Helga Guðrún skorar Ragnar Þór á hólm í formannskjöri VR

Helga Guðrún Jón­as­dóttir býður sig fram gegn Ragnari Þór Ing­ólfs­syni sitj­andi for­manni VR. Þau verða tvö í fram­boði, en fram­boðs­frest­ur­inn rann út í dag.

Helga Guðrún Jón­as­dóttir hefur boðið sig fram til þess að verða næsti for­maður VR. Framboð hennar er það eina sem barst gegn sitj­andi for­manni, Ragnari Þór Ing­ólfs­syni. Fram­boðs­frest­ur­inn rann út á hádegi í dag, sam­kvæmt til­kynn­ingu á vef félags­ins.

Helga Guðrún er fyrr­ver­andi upp­lýs­inga­full­trúi Fjarða­byggðar og hefur einnig starfað sem sam­skipta­stjóri Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga. Þá hefur hún einnig verið for­maður Lands­sam­bands sjálf­stæð­iskvenna og sömu­leiðis tekið sæti sem vara­þing­maður flokks­ins.

Hún hefur áður boðið sig fram til for­manns VR, en laut í lægra haldi fyrir Stefáni Einari Stef­áns­syni, núver­andi blaða­manni, í kosn­ingu árið 2011.

11 bítast um sjö stjórnarsæti

Samkvæmt til­kynn­ingu á vef VR bár­ust 11 gild fram­boð til stjórnar félags­ins fyrir kjör­tíma­bilið 2021-2023. Alls verður kosið til sjö sæta í stjórn og þriggja í vara­stjórn.

Á meðal fram­bjóð­enda er Sigríður Hall­gríms­dóttir, sem eitt sinn var aðstoð­ar­maður Illuga Gunn­ars­sonar fyrr­ver­andi mennta­mála­ráð­herra. Hún var um ára­bil reglu­legur dálka­höf­undur í Frétta­blað­inu.

Fram­bjóð­endur til stjórnar VR eru, í staf­rófs­röð þau Arnþór Sig­urðs­son, Harpa Sæv­ars­dóttir, Helga Ing­ólfs­dóttir, Jón Steinar Brynjars­son, Jónas Yngvi Ásgríms­son, Krist­jana Þorbjörg Jóns­dóttir, Sig­mundur Hall­dórs­son, Sigríður Hall­gríms­dóttir, Sigurður Sig­fús­son, Svan­hildur Ólöf Þór­steins­dóttir og Þórir Hilm­ars­son

Fram kemur í til­kynn­ingu á vef VR að ekk­ert mót­fram­boð hafi borist gegn lista trún­að­ar­ráðs VR í trún­að­ar­ráð félags­ins og hann telj­ist því lög­lega kjör­inn.

[adspot]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stéttarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár