Icelandair aldrei flutt jafnmarga farþegar til landsins í júlí

Icelandair flutti alls 564 þús­und far­þegar í júli. Farþegum sem flugu til Íslands fjölg­aði um 32 pró­sent milli ára.

Icelandair flutti tæp­lega 251 þús­und far­þegar til Íslands í júlí­mán­uði. Það er ríf­lega 60 þús­und fleiri en félagið flutti til lands­ins í sama mán­uði í fyrra og far­þegum sem Icelandair flaug til Íslands fjölg­aði því um 32 pró­sent. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu til Kaup­hallar um nýjar flutn­ings­tölur Icelandair. WOW air, helsti sam­keppn­is­að­ili Icelandair, fór í þrot í mars og því hefur dregið veru­lega úr sam­keppni á flugi til og frá Íslandi frá því í fyrra.

Þar segir einnig að heild­ar­fjöldi far­þega hjá Icelandair í mán­uð­inum hafi verið 564 þús­und og hafi auk­ist um níu pró­sent milli ára. Sæta­nýt­ing dróst hins vegar saman, var 82,9 pró­sent en hafði verið 85,3 pró­sent í júlí í fyrra. Ástæðan er sögð vera leiða­kerf­is­breyt­ingar sem gerðar voru vegna kyrr­setn­ingar MAX véla félags­ins skömmu fyrir ferða­tím­ann sem höfðu tals­verð nei­kvæð áhrif á sæta­nýt­ingu í júlí.

[adspot]Í til­kynn­ing­unni segir einnig að „Atl­ants­hafs­mark­að­ur­inn var áfram stærsti mark­aður félags­ins í júlí með um 45 pró­sent af heild­ar­far­þega­fjölda þrátt fyrir að fjöldi skiptifar­þega hafi dreg­ist saman um 10 pró­sent á milli tíma­bila. Komu­stund­vísi í leiða­kerfi félags­ins í júlí var 71 pró­sent sam­an­borið við 51 pró­sent í júlí á síð­asta ári en góður árangur hefur náðst í að bæta stund­vísi þrátt fyrir minni sveigj­an­leika í flug­á­ætlun félags­ins vegna kyrr­setn­ingar MAX véla félags­ins.“

Farþegar Air Iceland Connect, sem flýgur inn­an­lands á Íslandi, voru um 28 þús­und í júlí og fækk­aði um tíu pró­sent frá því í fyrra.

Slakt uppgjör á fyrri helmingi árs

Icelandair Group tap­aði alls 89,4 millj­ónum dala, um ell­efu millj­örðum króna, á fyrstu sex mán­uðum árs­ins. Þetta kom fram í hálfs­árs­upp­gjöri félags­ins sem birt var í síð­ustu viku. Þar sagði að heild­ar­tekjur þess hefðu auk­ist, launa­kostn­aður lækkað en elds­neytis­kostn­aður og kostn­aður vegna flug­véla­leigu hækkað.

Ástæðan fyrir slöku upp­fjöri var fyrst og síð­ast vegna kyrr­setn­ingar á MAX-vélum Icelandair, en félagið hefur þegar fengið sex slíkar afhentar og átti von á þremur til við­bótar. Vélarnar voru kyrr­settar 12. mars en áætl­anir Icelandair gera ráð fyrir því að þær kom­ist aftur í gagnið í nóv­em­ber, þótt Boeing, fram­leið­andi vél­anna, hafi ekk­ert gefið út um það enn hvenær búast megi við því að vél­arnar geti flogið á ný. Eig­in­fjár­hlut­fall Icelandair lækk­aði úr 28 í 25 pró­sent á fyrstu sex mán­uðum árs­ins þrátt fyrir hluta­fjár­aukn­ingu upp á 5,6 millj­arða króna á tíma­bil­inu. Handbært fé félags­ins lækk­aði um 15,3 millj­arða króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins, úr um 36,9 millj­örðum króna í um 21,5 millj­arð króna.

Icelandair hyggst krefj­ast 17 millj­arða króna í skaða­bætur frá Boeing vegna kyrr­setn­ingar á MAX-vél­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár