Sakar ákveðna fjölmiðla að nánast hatast við Miðflokkinn

Þing­maður Mið­flokks­ins segir Stundina, DV og Kvenna­blaðið nærri því að hat­ast við Mið­flokk­innn og þing­menn hans í and­svari við áliti siða­nefndar Alþingis.

„Engum hlut­að­eig­andi kom til hugar að málið yrði raun­veru­lega rekið áfram á grund­velli frétta í vef­út­gáfum Stund­ar­innar, DV og Kvenna­blaðs­ins, sem allir sem fylgj­ast með íslenskum stjórn­málum vita að fara nærri því að hat­ast við Mið­flokk­inn og þing­menn hans,“ skrifar Bergþór Ólason í and­svari sínu til for­sætis­nefndar vegna álits siða­nefndar Alþingis.

Fram kom í fréttum í morgun að Berg­þór Óla­son og Gunnar Bragi Sveins­son, þing­menn Mið­flokks­ins, hefðu sam­kvæmt siða­nefnd Alþingis brotið siða­reglur alþing­is­manna með ummælum sem þeir létu falla á barnum Klaustri þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

Málið hófst þegar heim­ild­ar­mað­ur­inn „Marvin“ – sem síðar kom í ljós að væri Bára Hall­dórs­dóttir – sendi upp­tökur af sam­ræðum þing­manna Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins á þrjá fjöl­miðla: DV, Stundina og Kvenna­blaðið.

Í lok maí síð­ast­lið­ins var nið­ur­staða stjórnar Per­sónu­verndar gerð kunn­gjörð en taldi nefndin að Bára Hall­dórs­dóttir hefði brotið per­sónu­vernd­ar­lög með því að taka upp sam­tal þing­manna á barnum og um raf­ræna vöktun hefði verið að ræða að hennar hálfu. Báru var ekki gert að greiða sekt en hún þurfti að eyða umræddum upp­tökum, sem og hún gerði.

„Samhengislausar tilvitnanir og túlkanir fjölmiðla“

[links]Í bréfi Bergþórs til for­sætis­nefndar segir: „Í bréfi þeirra fjög­urra þing­manna sem skrif­uðu for­sætis­nefnd og gerðu kröfu um eyð­ingu gagna, á grund­velli úrskurðar per­sónu­verndar, kom skýrt fram að ætlan þing­mann­anna var að bregð­ast við á grund­velli þess hvort orðið yrði við kröfu um eyð­ingu á ólög­lega fengnum gögnum.“

Þá greinir Bergþór frá því að engum hlut­að­eig­andi hafi komið til hugar að málið yrði raun­veru­lega rekið áfram á grund­velli frétta í vef­út­gáfum Stund­ar­innar, DV og Kvenna­blaðs­ins, sem allir sem fylgj­ast með íslenskum stjórn­málum viti að fara nærri því að hat­ast við Mið­flokk­inn og þing­menn hans. „Það þarf ekki annað en að segja við sjálfan sig upp­hátt að slíkt sé ætl­anin, til að átta sig á hversu galin sú hug­mynd er.“

Hann rök­styður full­yrð­ingar varð­andi meint hatur fjöl­miðl­anna þriggja ekki frekar.

„Það liggur í hlut­ar­ins eðli að álit sem hefði byggt á frum­gögnum máls­ins stæði alltaf á sterk­ari grunni en sam­heng­is­lausar til­vitn­anir og túlk­anir fjöl­miðla, sem miða oft fremur að því að vekja eft­ir­tekt les­enda og jafn­vel hneykslan, en að gæta sann­mælis og leita sann­leik­ans. Þessir miðlar lifa á því að fólk klikki á fyr­ir­sagnir á vefnum og kaupi prentút­gáfur miðl­anna,“ skrifar Berþór.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár