fyrir bæði ákæru­valdið og stjórn­mála­menn að vera í.“

Helgi Magnús seg­ist hafa rætt þessi mál við rík­is­sak­sókn­ara á hinum Norð­ur­lönd­unum á fundi þeirra fyrir nokkrum árum þar sem sjálf­stæði ákæru­valds­ins var til umfjöll­unar og hvort fram­gangur ein­stakra stórra mála ráð­ist af sér­stökum fjár­heim­ildum sem veittar eru utan hins venju­lega ramma fjár­laga. Í máli þeirra hafi komið fram að þar væri ætið svig­rúm innan ákæru­valds­ins til að færa til fé þegar það þarf á því að halda þegar ein­hver stór­mál koma upp. „Þetta þurfum við að gera hér þannig að það þurfi ekki að eiga sér stað sam­tal við ráð­herra um hvort að um mál sé að ræða sem hann telur að pen­ingar eigi að fara í svo við getum sinnt þeim. Það er ómögu­leg staða fyrir alla, ekki síst ráð­herr­ann. Hvaða stjórn­mála­maður eða ráð­herra vill sitja undir því að verða stans­laust tor­tryggður við slíkar aðstæður. Hann getur ekki tekið góða ákvörðun, hún er tor­tryggð á hvorn veg­inn sem er. Ég vill þó taka fram að ég er ekki að ætla neinum stjórn­mála­manni, eða ráð­herra, að vilja hafa óeðli­leg áhrif á ákæru­valdið eða hefta rann­sóknir, en því miður getur slíkt komið upp eins og dæmin sanna. Það er nauð­syn­legt að tryggja að hvergi sé ástæða til að efast um sjálf­stæði ákæru­valds­ins og fullt gagn­sæi sé í sam­skiptum þess­ara aðila.“

Svolítið til í því að hér sé einnota réttarfar

Helgi Magnús segir þessa „stemmn­ingu“ sem ríki hverju sinni líka vera sýni­lega hjá dóm­stól­unum sjálfum. „Það skrif­aði einu sinni maður nafn­laust bréf um einnota rétt­ar­far í Baugs­mál­inu[Jón Steinar Gunn­laugs­son, sem þá var dóm­ari í Hæsta­rétti, opin­ber­aði að hann hefði skrifað þetta bréf í bók sem hann gaf út árið 2014]. Ég held að það sé nokkuð til í þessu. Ég hef verið að flytja þessi hrun­mál mörg hver í Hæsta­rétti og Lands­rétti. Og í nán­ast hverju máli er verið að sveifla dómum í Baugs­mál­inu, þar sem sak­ar­efnum var vísað frá dómi, og krefj­ast frá­vís­unar. Það er aldrei uppi á borð­inu. Það er bara liðin tíð að málum sé vísað frá á þeim for­sendum nema eitt­hvað meira komi til.

Í Baugs­mál­inu þá var mikið af gögnum og það var þungt að setja sig inn í það. En það var að mínu mati ekki skiln­ingur á því hjá dóm­stólum að þarna væru ekki um raun­veru­leg við­skipti að ræða heldur raun­veru­leg við­fangs­efni fyrir ákæru­vald og lög­reglu. Þar var atriðum lýst sem eðli­legum við­skiptum sem við töldum aug­ljós­lega ekki vera það. Maður bara skildi ekki í sumum til­vikum í hvaða heimi menn byggju ef þeir teldu það sem þar var lýst vera eðli­leg við­skipti. Með því ætla ég ekki að halda því fram að sak­born­ingar hafi verið sekir um eitt­hvað sem þeir voru sýkn­aðir af. Það er auð­vitað ekki hægt. Sumt hefði átt að fá efn­is­lega umfjöllun í stað frá­vís­unar. En meg­in­reglan á að vera að saka­mál fái efn­is­lega umfjöllun, en það virt­ist ekki vera meg­in­reglan sem gilti um stærri efna­hags­brota­mál fyrir hrun.

En svo kemur hrunið og þá fóru menn í dóms­kerf­inu raun­veru­lega að horfast í augu við þetta. Það er mikið átak fyrir til dæmis Hæsta­rétt sem var með gríð­ar­lega mörg mál, kannski fjögur eða fimm saka­mál í hverri viku auk einka­mála, og mikið álag. Svo koma verj­endur eða sak­sókn­arar með gríð­ar­legan bunka af gögnum um efna­hags­brota­mál og ætl­ast til þess að dóm­ar­arnir fari að eyða heilu vik­unum í að lesa sig inn í málin. Efn­is­at­riðin eru ekki eitt­hvað sem þeir hafa lært í laga­deild heldur þurfti þeir raun­veru­lega, dóm­ar­arnir eins og ákærendur og lög­regla, að setja sig inn í málin.“

Dómstólarnir vildu fara auðveldari leiðina

„Mér fannst, fyrir hrun, að það skorti þennan vilja eða þrek ef það má orða það svo. Þess vegna voru margar frá­vís­anir á málum sem okkur fannst aug­ljós­lega hafa átt að fá efn­is­lega umfjöllun. Þetta leit þannig út þá að dóm­stól­arnir veldu að fara auð­veld­ari leið­ina, í stað­inn fyrir að setja sig efn­is­lega inn í málið. Það er vel hægt að sætta sig við efn­is­lega umfjöllun sem leiðir til nið­ur­stöðu sem e.t.v. var ekki sú sem lagt var upp með af hálfu ákæru­valds, en það gildir annað um að málum, sem kostað hefur verið miklu til við rann­sókn, sé vísað frá án efn­is­legrar umfjöll­unar eða að full­nægj­andi rök­stuðn­ing skorti fyrir nið­ur­stöð­unni.“

Nú, eftir að reiðin hefur minnkað, sé hætta á að málin séu því miður að fara aftur í það far sem þau voru í áður. „Mér finnst ég merkja við­horfs­breyt­ingu í þeim hrun­málum sem hafa verið afgreidd í Lands­rétti. Það hefur þó ekki lýst sér í frá­vís­unum mála heldur frekar efn­is­tökum. Málin eru flókin og krefj­ast mik­ils af dóm­urum til að hægt sé að kom­ast að nið­ur­stöðu um ein­staka efn­is­þætti þeirra. Þessi for­ysta sem Hæsti­réttur tók við að láta þessi mál fá með­ferð, sem leiddi svo niður í hér­aðs­dóm, mér finnst hún hafa dofnað. Sem er miður. Þetta virð­ist ráð­ast af ein­hverjum dæg­ur­sveiflum í geðslagi fólks eða þjóð­ar­innar. Eftir öll þessi hrun­mál, sem mörg skil­uðu þungum dómum, málum sem sum hver eru enn í með­ferð og við eigum örugg­lega eftir að flytja mörg þeirra aftur úr af ein­hverjum form­göllum sem Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn er búinn að finna út að hafi orðið af hálfu dóm­stóla, þá var farið í að breyta lögum um fulln­ustu dóma árið 2016. Var við þessa breyt­ingu á lögum um fulln­ustu refs­inga gengið lengra í að heim­ila afplánun utan fang­elsa, en nefnd sér­fræð­inga sem sett hafði verið saman til að gera til­lögur, hafði lagt til.

Það þarf eng­inn að segja mér að þar hafi ekki spilað inn í að menn hefðu í huga við þessa breyt­ingu þá sem voru dæmdir í þessum hrun­málum. Maður sá alþing­is­menn að þessu til­efni klappa hvorir öðrum á bakið fyrir að hafa sýnt svo mikla mann­gæsku við að milda fulln­ustu refs­inga þeirra sem dæmdir eru. Það er ekk­ert við það að athuga að lögum um fulln­ustu sé breytt eða reyndar nýjar leiðir í þeim efnum. En við skulum hafa það í huga að það var Alþingi sem brást við reiði fólks nokkrum árum áður, eftir hrunið, og stuðl­aði að rann­sóknum mála því tengdu sem leiddu til þess­ara þungu dóma og að eftir því var kallað. Það hvarflar að manni að við­horf manna til þess­ara brota ráð­ist svo­lítið af hversu reiðir þeir eru, og hversu hávær krafan sé í sam­fé­lag­inu nákvæm­lega þá um að menn sæti ábyrgð. Það er ekk­ert eðli­legt við það að með­ferð saka­mála og fulln­usta refs­inga ráð­ist af dæg­ur­sveiflum frekar en laga­text­anum sem í hlut á. Við höfum séð eftir hrunið að það þarf minna til að almenn­ingur grípi til mót­mæla og eft­ir­hruns­reiðin vakni upp. Það hefur kosti og galla. Vissu­lega heldur það þrýst­ingi á stjórn­mála­mönnum um að sinna þessum málum en nei­kvæða hliðin er að reiði er aldrei góður hvati til verka.“

Eigum ekki að elta æsinginn

Hann hefur verið í þessu starfi bæði þegar það var vin­sælt, eftir hrunið, og þegar það var óvin­sælt, á tímum Baugs­máls­ins. „Við viljum ekki vera í öðrum hvorum þessum fasa eða til­heyra liði, eða meta árangur okkar af dæg­ur­sveiflum. Ákæru­valdið á að mínu viti að vera þarna á milli og vera fag­legt og byggja nálgun sína á lög­unum og leita réttrar nið­ur­stöðu út frá lögum og dómafor­dæmum óháð reiði eða utan­að­kom­andi pressu. Gæta að mann­rétt­indum og ekki að þókn­ast ein­hverjum stjórn­mála­mönnum eða popúlistum eins og Evu Joly eða ein­hverjum öðrum sem æsa almenn­ing upp í að mæta nán­ast með tjöru og fiður.

Við eigum ekk­ert að vera þar. Við eigum að reyna að finna fag­lega réttu lín­una í þessu og fylgja henni í gegnum súrt og sætt. Annars er ekki hægt að tala um rétt­læti. Við­skipta­lífið á að geta treyst því að ef þeir sem þar starfa mis­stíga sig, eins og aðrir, sé kerfið til­búið að fjalla um mál þeirra og fylgja lögum eftir. Slíkt kall­ast varn­að­ar­á­hrif. Ef sam­fé­lagið er ekki sátt við refsi­lögin sem ákæru­valdið vinnur við að fylgja eftir þá er sjálf­sagt að breyta þeim.“

Sárt að viðurkenna að peningar geti keypt árangur

Helga Magnúsi er tíð­rætt um Baugs­málið, sem var lík­lega í fyrsta sinn sem ákæru­valdið reyndi að fá menn sem höfðu nær ótak­mark­aðan aðgang að fjár­munum, dæmda fyrir lög­brot á Íslandi. Það var miklu til kostað í vörnum þeirra sem voru undir í mál­inu og á end­anum voru þeir sýkn­aðir af flestum ákæru­liðum.

Það var líka þekkt stef í hrun­mál­unum, eins og efna­hags­brota­málum almennt hér á landi og á hinum Norð­ur­lönd­unum sem, að afar efn­aðir sak­born­ingar keyptu sér þjón­ustu ýmissa sér­fræð­inga til að vinna sér­tæka rann­sókn á málum þeirra og leggja fram. Helgi Magnús seg­ist ekki geta vegna hæf­is­reglna tjáð sig um nýlegt mál Samherja en þar hefur það fyr­ir­tæki ráðið norska lög­manns­stofu til að fara yfir sín mál og til stendur að birta nið­ur­stöðu úr þeirri einka­rann­sókn snemma á næsta ári, löngu áður en að rann­sókn­ar­að­ilar á Íslandi ljúka sinni rann­sókn á mál­inu og kom­ast að nið­ur­stöðu um hvort ákæra eigi í því eða ekki.

Hann vill því taka fram að hér sé hann að ræða með­ferð efna­hags­mála almennt en ekki til­tekin mál sem eru til með­ferðar hjá lög­reglu eða ákæru­valdi.

En aðspurður hvort þetta virki, hvort efnað fólk geti keypt sér sitt eigið rétt­ar­far, segir Helgi Magnús það sann­ar­lega ekki úti­lokað að fjár­hags­legur styrkur dugi til að hafa áhrif á almenn­ings­á­litið og stjórn­málin með því að draga úr trú­verð­ug­leika lög­reglu, ákæru­valds og dóm­stóla. Um til­burði í þessa átt eru fjöldi dæma á liðnum árum en það sem breyst hafi eftir hrunið er að dóm­stól­arnir fengu einnig að finna fyrir því sem áður dundi einkum á lög­reglu og ákæru­valdi. „Það er sárt að við­ur­kenna að það geti gerst, en það er alveg ljóst að þetta hefur áhrif gagn­vart almenn­ings­á­lit­inu. Eðlilega reyna sak­born­ingar að koma sínum sjón­ar­miðum á fram­færi og reyna að verj­ast. Ein aðferðin sem er þekkt í efna­hags­brotum er að vera með einka­rann­sókn á málum eða ein­stökum þáttum þess með aðstoð end­ur­skoð­unar- eða lög­manns­skrif­stofa sem stilla upp ein­hverri nið­ur­stöðu. Ein­hverjum veru­leika sem þeir segja að sé raun­veru­leik­inn.

Það getur vissu­lega verið að rétt nið­ur­staða komi út úr slíku ef ásak­anir eru til­hæfu­lausar. Það þarf samt eng­inn að láta sér detta það í hug að ein­hver einka­að­ili eða einka­fyr­ir­tæki muni nokkurn tím­ann leita að sann­leik­anum í eigin málum sem varða mikla hags­muni þeirra eða stjórn­enda þeirra, með ærnum til­kostn­aði, ef hann er þeim ekki hag­felldur. Það kemur ekki til greina og auð­vitað ekki hægt að ætl­ast til þess. Menn fara ekki að leggja fram sönn­un­ar­gögn gegn sjálfum sér. Þannig að til­gang­ur­inn með þessu er oft­ast að búa til ein­hverja mynd sem hentar til varnar í saka­máli. Annað væri of vit­laust til að gera ráð fyrir því.

Þetta hefur áhrif. Sak­born­ingar stilla því oft þannig upp að ákæru­valdið sé í ein­hverri veiði­ferð og allt sé gert af ein­hverjum ill­vilja gagn­vart þeim. Tengt við póli­tík eða annað slíkt til að gera mála­til­bún­að­inn tor­tryggi­legan. Svo ræðst það svo­lítið af því hversu mót­tæki­legt sam­fé­lagið er fyrir skýr­ingum fólks hvort að þetta gangi upp eða ekki.

Ef þetta tekst þá minnkar áhugi sam­fé­lags­ins og vilji stjórn­mála­manna til að leggja pen­inga í mála­flokk­inn sömu­leiðis.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2019

Mest lesið undanfarið ár