Vilja einungis ríka og heilbrigða innflytjendur til Bandaríkjanna

Inn­flytj­endur sem þurfa á opin­berri heil­brigð­is­þjón­ustu að halda, not­ast við mat­ar­miða eða búa við bága fjár­hags­stöðu verður neitað um fasta búsetu í Banda­ríkj­unum. Banda­rísk stjórn­völd vilja ekki að inn­flytj­endur verði „byrði á skatt­greið­endur.“

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, og Mike Pence, vara­for­seti Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Ný banda­rísk inn­flytj­enda­reglu­gerð kveður á að inn­flytj­endur sem búi við bága fjár­hags­stöðu og inn­flytj­endur sem þurfi á opin­berri heil­brigð­is­þjón­ustu að halda mun vera neitað um græna kortið í Banda­ríkj­unum. Búi inn­flytj­andi í nið­ur­greiddu hús­næði af rík­inu, eða talið er að hann muni þurfa á opin­berri heil­brigð­is­þjón­ustu að halda í fram­tíð­inni, verður nær ómögu­legt fyrir hann að sækja um græna kortið. Græna kortið veitir inn­flytj­endum stöðu sem ein­stak­lingar með fasta búsetu í Banda­ríkj­unum.

Reglu­gerðin sem skrifuð er af rík­is­stjórn Donalds Trump, for­seta Banda­ríkj­anna, bein­ist ekki gegn ólög­legum inn­flytj­endum heldur að inn­flytj­endum sem koma til lands­ins lög­lega og vilja halda áfram að vera í Banda­ríkj­unum. Búi inn­flytj­end­urnir við bága fjár­hags­stöðu verður hægt að flokka þá sem „byrði á skatt­greið­endur“ og þeim því neitað um græna kortið. Þetta kemur fram í frétt the New York Times.

[adspot]Hin nýja reglu­gerð mun taka gildi í októ­ber og munu þeir inn­flytj­endur sem sækja um græna kortið þurfa að gang­ast undir ítar­lega skoðun á fjár­málum þeirra. Fátækum inn­flytj­endum verður neitað um græna kortið ef talið er lík­legt að þeir muni not­ast við ein­hvers konar bætur, mat­ar­miða (food stamp) eða nið­ur­greitt hús­næði. Ríkari inn­flytj­endum, sem talið er að muni þurfa á minni aðstoð að halda, mun verða veitt græna kortið.

Innflytjendur reiði sig ekki á velferðarkerfið

Í gær til­kynnti Kenneth T. Cuccinelli II, yfir­maður banda­ríska rík­is­borg­ara­rétt­ar­ins og inn­flytj­enda­mála, fyrir hönd banda­rísku rík­is­stjórn­ar­innar að reglu­gerð um inn­flytj­endur í Banda­ríkj­unum yrði hert. Hann sagði að áhersla yrði lögð á að inn­flytj­endur væru „sjálfum sér nægir og beri per­sónu­lega ábyrgð.“ Jafn­framt sem nýja reglu­gerðin „gerir inn­flytj­endum kleyft að sjá fyrir sjálfum sér og ná árangri.“

Cuccinelli sagði að nýja reglu­gerðin myndi tryggja að inn­flytj­endur geti staðið á eigin fótum og muni ekki reiða sig á vel­ferð­ar­kerfi Banda­ríkj­anna.

Reglu­gerðin mun þó ekki gilda um fólk sem hafi þegar hlotið græna kortið, fólk í hernum, flótta­menn og hæl­is­leit­endur eða óléttar konur og börn. Bar­áttu­menn fyrir rétt­indum inn­flytj­enda hafa varað við því að reglu­gerðin gætu fælt inn­flytj­endur frá því að sækja um græna kortið, jafn­vel þótt þeir stand­ist kröfur hennar.

Jákvæðir og neikvæðir þættir innflytjenda metnir

Samkvæmt nýju reglu­gerð­inni munu opin­berir starfs­menn útlend­inga­stofn­unar Banda­ríkj­anna líta til ald­urs, heilsu, eigna, inn­komu, mennt­unar og fjöl­skyldu­haga, þegar kemur að því að meta hvort inn­flytj­endur ættu að fá græna kortið. Fátækari inn­flytj­endum verður gert að sanna að þeir muni ekki þurfa bætur eða hjálp rík­is­ins í fram­tíð­inni. Reglu­gerð­ina má lesa hér.

Í reglu­gerð­inni stendur að nei­kvæðir þættir sem hafi áhrif á umsókn inn­flytj­enda séu atvinnu­leysi, að vera þiggj­andi opin­berrar aðstoðar, að hafa þegið opin­bera aðstoð 36 mán­uðum áður en sótt var um græna kortið og að geta ekki greitt fyrir heil­brigð­is­þjón­ustu.

Jákvæðir þættir telj­ast fjöl­skyldu­tengsl, að vera ensku­mæl­andi, vera mennt­aður, hafa heil­brigð­is­trygg­ingu, hafa unnið innan Banda­ríkj­anna, hafa hlotið styrki, vera for­eldri og geta að vinna í fram­tíð­inni.

Heilbrigði stór þáttur

Hafi inn­flytj­andi hlotið opin­bera heil­brigð­is­þjón­ustu og sé án heil­brigð­is­trygg­ingar ann­arrar en opin­berrar mun það bitna á umsókn­inni. Inn­flytj­endur sem geta borgað fyrir sína eigin heil­brigð­is­þjón­ustu án aðstoðar rík­is­ins munu frekar fá græna kortið.

Ákvæðin gilda þó ekki um heil­brigð­is­þjón­ustu fatl­aðra, barna, óléttra kvenna, heil­brigð­is­þjón­ustu veitta í skólum og heil­brigð­is­þjón­ustu kvenna 60 dögum eftir barns­burð. Einnig á reglu­gerðin ekki við um börn sem ætt­leidd verða af banda­rískum borg­urum.

Yfirvöld í Banda­ríkj­unum munu jafn­framt hafa rétt að skoða skýrslur um heil­brigði inn­flytj­enda til að meta hvort mögu­lega þurfi inn­flytj­and­inn á opin­berri heil­brigð­is­þjón­ustu að halda í fram­tíð­inni. Því er ljóst að inn­flytj­endur sem eru með trygg­ingu og við góða heilsu eiga meiri líkur á að hljóta græna kortið.

Vopnvæða kerfi sem á að hjálpa fólki

„Þetta er grimmi­legt skref í átt að vopn­væða kerfi sem ætlað er til að hjálpa fólki og í stað­inn nota það til að stía fjöl­skyldum í sundur og senda inn­flytj­endum og lit­uðum sam­fé­lögum skila­boðin: Þið eruð ekki vel­komin,“ sagði Mari­el­ena Hincapié, fram­kvæmda­stjóri mið­stöðvar inn­flytj­enda­laga í Banda­ríkj­unum í sam­tali við the New York Times.

„Þetta mun hafa alvar­leg áhrif á fólk, mun neyða sumar fjöl­skyldur að sleppa heil­brigð­is­þjón­ustu og nær­ingu. Skaðinn mun vara í ára­tugi,“ bætti hún við.

Trump hefur lengi kraf­ist þess að inn­flytj­endur ættu ein­ungis að fá græna kortið byggt á „verð­leika“ sínum. Í jan­úar 2018 lét hann til að mynda þau frægu orð falla að Banda­ríkin ættu ekki að taka við inn­flytj­endum frá „skíta­löndum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár