Forseti Indlands flytur erindi í Háskóla Íslands

Shri Ram Nath Kovind, for­seti Indlands, er vænt­an­legur til lands­ins í opin­bera heim­sókn en þetta er fyrsta heim­sókn for­seta Indlands til nor­ræns ríkis.

Shri Ram Nath Kovind, forseti Indlands
Shri Ram Nath Kovind, for­seti Indlands Mynd: Úr safni

Shri Ram Nath Kovind, for­seti Indlands, mun flytja opið erindi í Hátíða­sal Aðal­bygg­ingar Háskóla Íslands þriðju­dag­inn 10. sept­em­ber næst­kom­andi. Frá þessu er greint á vef HÍ.

Yfir­skrift erindis for­seta Indlands í Háskóla Íslands er „Indland og Ísland fyrir græna plánetu“ og er það opið öllum á neðan hús­pláss leyfir.

Forseti Indlands er vænt­an­legur hingað til lands í opin­bera heim­sókn í boði for­seta Íslands, Guðna Th. Jóhann­es­sonar, dag­ana 10. og 11. sept­em­ber næst­kom­andi. Þetta er fyrsta heim­sókn for­seta Indlands til nor­ræns ríkis.

Kovind var kjör­inn for­seti Indlands í júlí árið 2017 með 65 pró­sent atkvæða. Hann er fjórt­ándi for­seti lands­ins en emb­ættið er ekki valda­mikið.

Hann var rík­is­stjóri í hér­að­inu Bihar 2015 til 2017 og þing­maður í efri deild ind­verska þings­ins á árunum 1994 til 2006. Kovind er lög­fræð­ingur að mennt og starf­aði sem slíkur áður enn hann hóf afskipti af stjórn­málum fyrir ald­ar­fjórð­ungi. Hann er stétt­laus, eða það sem kallað er dalíti, en þetta var í annað sinn sem stétt­laus maður var kjör­inn for­seti lands­ins.

Jón Atli Bendikts­son, rektor Háskóla Íslands, mun kynna Kovind og mun Ólafur Ragnar Grímsson, fyrr­ver­andi for­seti Íslands, flytja loka­orð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnahagmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár