Rúmlega fimm þúsund heimili fengu fjárhagsaðstoð árið 2018

Rúmlega fjör­tíu pró­sent heim­ila sem hlutu fjár­hags­að­stoð árið 2018 voru heim­ili barn­lausra ein­stæðra karla.

Rúmlega fimm þús­und heim­ili fengu fjár­hags­að­stoð sveit­ar­fé­laga árið 2018 sem er 2,5 pró­senta fækkun frá árinu áður. Fjöldi heim­ila sem fá fjár­hags­að­stoð helst í hendur við þróun atvinnu­leysis, að því er kemur fram í grein­ingu Hag­stof­unnar.

Samkvæmt grein­ingu Hag­stof­unnar hækk­uðu útgjöld sveit­ar­fé­lag­anna vegna fjár­hags­að­stoðar um 1,6 pró­sent sé miðað við fast verð­lag, eða um 74 millj­ónir króna. Með­al­mán­að­ar­greiðslur fjár­hags­að­stoðar voru 136.242 krónur sem er um þús­und krónu lækkun frá árinu áður.Lengd fjár­hags­að­stoðar árið 2018 var 4,8 mán­uðir en 4,5 mán­uðir árið áður.

[adspot]43,1 pró­sent af þeim heim­ilum sem fengu fjár­hags­að­stoð voru heim­ili barn­lausra karla en heim­ili barn­lausra kvenna 24,1 pró­sent. Heimili ein­stæðra kvenna með börn voru 22,2 pró­sent heim­ila og heim­ili hjóna eða sam­búð­ar­fólks 8,8 pró­sent. Um þriðj­ungur við­tak­enda fjár­hags­að­stoðar voru atvinnu­lausir og 86 pró­sent þeirra án bóta­réttar.

2,3 pró­sent þjóð­ar­innar bjuggu á heim­ilum sem fengu fjár­hags­að­stoð árið 2018, eða 8.206 manns og þar af 2.710 börn. 9.461 heim­ili fékk félags­lega heima­þjón­ustu og tæp­lega fimm af hverjum sex heim­ilum voru heim­ili aldr­aðra sem er tæp­lega fimm pró­senta aukn­ing frá árinu 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnuleysi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár