Ragnar Þór: Ítök atvinnurekenda innan lífeyrissjóðanna engan vegin ásættanleg

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, seg­ist ekki eiga von á að vera for­maður lengi en seg­ist meðal ann­ars vilja berj­ast gegn „spill­ing­unni“ sem á sér stað innan líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins á meðan hann er enn við störf.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR. Mynd: Bára Huld Beck

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir að þau ítök sem atvinnu­rek­endur hafi náð innan líf­eyr­is­sjóð­anna séu engan veg­inn ásætt­an­legt og að það hljóti að vera mark­mið verka­lýðs­hreyf­ing­unnar að losa sjóð­inn undan því oki. Hann segir jafn­framt að miðað við við­brögð „lobbí­ista“ við þeirri ákvörðun VR að skipta út öllum full­trúum VR í stjórn Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna, þá sé hreyf­ingin greini­lega á réttri leið í þeirra bar­áttu. Þetta kemur fram í við­tali við Ragnar Þór í Mannlífi í dag.

Varnarviðbrögð þess sem telur sér ógnað

[links]Í við­tal­inu fjallar Ragnar meðal ann­ars um þau hörðu við­brögð sem ákvörðun VR, um að aft­ur­kalla umboð stjórn­­­­­­­ar­­­­manna VR í stjórn Líf­eyr­is­­­­sjóðs verzlunarmanna og sam­­­­þykkja til­­­­lögu um nýja stjórn­­­­­­­ar­­­­menn til­­ bráða­birgða, hefur fengið. Hann segir að nú þegar ítökum atvinnu­rek­enda í stjórn líf­eyr­is­sjóð­anna hafi verið ógnað og þá stökkvi lobbí­istar atvinnu­rek­enda til varnar. „Þetta eru varn­ar­við­brögð þess sem telur sér ógnað,“ segir Ragnar.

Davíð Stef­áns­son, nýráð­inn rit­stjóra Frétta­blaðs­ins, er á meðal þeirra sem hafa gagn­rýnt Ragnar harð­lega fyrir fyrr­nefnda ákvörðun full­trúa­ráðs VR en Davíð skrif­aði leið­ara um málið fyrr í vik­unni. „Davíð var ráð­inn rit­stjóri Frétta­blaðs­ins eftir að Helgi Magn­ús­son fjár­festir keypti helm­ings­hlut í blað­inu. Helgi er fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna og einn af þeim sem stóð fyrir því að sjóð­ur­inn lagði háar upp­hæðir í Silicor Mater­i­als í gegnum félagið Sunnu­velli sem áður­nefndur Davíð Stef­áns­son stýrði. Stefnan var að reisa kís­il­verk­smiðju í Hval­firði sem svo aldrei varð og millj­arðar hafa tap­ast án þess að skóflu væri stungið í jörðu,“ segir Ragnar

Hann segir þetta vera eitt ótelj­andi dæma um „skað­væn­leg áhrif ítaka atvinnu­rek­anda í líf­eyr­is­sjóð­unum.“ Hann segir það því hafa ekki komið á óvart að Davíð hefði ráð­ist að hans per­sónu til að gera bar­áttu VR fyrir því að losa um þessi ítök tor­tryggi­lega.

Ekki trú á því að vera formaður mjög lengi í viðbót

Ragnar segir jafn­framt að bar­áttan fyrir rétt­indum launa­fólks taki aldrei enda og bendir á að þau rétt­indi sem hafi áunn­ist hafi oft verið hunsuð og gerð að engu. „Við erum svo oft búin að horfa upp á það að þau rétt­indi sem hafa áunn­ist með bar­áttu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar hafa verið hunsuð og gerð að engu. Líf­eyr­is­sjóða­málin eru til dæmis besta dæmið um það. Þau ítök sem atvinnu­rek­endur hafa náð innan sjóð­anna eru engan veg­inn ásætt­an­leg og það hlýtur að vera mark­mið okkar að losa sjóð­ina undan því oki. Og miðað við þessi við­brögð lobbí­ist­anna sem við vorum að tala um í upp­hafi þá erum við greini­lega á réttri leið í þeirri bar­áttu, það gefur manni von.“

Jafn­framt segir hann að hann muni ekki vera lengur en átta ár sem for­maður VR, hvernig sem allt velti. „Hef reyndar ekki trú á því að ég verði mjög lengi í við­bót, kannski bara þessi tvö ár. Hins vegar brennur enn í mér neist­inn til að berj­ast fyrir bættum hag launa­fólks og á meðan hann lifir held ég áfram, hvort sem það verður í þessu starfi eða ein­hverju öðru,“ segir Ragnar Þór.

„Við erum því orðin þrælar eigin kerfis“

Þá nefnir Ragnar hann myndi vilja sjá margt breyt­ast á meðan hann er enn for­maður. Nefnir hann þar á meðal skerð­ingar á líf­eyri aldr­aðra og öryrkja vegna sam­spils líf­eyr­is­sjóð­anna og Trygg­inga­stofn­unar og segir að það verður koma því í gegn að þær verði lagðar af.

Auk þess nefnir hann „spill­ing­una“ innan líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins. Hann segir að líf­eyr­is­sjóð­irnir séu orðnir stærstu eig­endur fast­eigna­lána á Íslandi, stærstu eig­endur smá­sölu­versl­unar og þjón­ustu fyr­ir­tækja hér á landi. „Það þýðir að sjóð­irnir hafa beinan og óbeinan hag af háu leigu­verði, háu hús­næð­is­verði, háum vöxtum sem og verð­trygg­ingu. Sjóð­irnir hafa líka hag af lágum launum og hárri álagn­ingu,“ segir Ragnar.

„Við erum því orðin þrælar eigin kerfis sem þver­tekur fyrir að koma að sam­fé­lags­legri upp­bygg­ingu inn­viða sam­fé­lags­ins öðru­vísi en að græða sem mest á því. Það er vita­skuld gjör­sam­lega óásætt­an­legt og þeirri bar­áttu þarf að halda áfram af fullum krafti, hvort sem það verður á meðan ég sit í for­manns­sæt­inu eða ekki. Við þurfum að halda áfram að berj­ast hvernig sem allt velt­ist,“ segir Ragnar að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stéttarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár